Beint í leiðarkerfi vefsins.
Verkefni Lýðheilsustöðvar: Allt hefur áhrif – einkum við sjálf hefur fengið viðurkenningu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO Counteracting Obesity Award – fyrir lýðheilsustarf sem styður við aðgerðir sveitarfélaga til að efla lýðheilsu með bættri næringu og aukinni hreyfingu sem eru liðir í að sporna gegn vaxandi offitu þjóðarinnar.
Árleg evrópsk vinnuverndarvika stendur nú yfir. Í ár er vinnuverndarvikan helguð ungu fólki og er yfirskrift hennar Örugg frá upphafi. Af þessu tilefni stendur Vinnueftirlitið fyrir morgunverðarfundi á Grand Hóteli, þriðjudaginn 24. okóber, þar sem flutt verða erindi um vinnuaðstæður og vinnuslys ungs starfsfólks.
Lesa meira
Í fjölmiðlum undanfarið hefur mikið verið rætt um eftirlitslausa unglinga á
bæjarhátíðum og tjaldstæðum víða um land. Nú þegar líður að verslunarmannahelgi nær þessi umræða hámarki og er sérstaklega talað um þátt foreldra. Sjálfræðisaldurinn er við 18 ára aldur og því hefur verið talað um 18 ára ábyrgð í þessu sambandi. Sú ábyrgð gildir alltaf og fer ekki í sumar- eða helgarfrí.
Lesa meira
nota tóbak, drekka áfengi, neyta ólöglegra vímuefna eða aka undir áhrifum og langt yfir löglegum hraða. Viðburðir eins og 17. júní skapa sérstaka hættu. Þessa dagana og mánuði eru ýmsir aðilar að birta skilaboð til að minna á þetta - og þeirra á meðal eru Lýðheilsustöð og SAMAN-hópurinn.
Lesa meira
Þessa dagana er verið að senda foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna póstkort þar sem bent er á hætturnar sem fylgja því að ungt fólk fari í ljósabekki. Skilaboðin á kortinu eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Landlæknisembættinu og Krabbameinsfélaginu. Þetta er þriðja árið sem þessir aðilar standa saman að fræðsluherferð undir slagorðinu „Hættan er ljós“.
Hinn 10. mars undirrituðu þær Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, og Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, viljayfirlýsingu þar sem lýst er yfir vilja til samstarfs um rannsóknir og fræðsluverkefni á sviði lýðheilsu. Markmið samstarfsins er að efla lýðheilsurannsóknir og fræðslu í landinu með það að leiðarljósi að bæta heilsu og líðan landsmanna.
Lesa meira
einkum við sjálf! fer fram á Hótel Nordica föstudaginn 27. janúar. Allt hefur áhrif-verkefnið hófst formlega haustið 2005 en Lýðheilsustöð hefur unnið að undirbúningi þess frá árinu 2004, m.a. með því að fá sveitarfélög um allt land til samstarfs. Verkefnið hefur það að markmiði efla og bæta næringu og hreyfingu barna og ungmenna sem og fjölskyldunnar í heild.
Lesa meira
Sigurlaug Jónasdóttir og Leifur Hauksson umsjónarmenn þáttarins heimsóttu Lýðheilsustöð föstudaginn 6. janúar kl. 11-12.
Lesa meira
Lýðheilsustöð óskar þess að nýtt ár verði landsmönnum öllum gleðilegt og árangursríkt - ekki síst hvað heilsuna varðar!
Lesa meira