Formlegt samstarf Lýðheilsustöðvar og Háskólans á Akureyri
Af þessu tilefni var haldinn kynningarfundur á Hótel KEA á Akureyri um víðtækt samstarf Lýðheilsustöðvar
og Háskólans á Akureyri. Samstarfssamningunum er ætlað að styrkja tengsl Lýðheilsustöðvar við háskólasamfélagið í þágu bættrar lýðheilsu á Íslandi og efla þátttöku Háskólans á Akureyri í rannsóknum og fræðslu á þessu sviði. Í máli Jóns Kristjánssonar og Önnu Elísabetar kom fram að sérstök ánægja væri með að samstarfið við HA styrkti bæði tengsl Lýðheilsustöðvar við háskólasamfélagið og það efldi um leið samstarf við landsbyggðina. Þorsteinn þakkaði víðsýni Lýðheilsustöðvar hvað þetta snertir og nefndi að aðrar stofnanir mættu gjarnan fylgja þessu fordæmi.
Að loknum ávörpum, kynningu og undirritun afhenti Þorsteinn þeim Jóni og Önnu Elísabetu að gjöf bjöllu sem er eftirmynd stóru klukkunnar við Háskólann á Akureyri - sú er aftur á móti
eftirmynd hinnar einu sönnu Íslandsklukku.
Heilsa og lífskjör skólanema
Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, kynnti 
rannsóknarverkefnið Heilsa og lífskjör skólanema, sem er fyrsta verkefnið sem fellur undir samstarfssamningana. Um er að ræða íslenskan hluta alþjóðlegu rannsóknarinnar Health Behaviour in School-Aged Children (HBSC) sem unnin er að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Þetta er eitt viðamesta rannsóknarverkefni samtímans á sviði heilsu og heilsutengdrar hegðunar ungs fólks og með þátttöku í því mun íslenskum fræðimönnum veitast mikilvæg innsýn í stöðu íslenskra unglinga í alþjóðlegum samanburði fjörutíu landa. Rannsóknin verður fjármögnuð af Lýðheilsustöð og Háskólanum á Akureyri, en Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri mun sjá um fyrirlögn rannsóknarinnar meðal tólf þúsund skólanema á Íslandi vorið 2006.
Þóroddur Bjarnason
| Myndir frá undirritun á Hótel Kea | |
|---|---|
|
Andrea Hjálmsdóttir, fundarstjóri |
Þorsteinn Gunnarsson, rektor HA |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |










