Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Til hvers nota börnin netið? - Niðurstöður könnunar SAFT

11.12.2009

Tölvu- og netnotkun barna og unglinga hér á landi er mikil og unga fólkið ver miklum tíma fyrir framan tölvuskjáinn. Á vegum SAFT-verkefnisins var netnotkun unga fólksins könnuð sem og hversu mikið foreldrar vissu um notkun barna sinna. Flestir foreldrar vita nokkuð vel hvað unga fólkið hefur fyrir stafni fyrir framan tölvuskjáinn en ástæða er til að hvetja allra foreldra að vera vakandi fyrir tölvunotkun barna sinna.  

Yfirlit

 

Börn nota netið helst til að vera í leikjum

Eitt af stærstu viðfangsefnum SAFT[1] verkefnisins er að kortleggja notkun barna og unglinga á netinu og öðrum skyldum miðlum. Árið 2003 og 2007 voru gerðar  yfirgripsmiklar kannanir á netnotkun íslenskra barna og unglinga á aldrinum 9 til 16 ára. Sambærileg könnun var gerð aftur nú  fyrri hluta ársins 2009 í samstarfi Heimilis og skóla, Capacent Gallup og Lýðheilsustöðvar. Megináherslan var áfram á netnotkun barna og unglinga á aldrinum 9 til 16 ára, að viðbættum sérstökum köflum um farsíma- og tölvuleikjanotkun. Líkt og áður voru lagðar spurningar fyrir bæði börn og foreldra.

 

Tölvu- og netleikir og gott aðgengi að ýmiss konar myndefni eru orðnir sjálfsagðir hlutir í lífi barna og því þurfa foreldrar að fylgjast vel með, bæði hvað varðar tíma og gæði. Flest barnanna í SAFT könnuninni 2009, eða 77%, sögðust vera í leikjum á netinu þegar þau voru spurð að því hvað þau gerðu helst á netinu.

 

Sp. Hvað gerir þú á Internetinu?

 

Þróun

Saft könnun, 1. Smellið á mynd til að stækka. 

 

Þegar foreldrar voru spurðir hvað þeir teldu að barnið sitt gerði á netinu þá nefndu tæp 66% að barnið spilaði tölvuleiki á netinu, tæp 30% að það sendi skilaboð á MSN/Skype, tæplega 29% töldu að barnið notaði netið við heimavinnu og 14% að það notaði netið til að skoða heimasíður/blog/Facebook/Myspace. Mun fleiri foreldrar gera sér nú grein fyrir að börnin nota netið mest til að vera í leikjum þó þeir vanmeti aðeins notkunina.

 

Sp. Hvað telja foreldrar að börn sín geri í netinu?

Saft könnun, 2. Smellið á mynd til að stækka. 

 

Rúmur helmingur barna, eða 55%, spilar tölvuleiki á netinu að jafnaði í minna en klukkustund þegar þau spila en 31% eyðir um 1 til 2 klukkustundum í tölvuleiki á netinu þegar spilað er.

 

Sp. Þegar þú spilar tölvuleiki á netinu, hversu lengi spilar þú að jafnaði?

 saft könnun, 3. Smellið á mynd til að stækka.

 

Þekking foreldra á þeim leikjum sem börn spila á netinu hefur aukist lítillega frá síðustu könnun og töluvert frá upphafi. Því virðist vera um jákvæða þróun að ræða í þeim efnum.

 

Sp. Hvað þekka foreldrar þínar mikið til leikjanna sem þú spilar?

 Saft könnun, 4. Smellið á mynd til að stækka

 

Flest börn spila ein þegar þau eru í leikjum á netinu, eða 66,4%. Um 26% spila leiki með fjölskyldu og vinum í sama herbergi en 24,2% með fjölskyldu og vinum á netinu. Breyting er lítil á milli kannana.

 

Sp. Við hvern leikur þú þegar þú ert í leikjum á netinu?

 

    

 saft könnun, 5. Smellið á mynd til að stækka. Saft könnun, 6. Smellið á mynd til að stækka.  

  

Foreldrar setja í auknum mæli reglur varðandi tölvunotkun barna. Um 51% foreldra segjast hafa frekar mikið eftirlit með tölvuleikjanotkun barnsins og um 28% segjast hafa mjög mikið eftirlit með tölvuleikjanotkun þess.  Hlutfall þeirra sem segjast hafa mikið eftirlit með tölvuleikjanotkun barnsins hefur þó lækkað um tæplega 10 prósentustig frá því árið 2007. Að sama skapi  er hlutfall þeirra sem hafa frekar mikið eftirlit með tölvuleikjanotkun   6 prósentustigum hærra en árið 2007. Þeim sem hafa ekki mikið eftirlit hefur þó fjölgað frá því í síðustu könnun 2007.

 

Sp. Foreldrakönnun: Vinsamlegast tilgreindu hvort þú hafir mikið eftirlit, ekki mikið eftirlit eða ekkert eftirlit með tölvuleikjanotkun barnsins?

Saft könnun, 7. Smellið á mynd til að stækka 

 

Niðurstöður könnunarinnar, ítarleg greining og samanburður milli ára verða kynnt á næstu vikum og skýrslan gerð aðgengileg á vef SAFT (www.saft.is) í desember 2009.


[1] SAFT - Samfélag, fjölskylda og tækni, er vakningarátak um örugga og jákvæða netnotkun barna og unglinga á Íslandi. Verkefnið er unnið innan aðgerðaáætlunar Evrópusambandsins um aukið öryggi á netinu. SAFT er í nánu samstarfi við önnur lönd í Evrópu sem eru aðilar að aðgerðaráætluninni. Hver þjóð vinnur í sínu landi og á sínum forsendum en samstarf þjóðanna felst fyrst og fremst í að deila þekkingu og aðferðafræði þannig að til verði sameiginlegur brunnur fróðleiks og þekkingar um hvernig best er að vinna að öruggri og jákvæðri notkun barna og unglinga á netinu og öðrum nýmiðlum. Nánar um verkefnið á www.saft.is. 

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica