Sími : 5 800 900

Lýðheilsustöð

Sameiningin frestast - 30.12.2010

HJH_Vetrarmynd_02_Minni

Á árinu 2010 hefur starfsfólk Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar búið sig undir sameiningu stofnananna tveggja sem gert var ráð fyrir að tæki gildi nú við áramót þann 1. janúar 2011.

Lesa meira
 

Áhrif kreppunnar á heilsu og líðan landsmanna - 6.12.2010

Mynd_2009-06-17_1024Lýðheilsustöð, ásamt samstarfsaðilum, hefur staðið fyrir rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga, sem fyrst var gerð árið 2007 og síðan framhaldsrannsókn að hausti 2009. Töluvert er verið að vinna úr rannsóknagögnunum, bæði á vegum stöðvarinnar og annarra sem til þess hafa fengið leyfi, og á fræðadögum heilsugæslunnar sem fram fóru 19. nóvember sl., var flutt erindi um áhrif kreppunnar á heilsu og líðan Íslendinga.

Lesa meira
 

Egilsstaðaskóli er formlegur heilsueflandi grunnskóli - 2.12.2010

Veggspjald fyrir heilsueflandi Egilsstaðaskóla.Lýðheilsustöð vinnur að því með grunnskólum landsins að þeir starfi í anda „heilsueflandi grunnskóla“, sem m.a. byggir á verkefninu Schools for Health in Europe. Nú er Egilsstaðaskóli orðinn fyrsti formlegi heilsueflandi grunnskóli landsins og var því fagnað á sérstakri heilsuhátíð í skólanum fyrir skömmu.

Lesa meira
 

Lagafrumvarp vegna nýrrar stofnunar lagt fram á Alþingi - 17.11.2010

Althingishusid_bakÁ þingfundi 16. nóvember var lagt fram til 1. umræðu lagafrumvarp heilbrigðismálaráðherra vegna sameiningar Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins. Áætlað er að stofnanirnar verði sameinaðar 1. janúar 2011 og við sameiningunni verður til ný stofnun; embætti landlæknis og lýðheilsu.

Lesa meira
 

Nýr samningur um heilsueflingu í framhaldsskólum - 4.10.2010

Flensborg_2010_10_01_11_47_57MUndirritaður hefur verið nýr samningur um heilsueflingu í framhaldsskólum milli Lýðheilsustöðvar, heilbrigðisráðuneytisins, menntamálaráðuneytisins, samtaka framhaldsskólanemenda, Félags íslenskra framhaldsskóla og Ráðgjafanefndar um æskulýðsrannsóknir. Undirritunin fór fram í Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1.10.10 en á sama tíma fóru fram mikil hátíðarhöld í skólanum, m.a. vegna þess að skólinn telst nú forystuskóli heilsueflandi framhaldsskóla.

Lesa meira
 

Flensborg Heilsueflandi framhaldsskóli - 30.9.2010

Heilsueflandi framhaldsskóli. Smellið á merki til að opna síðu verkefnisins

Eitt af verkefnum Lýðheilsustöðvar er að vinna með framhaldsskólum landsins að velferð og góðri heilsu framhaldsskólanema undir heitinu Heilsueflandi framhaldsskólar. Á morgun verða hátíðarhöld í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði í tilefni afþví að skólinn er fyrsti formlegi heilsueflandi framhaldsskóli landsins.  

Lesa meira
 

Kyrrðarstund og kertafleyting til minningar um þá sem fallið hafa frá fyrir eigin hendi - 10.9.2010

Domkirkjan1B_1000Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni föstudaginn 10. september 2010, kl. 20:00 – 20:30, á vegum þjóðkirkjunnar, Landlæknisembættisins, geðsviðs Landspítala, Geðhjálpar og Hugarafls.

Lesa meira
 

Heilsuskilaboð Lýðheilsustöðvar á mjólkurfernum - 7.9.2010

Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, og Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar. Smellið á mynd til að stækka. Lýðheilsustöð og Mjólkursamsalan hafa tekið höndum saman um að koma á framfæri ábendingum um heilsuna. Þetta er gert með því að birta heilsuskilaboð frá Lýðheilsustöð á mjólkurfernum og daglega munu því skilaboð Lýðheilsustöðvar rata inn á nánast hvert heimili landsins. Lesa meira
 

Heilsuverndarstöðin hýsir nýju stofnunina - 2.9.2010

Heilsuverndarstödin. smellið á mynd til að stækkaÁkveðið hefur verið að ganga til samninga við eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47, um leigu á hluta af húsnæðinu fyrir nýja stofnun, sem verður til við sameiningu Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins.

Lesa meira
 

Vel heppnaðir starfsdagar - 19.8.2010

Starfsdagar2010-075++

Að baki eru nú tveir afar vel heppnaðir Heilsuskolar_taknAAA_150starfsdagar sem Lýðheilsustöð gekkst fyrir um Heilsueflandi grunnskóla. Þátttakendur voru á þriðja hundrað frá meira en 30 skólum. Það var Víkurskóli í Grafarvogi sem hýsti starfsdaga Lýðheilsustöðvar af myndarskap og mikilli hjálpsemi.

Lesa meira
 

Starfsdagar fyrir heilsueflandi grunnskóla - Dagskrá - 11.8.2010

Skólamynd

Lýðheilsustöð gengst fyrir starfsdögum fyrir kennara og starfsfólk grunnskóla um heilsueflandi grunnskóla, dagana 17. og 18 ágúst n.k. í Víkurskóla í Grafarvogi.

Lesa meira
 

Götuhátíð Jafningjafræðslunnar - 14.7.2010

Jafningjafraedslan_gotuhatid_2010_A

Jafningjafræðslan og stuðningsaðilar bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð á Austurvelli föstudaginn 16. júlí frá kl. 14:00. Þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

SAMAN í sólinni í sumar - 2.7.2010

Sumardagur_i_Nautholsvik

Foreldrar eru hvattir til að njóta sumarsins með börnunum sínum og unglingum og verja tímanum saman. Sumarið einkennist oft af útilegum, útihátíðum og sumarbústaðaferðum, en mikilvægt er að foreldrar hafi í huga að börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki erindi í slíkar ferðir eftirlitslaus. Söfnum góðum minningum í sumar - SAMAN í sólinni.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Könnun á notkun vefsíðu Lýðheilsustöðvar - 29.6.2010

Notendur vefsíðu Lýðheilsustöðvar gætu orðið varir við það á næstu vikum að gluggi birtist á síðunni þar sem þeir eru beðnir að svara nokkrum spurningum um vefsíðuna. Með þessari könnun er verið að búa í haginn til að gera vefsíðuna enn betri og bæta við efni sem notendum finnst vanta. Það væri Lýðheilsustöð mikils virði að sem flestir tækju þátt því þannig getum við sameiginlega mótað góðan og notadrjúgan vef til framtíðar.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Ánægja með lög um að börnum sé bannað að fara í ljósbekki - 16.6.2010

Verum klár í sólinni. Smellið á myndina til að stækka og prenta út.

Lýðheilsustöð lýsir yfir ánægju sinni með að lög um bann við ljósabekkjanotkun barna hafi náð fram að ganga. Stöðin hefur í samstarfi við fleiri unnið að því á undanförnum árum að vara við skaðlegum áhrifum sólargeisla á húðina, ekki síst barna.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Forsetafrúr í heimsókn - 10.6.2010

1Heimsokn_10Jun2010-061B

Hluti af opinberri heimsókn forseta Eistlands til Íslands er sérstök dagskrá fyrir forsetafrúnna. Hún hafði óskað eftir að fá kynna sér lýðheilsustarf, ekki síst það sem snýr að því að draga úr ofþyngd sem og vímuvörnum. Rétt fyrir hádegi í dag komu því í heimsókn til Lýðheilsustöðvar forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff og Evelin Ilves, forsetafrú Eistlands, ásamt fríðu föruneyti.

Lesa meira
 

Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga! - 26.5.2010

Hættu að hanga. Smellið á mynd til að stækka.

Allir þurfa að hreyfa sig daglega, eftir bestu getu, og sumir þurfa meiri hvatningu til þess en aðrir. UMFÍ er að hleypa af stokkunum skemmtilegu og hvetjandi hreyfingarverkefni sem þeir nefna ,,Hættu að hanga - komdu að hjóla, synda og ganga". Lýðheilsustöð styður verkefnið en það hefst formlega með fjölskyldudegi 5. júní á Miðfelli í Hrunamannahreppi. 

Lesa meira
 

Eldgosið í Eyjafjallajökli – hvað ber að hafa í huga - 16.4.2010

mynd_20100417_1000


Lýðheilsustöð beinir því til landsmanna að fylgjast vel með ábendingum opinberra aðila um hvað beri að gera í aðstæðum eins og þeim sem skapast hafa vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Lesa meira
 

Er hlutfall barna yfir kjörþyngd hætt að aukast? - 16.4.2010

Undanfarin misseri hefur víða verið rætt um líkamsþyngd grunnskólabarna. Í slíkri umræðu er mikilvægt að tekið sé mið af bestu fáanlegu upplýsingum á hverjum tíma en nokkuð hefur borið á ónákvæmni í meðferð bæði talna og hugtaka. Lýðheilsustöð og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hafa tekið saman upplýsingar og gefið út í skýrslunni ,,Líkamsþyngd barna á höfuðborgargsvæðinu - Er hlutfall barna yfir kjörþyngd hætt að aukast?" þar sem komið er á framfæri nýjum tölum og stuttri útlistun á lykilhugtökum sem notuð eru um líkamsþyngd barna.

Lesa meira
 

Skólaþing Lýðheilsustöðvar - eflt samstarf heilbrigðis- og skólastofnana - 12.4.2010

Img_2010-04-09_11-58-00Skólaþing Lýðheilsustöðvar, 9. apríl, var mjög vel sótt og almenn ánægja með það efni sem þar kom fram. Fyrirlestrar, ásamt hljóðskrám, hafa nú verið settir á vefsíðuna.





Lesa meira
 

Skólaþing Lýðheilsustöðvar 9. apríl - 31.3.2010

Skólaþing Lýðheilsustöðvar um heilsueflandi skólaLýðheilsustöð, í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir öðru skólaþingi sínu þann 9. apríl n.k. Þingið er haldið í Rúgbrauðsgerðínni og er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Lesa meira
 

Sameining Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins undirbúin - 10.3.2010

Undirbúningur fyrir sameiningu Lýðheilsustöðvar og landlæknisembættisins er hafinn. Stefnt er að því ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2011.

Lesa meira
 

Ungt fólk á ekki að fara í ljósabekki - 3.3.2010

Þessa dagana er átak í að benda á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki og er því einkum beint að fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra. Skilaboðin, undir slagorðinu Hættan er ljós, eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Krabbameinsfélaginu, Landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð. Viðhorfskönnun til banns við ljósabekkjanotkun ungmenna sýnir að mikill meirihluti er með slíku banni.

Lesa meira
 

,,Hugsaðu áður en þú sendir" - Alþjóðlegi netöryggisdagurinn - 3.2.2010

Í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginu, 9. febrúar, verður haldið opið málþing undir yfirskriftinni ,,Hugsaðu áður en þú sendir" í Skriðu, aðalbyggingu menntavísindasviðs HÍ, við Stakkahlíð. Þar munu bæði sérfræðingar og talsmenn ungs fólks munu fjalla um örugga netnotkun út frá ýmsum sjónarhornum, undir styrkri stjórn Páls Óskars Hjálmtýssonar. Þingið er á vegum SAFT-verkefnisins sem Lýðheilsustöð er virkur þátttakandi í.

Lesa meira
 

Nýr forstjóri Lýðheilsustöðvar - 22.1.2010

Margrét Björnsdóttir. Smellið á mynd til að stækka

Heilbrigðisráðherra hefur sett Margréti Björnsdóttur, hjúkrunarfræðing, forstjóra Lýðheilsustöðvar frá 1. janúar til 31. ágúst 2010 en hún hefur verið starfandi forstjóri frá 9. nóvember sl. í orlofi fyrrverandi forstjóra. Margrét hefur undanfarin ár starfað í heilbrigðisráðuneytinu sem deildarstjóri og skrifstofustjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála í ráðuneytinu.

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica