Sími : 5 800 900

Lýðheilsustöð

Til hvers nota börnin netið? - Niðurstöður könnunar SAFT - 11.12.2009

Tölvu- og netnotkun barna og unglinga hér á landi er mikil og unga fólkið ver miklum tíma fyrir framan tölvuskjáinn. Á vegum SAFT-verkefnisins var netnotkun unga fólksins könnuð sem og hversu mikið foreldrar vissu um notkun barna sinna. Flestir foreldrar vita nokkuð vel hvað unga fólkið hefur fyrir stafni fyrir framan tölvuskjáinn en ástæða er til að hvetja allra foreldra að vera vakandi fyrir tölvunotkun barna sinna.  

Lesa meira
 

Nýr heilsuvefur
- efni frá fagfólki fyrir börn, unglinga og foreldra
- 30.11.2009

Börn úr Fellaskóla opna vefsíðuna. Smellið á mynd til að stækka

Börn úr Fellaskóla opnuðu formlega nýja heilsuvefinn http://www.6h.is/. Opnunarathöfnin fór fram á Grand hóteli föstudaginn 27. nóvember. Nafnið á vefnum vísar til fræðsluefnisins 6 H heilsunnar sem er fróðleikur frá fagfólki fyrir börn, unglinga og foreldra.

Lesa meira
 

Áhugahvetjandi samtalstækni - að breyta lifnaðarháttum - 23.11.2009

Lýðheilsustöð býður fagfólki á vegum heilsugæslunnar á námskeið í áhugahvetjandi samtalstækni mánudaginn 4. desember n.k. Á námskeiðinu verður einnig kynnt ný vefsíða með kennsluefni um samtalstæknina.

Lesa meira
 

Heilsa og líðan Íslendinga - 6.11.2009

HL09

Lýðheilsustöð ásamt samstarfsaðilum stendur um þessar mundir að rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga, Framhaldsrannsókn 2009. Rannsóknin er viðamikil spurningalistakönnun á heilsu, líðan og velferð fullorðinna Íslendinga og er unnin í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, Landlæknisembættið, Landspítalann og Vinnueftirlitið, auk sérfræðinga hjá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík.

Lesa meira
 

Fjölmiðlar og lýðheilsa - 16.10.2009

Fjölmiðlar hafa mikil áhrif á opinbera umræðu og eru oft nefndir fjórða valdið, líklega ekki að ástæðulausu. Félagsfræðingafélag Íslands, í samvinnu við Lýðheilsustöð, standa fyrir málþingi um fjölmiðla og lýðheilsu eftir hádegi þriðjudaginn 20. október á Hótel Sögu. Yfirskrift málþingsins er: Getur umfjöllun fjölmiðla skaðað velferð fólks?

Lesa meira
 

Velferð á tímum efnahagsþrenginga - ráðstefna - 13.10.2009

Dagskrá. Smellið á myndina til að stækka.

 

Lýðheilsustöð kemur ásamt fleirum að ráðstefnunni Velferð á tímum efnahagsþrenginga - ,,Welfare in times of crises" - sem Norræna ráðherranefndin styrkir. Fjallað verður um efni eins og áhrif efnahagsþrenginga á heilsu og líðan þjóðar og reynslu annarra Norðurlandaþjóða af slíkum þrengingum. Ráðstefnan er haldin á Hótel Sögu, 21. október og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Hægt er að fylgjast með ráðstefnunni beint í gegnum vefinn.
Smellið hér til að sjá ráðstefnuna í heild sinni

Lesa meira
 

Rannsókn Lýðheilsustöðvar í sjónvarpsþætti um vísindi - 29.9.2009

Rannsókn Lýðheilsustöðvar á hamingju Íslendinga verða gerða skil á lifandi og áhugaverðan hátt í fyrsta þætti nýrrar sjónvarpsþáttaraðar um nýsköpun og íslensk vísindi. Þátturinn verður sýndur í Sjónvarpinu fimmtudaginn 1. október nk. Lesa meira
 

Íslendingar ennþá hamingjusöm þjóð, þrátt fyrir kreppu - niðurstöður nýrrar rannsóknar - 19.8.2009

Á ýmsan hátt hefur verið unnið að því að kanna áhrif breytts efnhagsástands á Íslandi á landsmenn, einkum ungt fólk. Einnig að koma með tillögur að aðgerðum til að sporna gegn óæskilegum áhrifum efnahagsástandsins. Á ráðstefnu sem haldin var 17. ágúst sl. kom fram að þrátt fyrir allt teljast Íslendingar ennþá hamingjusöm þjóð. Lesa meira
 

Velferð íslenskra barna - sóknarfæri á umbrotatímum - 10.8.2009

Velferð, börn, 2009Ráðstefnan Velferð íslenskra barna - sóknarfæri á umbrotatímum verður haldin 17. ágúst n.k. í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8. Ráðstefnan er öllum opin en skráningargjald er 2.500 kr. Lesa meira
 

Styrktarsjóður ungs fólks án atvinnu - 16.7.2009

Nú þegar sumarið er rúmlega hálfnað eru nokkur verkefni sem fengu styrk úr sjóðnum í vSíða Styrktarsjóðsinnslu og önnur jafnvel fullkláruð. Það hefur verið einstaklega gaman að lesa um fjölbreyttar hugmyndir í umsóknum ungs fólks og enn skemmtilegra að sjá þær í framkvæmd. Lesa meira
 

Norrænu lýðheilsuverðlaunin afhent - 30.6.2009

Barbro Westerholm, prófessor, hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár fyrir störf sín sem tengjast heilsufari aldraðra á Norðurlöndunum og á Evrópuvettvangi. Barbro Westerholm lauk læknisfræðinámi 1959, varð prófessor 1988 og er hún nú heiðursdoktor við háskólann í Uppsala og heiðursfélagi í sænska læknafélaginu. Lesa meira
 

Styrktarsjóður ungs atvinnulauss fólks - 30.6.2009

styrktarsjóður ungs fólks, smellið á mynd til að opna vefsíðu sjóðsinaUmsóknir hafa verið að berast til Styrktarsjóðs ungs atvinnulauss fólks til að vinna að forvarnaverkefnum í sumar. Eitt verkefni er þegar hafið og önnur um það bil að hefjast. Lýðheilsustöð vonar að sjóðurinn gagnist ungu atvinnulausu fólki um allt land til að vinna að skapandi og áhrifaríkum verkefnum í sumar en næsti umsóknarfrestur er til 10. júlí. Lesa meira
 

,,Höngum saman í sumar!" - 29.6.2009

hongum_saman,_sumar_2009SAMAN hópurinn stendur fyrir átaki með þessari yfirskrift en rannsóknir hafa sýnt að samvera foreldra og barna er ein besta forvörnin. Yfirskriftin ,,að hanga saman“ hefur þá skýrskotun að samveran þarf ekki að kosta neitt, vera skipulögð eða hafa skemmtanagildi. Lesa meira
 

JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI - námskeið Roberts Biswas-Diener í ágúst - 9.6.2009

Lýðheilsustöð og Sálfræðisvið kennslufræði- og lýðheilsudeildar HR, í samstarfi við Opna háskólann, bjóða upp á einstakt 12 klst. námskeið með Robert Biswas-Diener um jákvæða sálfræði (Positive Psychology). Skráning á námskeiðið er hafin. Lesa meira
 

Austurbæjarbíó - Hús unga fólksins - 9.6.2009

Austurbæjarbíó. Smella á mynd til að stækka. Austurbæjarbíó - Hús Unga Fólksins opnar formlega þriðjudagskvöldið 9. júní. Húsið verður miðstöð ungs fólks sem vill virkja krafta sína í hvetjandi umhverfi. Markmið miðstöðvarinnar er að bjóða ungu fólki upp á aðstöðu og aðstoð við framkvæmd hugmynda sinna. Lesa meira
 

Færri nota ljósabekki - 4.5.2009

Samstarfshópur um varnir gegn útfjólublárri geislun hefur árlega fengið Capacent-Gallup til að kanna ljósabekkjanotkun. Nýleg könnun sýnir að sífellt dregur úr notkun þeirra og sérstaka athylgi vekur hversu fáir karlar segjast nota ljósabekki. Lesa meira
 

Rangur texti í auglýsingu Lýðheilsustöðvar - 16.4.2009

Hvað veistu um áfengi? smella á myndina til að skoða bæklinginnNýverið kom út á vegum Lýðheilsustöðvar fræðsluefni fyrir ungt fólk um áfengi og skaðsemi af völdum neyslu þess. Um er að ræða endurskoðaða útgáfu af bæklingnum „Hvað veistu um áfengi?“ sem út kom fyrir nokkrum árum. Úr bæklingnum voru unnin veggspjöld og auglýsingar en ein þeirra, „Ef þú drekkur ekki“, hefur vakið upp hörð viðbrögð ýmissa, einkum vegna orðalags. Við nánari skoðum kom í ljós að rangur texti hafði farið í auglýsinguna og er beðist velvirðingar á því að hann hafi orsakað særindi. Lesa meira
 

Viðurkenning fyrir heilsueflingu á vinnustað - 27.3.2009

Heil og sæl í vinnunni. smellið á merkið til að opna heimasíðu.Heilsueflingarverkefnið Heil og sæl í vinnunni, sem Lýðheilsustöð og Vinnueftirlitið standa að, veitti fjórum fyrirtækjum/skólum viðurkenningu sem fyrirmyndarvinnustaðir, þ.e. Actavis, leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði, Íslandspósti og Snælandsskóla í Kópavogi. Lesa meira
 

Börn og auglýsingabann - RÚV þakkað - 25.3.2009

Stundin_okkarLýðheilsustöð fagnar framtaki RÚV að leyfa ekki lengur birtingar auglýsinga í tengslum við sýningar á barnaefni stöðvarinnar og vonar að aðrir sem birta barnaefni taki RÚV sér þar til fyrirmyndar. Rannsóknir sýna að auglýsingar hafa áhrif á matvælaval barna og foreldra sem og neyslu, einnig að í kringum barnatíma í sjónvarpi á Íslandi voru eingöngu auglýstar óhollar matvörur á borð við sykraða svaladrykki, sykrað morgunkorn, skyndibita, sælgæti og pylsur. Lesa meira
 

Ofbeldi og slys á börnum - Morgunverðarfundur 25. mars - 19.3.2009

Lýðheilsustöð og slysavarnaráð standa fyrir morgunverðarfundi um ofbeldi og slys á börnum, miðvikudaginn 25. mars kl. 8 -10 á Grand Hóteli, Sigtúni. Skráning fer fram á www.lydheilsustod.is/skraning fyrir kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 24. mars. Vinsamlegast merkið „Slysavarnir“.

Þátttökugjald er 2.000 kr. Innifalið í þátttökugjaldi er morgunverðarhlaðborð.

Lesa meira
 

Betri heilsa, hreyfing og hollt mataræði - ráðstefna 18. mars - 9.3.2009

Betri heilsa, hreyfing og hollt mataræði. smellið á mynd til að lesa meira. Norræna nýsköpunarmiðstöðin (Nordic Innovation Centre), í samvinnu við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni, og Lýðheilsustöð býður til ráðstefnunnnar Betri heilsa, hreyfing og hollt mataræði. Ráðstefnan er haldin 18. mars n.k. á Hótel Nordica. Lesa meira
 

Fermingarbörn ættu ekki að fara í ljós - 2.3.2009

Hættan er ljós. smellið á mynd til að stækkaNú þegar fermingar fara í hönd hefst átak sem beinist að fermingarbörnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Lesa meira
 

Styrkumsóknir vegna heilsuáætlunar Evrópusambandsins - 20.2.2009

EAHC_logo_pictureOpnað hefur verið fyrir nýjar styrkumsóknir vegna heilsuáætlunar Evrópusambandsins. Önnur heilsuáætlun ESB tók gildi 1. janúar 2008 og gildir í sex ár,eða til ársins 2013. Fjármagn sem er til ráðstöfunar vegna áætlunarinnar er 321,5 milljónir Evra á tímabilinu en því er ætlað að fjármagna samstarfsverkefni og aðgerðir sem stuðla að samstöðu og hagsæld innan ESB-landa. Lesa meira
 

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn - Rafrænt einelti - 5.2.2009

logo,_saftÍ tilefni að alþjóðlega netöryggisdeginum þriðjudaginn 10. febrúar stendur SAFT fyrir málþingi um rafrænt einelti í Skriðu, Háskóla Íslands, við Stakkahlíð, kl. 14.30 – 16.15.

Lesa meira
 

Gleðilegt nýtt ár! - 1.1.2009

HringurinnLýðheilsustöð óskar landsmönnum velfarnaðar og góðrar heilsu á nýju ári. Hlúum vel að þeim sem okkur þykir vænt um og standa okkur næst! Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica