Sími : 5 800 900

Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð og Heilbrigðisráðherra færa jólahjálpinni Velgengni og vellíðan - 11.12.2008

velgengi_og_vellidan_forsidaFimm milljónir til sameiginlegrar jólahjálpar geta safnast núna fyrir jólin á sama tíma og við hlúum að geðheilsunni.

Forsvarsmenn Lýðheilsustöðvar og heilbrigðisráðherra færðu í dag fulltrúum Hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands bókina Velgengni og vellíðan-um geðorðin 10.

Bókin verður seld án þóknunar þannig að öll innkoma rennur óskipt til sameiginlegu jólahjálparinnar. Fimm milljónir renna til jólahjálparinnar ef allar bækurnar seljast. Bókin var afhent í Rauðakrossbúðinni, Laugavegi 116.

Lesa meira
 

Sálrænn stuðningur við ungt fólk - 24.11.2008

Lýðheilsustöð bendir á samantekt menntamálaráðuneytisins yfir sálrænan stuðning við börn og ungmenni í skólum landsins. Lesa meira
 

Heilsustefna ráðherra kynnt - 19.11.2008

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnti heilsustefnu sína á fundi 18. nóvember. Heilbrigðisráðherra sagði að hún væri liður í því að geta veitt heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Snar þáttur í því væri að leggja stóraukna áherslu á forvarnir á öllum sviðum og stuðla að heilbrigðari lífsháttum einstaklinganna.

Lesa meira
 

Hugum að velferð barna - 8.10.2008

Íslendingar standa nú á miklum tímamótum sem hafa víðtæk áhrif á unga sem aldna. Mikilvægt er að huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum. Lesa meira
 

Aðgát skal höfð - 3.10.2008

Umræða um samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu með beinum afleiðingum fyrir heimili og fyrirtæki er mjög hávær og rökin fyrir henni skýr. Þetta er alvarleg umræða sem snertir unga sem aldna og þar af leiðandi er mikilvægt að vanda orðaval til að valda börnum, ungmennum, veikum og öldruðum ekki óþarfa kvíða. Myndskreytt PDF-skjal með þessum ábendingum. Lesa meira
 

Margir áhugasamir um heilsueflingu á vinnustöðum - 25.9.2008

Fyrirlestrarnir sem fluttir voru á ráðstefnu um heilsueflingu á vinnustöðum, sem Lýðheilsustöð, Vinnueftirlitið og Háskólinn í Reykjavík stóðu að 18. sept. sl., eru nú komnir á vefinn. Ef marka má aðsókn að ráðstefnunni þá er mikill áhugi á málefninu því áætlað er að á milli 160-170 manns hafi sótt hana. Lesa meira
 

Ávinningur heilsueflingar á vinnustöðum - ráðstefna 18. sept. - 11.9.2008

Lýðheilsustöð, Vinnueftirlitið og Háskólinn í Reykjavík standa að ráðstefnu varðandi heilsueflingu á vinnustöðum og ávinning af henni, fimmtudaginn 18. september n.k. Lesa meira
 

JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI - loksins á Íslandi! - 3.9.2008

STYRKLEIKAR – HAMINGJA – HEILSA OG VELLÍÐAN „What would happen if we studied what is right with people?“ Lýðheilsustöð, ásamt fleirum, býður til málstofu og vinnusmiðju um jákvæða sálfræði dagana 11. og 12. september. Lesa meira
 

Þekkingatorg - samstarf um upplýsingamiðlun á heilbrigðissviði - 27.8.2008

Lýðheilsustöð er einn af mörgum samstarfsaðilum um s.k. Þekkingatorg en það er aðgangsstýrð upplýsingamiðlun gagna á heilbrigðissviði. Þekkingatorgi er ætlað að auðvelda allt samstarf og verkefnavinnslu. Lýðheilsustöð hvetur alla sem á þessum vettvangi starfa til að nýta sér þennan aðgengilega miðil.   Lesa meira
 

Foreldrar, unglingar og verslunarmannahelgin - 31.7.2008

fjör í útileguVerslunarmannahelgin er ein stærsta útihátíðahelgin á Íslandi. Fjölmargt og fjölbreytt skemmtanahald freistar ungs fólks og margt þarf að hafa í huga. Lesa meira
 

Verum klár í sólinni - 30.6.2008

Mynd: Verum klár í sólinni. Smellið á myndina til að stækka. Lýðheilsustöð hefur tekið saman nokkur ráð um hvernig hægt er að verja sig gegn geislun sólarinnar. Ráðleggingarnar eru settar upp á léttan og læsilegan hátt á blaði í A4 stærð og því auðvelt að prenta út og hafa við höndina. Lesa meira
 

Fjölþjóðlegar niðurstöður HBSC kynntar - 20.6.2008

Niðurstöður fjölþjóðlegu rannsóknarinnar HBSC - Heilsa og lífskjör skólanema - voru kynntar með viðhöfn á Akureyri 18. júní. Niðurstöðurnar sýna stöðu íslenskra nemenda í samanburði við jafnaldra sína í þátttökulöndunum. Lesa meira
 

Skóli og lýðheilsa - fyrirlestrar komnir á vefinn - 19.5.2008

Hljómsveitin NaflakuskLýðheilsustöð stóð fyrir ráðstefnunni Skóli og lýðheilsa 9. maí s.l. og voru þátttakendur nærri 200 að tölu. Nú hafa fyrirlestrar og erindi frá ráðstefnunni verið sett á hér á vefsíðu Lýðheilsustöðvar. Lesa meira
 

Kynning á fyrstu niðurstöðum könnunar á heilsufari Íslendinga - Sól og sólbruni - - 13.5.2008

Forsida,_heilsufarskonnunLýðheilsustöð og samstarfsaðilar kynntu fyrstu niðurstöður könnunarinnar Heilsa og líðan Íslendinga 2007 þriðjudaginn 13. maí kl 15:00 í húsnæði Sundlauganna í Laugardal. Lesa meira
 

Skóli og lýðheilsa - ráðstefna Lýðheilsustöðvar 9. maí - 28.4.2008

Skóli og lýðheilsa, myndahnappur. Smella á hnappinn til að opna upplýsingasíðu ráðstefnunnar. Lýðheilsustöð stendur fyrir ráðstefnu 9. maí um skóla og lýðheilsu. Fyrirlesarar á ráðstefnunni er bæði innlendir og erlendir og þarna gefst kærkomið tækifæri til að kynnast því starfi sem verið er að vinna á þessum vettvangi, sem og því sem stefnt er að hér á landi. Ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir. Engin ráðstefnugjöld eru. Búið er að loka fyrir skráningu. Lesa meira
 

Heilsuefling á vinnustöðum - 11.4.2008

Nýverið komu út Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum á vegum Vinnueftirlitsins og Lýðheilsustöðvar. Í tilefni af því var efnt til hádegisfundar um heilsueflingu á vinnustöðum miðvikudaginn 16. apríl í Háskólanum í Reykjavík kl. 12-14. Lesa meira
 

Heilsa og líðan Íslendinga 2007 - dregið hefur verið í happdrættinu - 31.3.2008

Þátttaka landsmanna í könnun Lýðheilsustöðvar Heilsa og líðan Íslendinga 2007 var góð og gagnavinnsla er hafin. Með því að taka þátt í könnuninni tóku þátttakendur um leið þátt í happdrætti sem nú hefur verið dregið í. Lesa meira
 

Varað við ljósabekkjanotkun fermingarbarna - 5.3.2008

Hættan er ljós, auglýsingHættan er ljós nefnist átak sem beinist að fermingarbörnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Lesa meira
 

Skilafrestur á rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga 2007 - 1.2.2008

Heilsufarskönnun, auglýsingEftir mjög góðar viðtökur hjá landsmönnum sem valdir voru til þátttöku í rannsókninni hefur verið ákveðið að framlengja skilafresti til að enn fleiri sjái sér fært að skila inn útfylltum spurningalistum. Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica