Tölum saman - samskipti foreldra og barna um kynlíf
Annars vegar er um að ræða bækling sem ætlaður er foreldrum og nefnist Samskipti foreldra og barna um kynlíf. Í honum er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að börn og unglingar fræðist um kynlíf, þroska barna á hinum ýmsu aldursskeiðum og leiðir fyrir foreldra til að ræða um kynlíf við börn og unglinga.
Hins vegar bækling fyrir unglinga sem nefnist Kynlíf – unglingar. Í honum er meðal annars skrifað um rétt unglinga í kynlífi, bjartar og dökkar hliðar kynlífs og hvert hægt sé að leita til að fá upplýsingar um kynlíf. 
Fræðslufundir fyrir foreldra og unglinga
Höfundar bæklinganna eru þær Dagbjört Ásbjörnsdóttir, mannfræðingur og MA í kynlífs- og kynjafræðum, Guðbjörg Edda Hermannsdóttir, félagsráðgjafi og Sigurlaug Hauksdóttir, félagsráðgjafi, MA í uppeldis- og menntunarfræði.
Að útgáfunni standa Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir (FKB), Lýðheilsustöð, Forvarnarnefnd Reykjavíkurborgar og Landlæknisembættið. Bæklingarnir eru hannaðir af Gunnari Þór Arnarsyni.
Fræðslufundir um kynlíf og kynhegðun unglinga
Höfundarnir ákváðu að ráðast í gerð bæklinganna í kjölfar fræðslufunda um kynlíf og kynhegðun unglinga, sem þeir hafa verið með frá haustinu 2002 fyrir foreldra og nemendur í 7. – 10. bekk í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og síðar víðar um landið. Fræðslu sína kalla þeir: Tölum saman – samskipti foreldra og barna um kynlíf. Við þessi fundarhöld komust höfundar að því að brýn þörf er fyrir fræðsluefni um þetta málefni og réðust því í gerð bæklinganna tveggja.
Frekari upplýsingar veitir Guðbjörg Edda Hermannsdóttir, sími: 846 6664. Netfang: geh2@hi.is
Bæklingarnir eru ókeypis og munu höfundar vera með þá á fræðslufundum sínum en jafnframt er hægt að panta bæklingana og fá um þá frekari upplýsingar hjá Lýðheilsustöð.
Panta Samskipti foreldra og barna um kynlíf
