Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Um 13.400 nemendur tóku þátt í HBSC-könnuninni á Íslandi

2.3.2006

Á síðastliðnum 2 vikum hafa Lýðheilsustöð og Háskólinn á Akureyri lagt fyrir nemendur í 6. 8. og 10. bekk í nær öllum grunnskólum landsins fjölþjóðlegu könnunina Heilsa og lífskjör skólanema (Health Behaviour in School-aged Children (HBSC)). Skráðir þátttakendur í könnuninni á Íslandi voru um 13.400 nemendur, í 770 bekkjum, í 165 skólum um allt land.

Rannsóknir sem Lýðheilsustöð (og áður Áfengis- og vímuvarnarráð) hefur staðið fyrir undanfarin ár hafa verið samofnar þeim miklu framförum sem hafa átt sér stað í forvarnastarfi á Íslandi á undanförnum misserum. Heilsa og lífskjör skólanema er viðamikil könnun á lífstíl og heilsu íslenskra ungmenna og geta upplýsingarnar sem þar safnast gegnt lykilhlutverki í áframhaldandi skipulagi á öflugu forvarnarstarfi.

Könnunin er gerð með vitund og samþykki skólayfirvalda og meðferð upplýsinganna fer í einu og öllu eftir lögum um persónuvernd. Rannsóknin er nafnlaus og ekki verður hægt að rekja neinar upplýsingar til einstaklinga.

Rannsóknin er hluti alþjóðlegrar rannsóknar sem unnin er að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og nefnist ,,Health Behaviour in School-aged Children" (HBSC). Um er að ræða eitt viðamesta verkefni samtímans á sviði heilsu og heilsutengdrar hegðunar ungs fólks. Verkefnið hófst árið 1983 og hefur síðan verið endurtekið með 4 ára millibili og fer þeim löndum stöðugt fjölgandi sem taka þátt í rannsókninni. Um 40 lönd munu taka þátt í rannsókninni á þessu ári.
Ísland tekur nú þátt í þessari rannsókn í fyrsta sinn og er rannsókninni stýrt frá Háskólanum á Akureyri með tilstyrk Lýðheilsustöðvar. Með þessari þátttöku mun þekking eflast til muna og mikilvæg innsýn fást í stöðu þeirra. Gildi rannsóknarinnar hér á landi er mikið því auk þess að efla þekkingu á heilsu íslenskra ungmenna mun þátttakan veita mikilvæga innsýn í stöðu íslenskra unglinga í alþjóðlegum samanburði.

Íslensk gögn rannsóknarinnar munu gefa kost á margvíslegri úrvinnslu bæði í fræðilegum og hagnýtum tilgangi. Rannsóknin er víðtæk og spurt er um lífstíl, næringu, matmálstíma, hreyfingu, tómstundir, líðan og umhverfi nemenda auk þess sem spurt er um ýmsa áhættuhegðun.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica