Sími : 5 800 900

Lýðheilsustöð

Auglýsingar og áfengisneysla - 26.11.2005

Auglýsingar á léttöli og bjórneysla - þversagnir á íslenskum auglýsingamarkaði er heitið á fyrirlestri sem Stefán Hrafn Jónsson, félags- og lýðfræðingur og verkefnastjóri á rannsóknasviði Lýðheilsustöðvar flutti á morgunverðarfundi hjá Náum áttum - hópnum. Fyrirlesturinn hefur vakið þó nokkra athygli og þeir sem vilja kynna sér efni hans geta gert það hér á síðunni.

Lesa meira
 

Birtingar á áfengisauglýsingum á Íslandi - 27.10.2005

Lýðheilsustöð hefur látið taka saman tvær skýrslur yfir auglýsingar, kynningar og umfjöllun um áfengi og léttöl í íslenskum prentmiðlum. Lesa meira
 

Togast á forvarnarstarf og markaðsöflin? - 27.10.2005

Eins og fram kom í máli Þórodds Bjarnasonar, prófessors við Háskólann á Akureyri, í sjónvarpsfréttum ríkisútvarpsins í gærkvöldi sýna ESPAD-rannsóknir (The European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs) þá ánægjulegu þróun á Íslandi að áfengisneysla 10. bekkinga grunnskóla hefur verið að minnka á síðustu 8 árum. Við nánari skoðun þessara rannsóknagagna kemur þó í ljós að þeir nemendur í 10. bekk, sem á annað borð drekka, drekka nú meira áfengi en nemendur í 10. bekk hafa áður gert. Þetta kallar fram ýmsar spurningar og áhyggjur okkar sem störfum að forvörnum og heilsueflingu. Gögnin sýna ennfremur að það er fyrst og fremst neysla bjórs sem hefur vaxið.

Lesa meira

 

Fæðingarstærð barna tengd lýsisneyslu kvenna á fyrri hluta á meðgöngu - 20.10.2005

Nýlega birtist grein um samband fæðingarstærðar barna og lýsisneyslu verðandi mæðra snemma á meðgöngu í tímaritinu British Journal of Obstetrics and Gynaecology. Niðurstöðurnar eru hluti af stóru samvinnuverkefni Lýðheilsustöðvar, Lífeðlisfræðistofnunar Háskóla Íslands og Miðstöðvar Mæðraverndar og verkefnið hefur verið styrkt af Rannís, Rannsóknarsjóði HÍ, Heilsugæslunni í Reykjavík og Áfengis og vímuvarnarráði. Lesa meira
 

Fyrirlestrar frá 8. norrænu lýðheilsuráðstefnunni - 17.10.2005

Þátttakendur á 8. norrænu lýðheilsuráðstefnunni, sem haldin var á Nordica hóteli dagana 9. - 11. október, voru um 250 að tölu. Ráðstefnan þótti takast mjög vel og mörg áhugaverð erindu voru þar flutt. Flestir fyrirlestrarnir eru nú aðgengilegir á heimasíðu ráðstefnunnar www.publichealth.is/nph2005 Lesa meira
 

8. norræna lýðheilsuráðstefnan hefst á sunnudaginn - 7.10.2005

Nú er í fyrsta sinn haldin á Íslandi Norræna lýðheilsuráðstefnan en þetta er sú áttunda í röðinni. Ráðstefnan er haldin á Nordica hóteli og hefst sunnudaginn 9. október og stendur til þriðjudagskvölds 11. október. Ráðstefnugestir eru um 250 að tölu. Lesa meira
 

Lýðheilsuáætlun Evrópusambandsins og verkefnstyrkir henni tengdir - Gögn frá kynningarfundinum 23. september - 21.9.2005

Föstudaginn 23. september, kl. 13:00 – 17:00, fór fram á Grand hóteli, Sigtúni 38, Reykjavík, kynningarfundur á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Lýðheilsustöðvar þar sem kynnt var lýðheilsuáætlun Evrópsambandsins og verkefnastyrkir henni tengdir. Á fundinum var einnig sagt frá öðrum styrkjasjóðum, umsóknarferli og verkefnum sem þegar hafa verið styrkt. Erlendir sérfræðingar komu sérstaklega til landsins til að flytja um þetta erindi á fundinum, auk þess sem innlendir aðilar fjölluðu um málið frá ýmsum hliðum.
Gögn sem kynnt voru á fundinum eru aðgengileg hér á síðunni.

Lesa meira
 

1. september - útivistartími barna breytist - 1.9.2005

Vert er að hafa í huga að frá og með 1. september breytist útivistartími barna þannig að nú mega 12 ára börn og yngri ekki vera lengur ein úti en til kl. 20. Og þau sem eru á aldrinum 13-16 ára mega ekki vera lengur úti en til kl. 22. Lesa meira
 

Norræn lýðheilusráðstefna á Íslandi - 27.6.2005

Dagana 9.-11. október 2005 verður haldin á Íslandi 8. norræna lýðheilsuráðstefnan. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Lýðheilsa – sameiginleg ábyrgð“. Ráðstefnan mun fara fram á ensku en fyrirlesarar og stýrendur vinnusmiðja eru frá Norðurlöndunum og Kanada. Þeir komu úr mismunandi starfsstéttum en starfa allir á einn eða annan hátt að lýðheilsumálum. Ráðstefnan veitir því mikilvægt tækifæri til að kynnast því helsta og nýjasta sem er að gerast í þessum málum hér heima og í nágrannalöndunum.

Lesa meira

 

Námsstefna um offitu barna - 22.6.2005

Námsstefna um offitu barna, meðferðarúrræði og forvarnir, verður haldin dagana 13. og 14. júní 2006, þ.e. dagana á undan ,,Nordic Obesity Meeting" fundinum sem haldinn verður á Grand hóteli 15. og 16. júni. Dagskrá námstefnunnar verður auglýst síðar. Lesa meira
 

Fyrsti ársfundur Lýðheilsustöðvar - úthlutun úr Forvarnasjóði - 27.5.2005

Árið 2004 var fyrsta heila starfsár Lýðheilsustöðvar og fyrsti ársfundur stöðvarinnar var haldinn 27. maí. Í tilefni af ársfundinum var gefin út fyrsta ársskýrsla stöðvarinnar og einnig fór fram úthlutun styrkja úr Forvarnasjóði. Lesa meira
 

Hjólað í vinnuna hófst í dag - 2.5.2005

Það var mikið um að vera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun en þá var átaksverkefnið ,,Hjólað í vinnuna" sett af stað með pompi og prakt. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó BS, og Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, héldu stuttar ræður en Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, endaði fundinn með því að stjórna hópsöng þar sem sungið var ,,Hjólalagið 2005" og var vel tekið undir.

Lesa meira
 

Reglur um útivistartíma gilda líka á sumrin! - 28.4.2005

Lýðheilsustöð vill vekja athyglii foreldra og forráðamanna barna og ungmenna á því að 1. maí breytast reglur, skv. barnaverndarlögum, um útivistartíma barna. Reglurnar segja til um hversu lengi börn mega vera úti án fylgdar fullorðinna - en þýðir ekki það EIGI að vera úti jafnlengi og reglurnar segja. Foreldrar takmarka þann tíma eins og hentar þeim og fjölskyldunni. Lesa meira
 

Ungir drekka meira - eldri draga úr neyslu - 26.4.2005

Íslendingar drekka áfengi mun sjaldnar en aðrir Evrópubúar en eins og í öðrum norrænum löndum drekkur yngra fólkið oftar og meira en eldra fólkið og ölvunardrykkja er hluti af drykkjumynstrinu. Lýðheilsustöð gekkst fyrir könnun á áfengisneyslu Íslendinga í nóvember síðastliðinn og voru helstu niðurstöður hennar kynntar 27.apríl. Tilgangur könnunarinnar var að fá vitneskju um áfengisneyslu og drykkjumunstur einstakra hópa, bæði karla og kvenna eftir aldri og fleiri þáttum. Lesa meira
 

Áfengisala jókst um 6,3% milli áranna 2003-2004 - 20.4.2005

Í Hagtíðindum kemur fram að áfengissala hér á landi jókst um 6,3% milli áranna 2003 og 2004 í lítrum talið, eða úr 19,2 milljónum lítra árið 2003 í 20,4 milljónir lítra árið 2004. Umreiknað til hreins vínanda, alkóhóllítra, er aukningin hlutfallslega ekki eins mikil, eða 4,4%milli ára, úr 1.458 þúsund alkóhóllítrum árið 2003 í 1.523 þúsund alkóhóllítra árið 2004. Salan samsvarar 6,71 alkóhóllítra á hvern íbúa 15 ára og eldri, en var 6,52 alkóhóllítrar á árinu 2003. Sú aukning er 2,9% milli ára, en sambærilegar hækkanir milli ára á þeim mælikvarða hafa verið frá ríflega 2% til ríflega 5% frá árinu 2000.

Lesa meira
 

Formlegt samstarf Lýðheilsustöðvar og Háskólans á Akureyri - 19.4.2005

Mánudaginn 18. apríl undirrituðu Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, samninga um formlegt samstarf Lýðheilsustöðvar og Háskólans á Akureyri um rannsóknir og fræðslu á sviði lýðheilsu. Lesa meira
 

Hávaði í umhverfi barna - 10.3.2005

Hávaði í umhverfi barna getur verið svo mikill að hann valdi heyrnaskaða. Önnur áhrif hávaða geta verið streita, höfuðverkur, truflun á málþroska og námsgetu o.s.frv. Til að vekja umræðu og leita úrræða til bóta verður haldin ráðstefna um þetta vandamál 1. apríl nk. kl 13:00-17:00 í Kiwanishúsinu, Engjateigi 17, Reykjavík. Lesa meira
 

Geðheilbrigðismál sett á oddinn - 4.3.2005

„Það er engin heilsa án geðheilsu“ eru einkunnarorð Geðræktar og á evrópska ráðherrafundinum um geðheilbrigðismál, sem haldinn var í Helsinki í Finnlandi dagana 12.-15. janúar 2005, var undirrituð yfirlýsing um aðgerðir í geðheilbrigðismálum til næstu 5-10 ára sem ættu m.a. að stuðla að því að menn geri sér almennt grein fyrir því að heilsa-geðheilsa eru óaðskiljanlegur hluti af heild.

Lesa meira

 

Alþingi flýti afgreiðslu tóbaksvarnafrumvarpsins - 3.3.2005

Á fundi sínum í dag samþykkti landsnefnd lýðheilsustöðvar að fagna framkomnu frumvarpi um breytingu á lögum um tóbaksvarnir og beina því til Alþingis af hraðað yrði afgreiðslu málsins. Lesa meira
 

Frumvarpinu um breytingar á tóbaksvarnalögum dreift til þingmanna í dag - 17.2.2005

Í morgun var á Alþingi dreift til þingmanna frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 6/2002, um tóbaksvarnir. Flutningsmenn eru Siv Friðleifsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Jónína Bjartmarz og Þuríður Backman. Lesa meira
 

Lýðheilsustöð kærir ekki áfengisauglýsingar - 11.2.2005

Reglulega berast Lýðheilsustöð ábendingar um að verið sé að brjóta lög um auglýsingar á áfengum drykkjum. Slík mál fara í ákveðið ferli innan stöðvarinnar en Lýðheilsustöð kærir ekki birtingu áfengisauglýsinga. Lesa meira
 

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! Nýtt verkefni Lýðheilsustöðvar - 6.1.2005

Lýðheilsustöð er að ýta úr vör þróunarverkefni í samvinnu við sveitarfélög í landinu til að bregðast við þeirri þróun að börn og ungmenni á Íslandi eru að þyngjast.

Lesa meira
 

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! Nýtt verkefni Lýðheilsustöðvar - 6.1.2005

Lýðheilsustöð er að ýta úr vör þróunarverkefni í samvinnu við sveitarfélög í landinu til að bregðast við þeirri þróun að börn og ungmenni á Íslandi eru að þyngjast.

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica