Sími : 5 800 900

Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð fer undir embætti landlæknis - 29.4.2011

Embætti landlæknis tekur frá 1. maí 2011 við eignum Lýðheilsustöðvar sem og réttindum og skyldum hennar að því er varðar framkvæmd þeirra laga sem falla undir málefnasvið hennar á þeim tíma.

Starfsemi stöðvarinnar og flestir starfsmenn flytja til embættis landlæknis frá sama tíma. Fréttaflutningur frá starfseminni verður á vef embættis landlæknis en allt efni Lýðheilsustöðvar verður aðgengilegt á vef stöðvarinnar þar til nýr vefur verður opnaður með efni beggja stofnanna.

Lesa meira
 

Flensborg fær Gulleplið - 29.4.2011

Fáni heilsueflandi skóla og Flensborgarskóla

Flensborgarskóli í Hafnarfirði hlaut Gulleplið – viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf á sviði heilsueflandi framhaldsskóla. Það var mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir sem afhenti eplið þann 27. apríl. Flensborgarskóli var fyrsti skólinn sem hóf formlega að starfa með Lýðheilsustöð að heilsueflandi framhaldsskóla en nú hafa 24 framhaldsskólar fylgt í kjölfarið. Gert er ráð fyrir að á hverju ári hljóti einhver skólanna Gulleplið sem viðurkenningu fyrir afburða gott starf í sínum skóla.

Lesa meira
 

Lýðheilsustöð lögð niður - 6.4.2011

lydheilsust_2Við þriðju umræðu á Alþingi um frumvarp til laga um nýja sameinaða stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins var lögð fram óvænt  breytingatillaga, sem snérist að forminu til um nafn á nýrri stofnun, en fól fleira í sér. Frumvarpið var samþykkt með breytingatillögunni þann 30. mars s.l. og með því verður Lýðheilsustöð lögð niður frá og með 1. maí 2011. Nýju lögin fela í sér breytingar á lögum um landlækni nr. 41/2007 og að lög nr. 18/2003 um Lýðheilsustöð verða felld úr gildi. Starfsfólki Lýðheilsustöðvar verða boðin störf við embætti landlæknis.

Lesa meira
 

Hliðarfletir vilja verða útundan - 23.3.2011

Tæplega 1,8 milljón íslenskra hliðartannflata fær enga hreinsun, skv. niðurstöðum úr rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga 2007. Af þeim 8.562.694 íslensku hliðartannflötum sem hægt er að hreinsa með tannþræði fá einungis 1.578.354 daglega hreinsun. Ætla má að með aukinni notkun á tannþræði geti fullorðnir Íslendingar fækkað tannskemmdum stórlega og sparað þannig umtalsverðar fjárhæðir í viðgerðarkostnað.

Lesa meira
 

Heilsuáætlun Evrópusambandsins - opnað fyrir styrkumsóknir - 7.3.2011

Health programme. Smellið á mynd til að opna vefsíðu fyrir heilsuáætlunina.

Opnað hefur verið fyrir nýjar styrkumsóknir vegna heilsuáætlunar Evrópusambandsins og er opið fyrir umsóknir til 27. maí n.k. Önnur heilsuáætlun ESB tók gildi 1. janúar 2008 og gildir í sex ár, eða til ársins 2013. Fjármagn sem er til ráðstöfunar vegna áætlunarinnar er 321,5 milljónir Evra á tímabilinu en því er ætlað að fjármagna samstarfsverkefni og aðgerðir sem stuðla að samstöðu og hagsæld innan ESB-landa.

Lesa meira
 

Heilsa og líðan Íslendinga 2007 - 3.3.2011

Heilsa og líðan Íslandinga 2007: Framkvæmdaskýrsla. Smellið á mynd til að opna skýrsluna.Á vef Lýðheilsustöðvar er komin út skýrslan Heilsa og líðan Íslendinga 2007: Framkvæmdaskýrsla. Rannsóknin ,,Heilsa og líðan Íslendinga" byggir á póstkönnun sem var send til tæplega 10.000 Íslendinga á aldrinum 18–79 ára í lok október 2007. Skýrslan er öllum opin á vefsvæði rannsóknarinnar. Þess má geta að fjallað verður um rannsóknina, sem og framhaldsrannsókn árið 2009, í þættinum Vísindi og nýsköpun í Sjónvarpinu 7. mars n.k.

Lesa meira
 

Verðlaun fyrir besta barnaefnið á netinu - 17.2.2011

Verðlaun voru veitt í Evrópusamkeppni um besta barnaefnið á netinu á alþjóðlega netöryggisdeginum, 8. febrúar síðastliðinn, og hlaut myndin ,,Hugsaðu áður en þú sendir" verðlaun í flokki ungs fólks og vefur Námsgagnastofnunar í flokki fullorðinna.

Lesa meira
 

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2011 - 31.1.2011

orugg_netnotkunAlþjóðlegi netöruyggisdagurinn er 8. febrúar og af því tilefni verður haldin ráðstefna um öryggi á netinu. Erlendir og innlendir sérfræðingar flytja erindi og að þessu sinni er lögð áhersla á stefnumótun, þróun og tækifæri á vettvangi veraldarvefsins.

Lýðheilsustöð er virkur þátttakandi í SAFT verkefninu, sem Heimili og skóli stýrir, en það er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB.

Lesa meira
 

10. Norræna lýðheilsuráðstefnan - haldin í Finnlandi 24.-26. ágúst - 24.1.2011

10. Norræna lýðheilsuráðstefnan. Smellið á mynd til að opna vefsíðu ráðstefnunnarNæsta norræna lýðheilsuráðstefna verður haldin í Turku í Finnlandi í ágústmánuði. Aðalþema ráðstefnunnar að þessu sinni er „Health promotion at a system level - How does the Nordic welfare model cope with today's challenges?“
Óskað er eftir að þeir sem ætla að senda inn „abstract“ geri það fyrir 1. mars n.k.

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica