Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Evrópusambandið óskar eftir umsóknum um styrki til lýðheilsusverkefna

15.3.2006

Evrópusambandið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði lýðheilsu, úr sjóði sem hefur yfir 43 milljónum evra að ráða. Umsóknarfrestur er til 19. maí 2006..

Smellið á myndina til að opna heimasíðuOpinberum aðilum, félagasamtökum og sérfræðingum í heilbrigðismálum býðst að sækja um styrki til verkefna á sviði lýðheilsu.

Umsækjendur mega vera frá öllum 25 Evrópusambandsríkjunum sem og Búlgaríu, Rúmeníu, Tyrklandi, Íslandi, Noregi og Liechtenstein.

Evrópusambandið hefur yfir 43 milljónum evra sjóði að ráða til þessara verkefna. Sambandið fjármagnar 60% af samþykktum kostnaði við verkefni. Til þess að samþykkt verði að Evrópusambandið styrki verkefni þarf að vera um mjög vandað heilsueflingarverkefni að ræða. Nýstofnað framkvæmdaráð lýðheilsuáætlunar sambandsins (the Public Health Programme) ber ábyrgð á framkvæmd og umsjón með umsóknunum.

Verkefni verða að falla undir eitt eða fleiri þeirra markmiða sem sett voru fram í framkvæmdaáætlun fyrir árið 2006 hvað varðar upplýsingar um heilsu og heilsulæsi; að bregðast við heilsufarsógnunum; og stuðla að heilsueflingu út frá heilsuvísum. Verkefnin verða einnig að styðja stefnu Evrópusambandsins í lýðheilsumálum, auka gagnsemi lýðheilsumála á Evrópuvísu, framkvæmdaáætlun þess þarf að vera skýr og markviss, markmið með verkefninu verða að vera ljós og fela í sér áætlun um það hvernig upplýsingum um árangurinn af verkefninu verður miðlað til viðeigandi hagsmunaaðila.

Líftími verkefnisins, sem styrkja á, skal ekki vera lengri en 3 ár.

Nánari upplýsingar um verkefni og umsóknargögn fást hjá:

http://www.europa.eu.int/comm/health/ph_programme/howtoapply/call_for_propal_en.htm

Umsóknarfrestur er til 19. maí 2006.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica