Undirritun viljayfirlýsingar um samstarf milli Háskólans í Reykjavík og Lýðheilsustöðvar
Hinn 10. mars undirrituðu þær Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, og Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, viljayfirlýsingu þar sem lýst er yfir vilja til samstarfs um rannsóknir og fræðsluverkefni á sviði lýðheilsu. Markmið samstarfsins er að efla lýðheilsurannsóknir og fræðslu í landinu með það að leiðarljósi að bæta heilsu og líðan landsmanna.
Með stofnun Lýðheilsustöðvar árið 2003 og kennslufræði- og lýðheilsudeildar við Háskólann í Reykjavík árið 2005 sköpuðust ný tækifæri til rannsókna og fræðslu á sviði lýðheilsu. Með þessari viljayfirlýsingu er hvatt til formlegs samstarfs stofnananna um rannsóknir og fræðslu, þar sem áhersla er lögð á að efla rannsóknastarf beggja stofnana og auka þekkingu á þeim þáttum sem tengjast lýðheilsu. Stofnanirnar munu leitast við að setja á laggirnar ný sameiginleg rannsóknaverkefni, svo og stuðla að samvinnu um einstök verkefni sem þegar er unnið að. Hvatt er til þess að nemendur í framhaldsnámi við lýðheilsudeild HR leiti til Lýðheilsustöðvar um rannsóknarverkefni.
Háskólinn í Reykjavík stuðlar að miðlun fræðilegrar þekkingar um lýðheilsu til fagfólks og almennings. Lýðheilsustöð hefur fræðsluhlutverki að gegna, samkvæmt lögum, og getur stofnunin komið að kennslu á skilgreindum þáttum í lýðheilsunámi við HR. Kennarar við HR geta komið að fræðsluverkefnum Lýðheilsustöðvar, ýmist með faglegri ráðgjöf eða þátttöku nemenda í heilsueflingarverkefnum.
