Beint í leiðarkerfi vefsins.
The Insider, dr. Jeffrey Wigand, heldur opinn fyrirlestur um baktjaldamakk tóbaksiðnaðarins á Nordica Hótel, Suðurlandsbraut, föstudaginn 15. október kl. 15.30. Enginn aðgangseyrir.
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn var haldinn hátíðlegur laugardaginn 9. október. Þema dagsins var: Samhliða raskanir - Tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu. Allir landsmenn voru hvattir til að taka þátt í dagskrá dagsins.
Ráðstefnan Loft 2004 var haldin í Hveragerði dagana 16. og 17. september 2004. Ráðstefnuna sóttu um 100 manns, heilbrigðisstarfsfólk og annað áhugafólk um tóbaksvarnir. Í lok ráðstefnunnar var samþykkt svohljóðandi ályktun:
Í fjölmiðlum var greint frá slysi sem átti sér stað laugardaginn 28. ágúst sem varð með þeim hætti að eins árs gamalt stúlkubarn sat í baðvaski þegar 3 ára gamalt barn skrúfaði frá heitavatnskrana með þeim afleiðingum að yngra barnið brenndist illa. Barnið var flutt á Landspítala-háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Frá því er greint í Morgunblaðinu 30. ágúst að dagmóðir hafi bjargað lífi barns. Fram kemur að dagmóðirin hefur sótt skyndihjálparnámskeið og það verður aldrei of oft brýnt fyrir foreldrum né öðrum sem vinna með börnum hversu nauðsynlegt það er að kunna skyndihjálp.
Æ fleiri nota reiðhjól sem aðal farartæki til og frá vinnustað. Betri búnaður og hlífðarföt ásamt batnandi aðstöðu til hjólreiða gera það að verkum að ekkert er því til fyrirstöðu að hjóla allt árið um kring.
Greinarhöfundur á góðu róli Lesa meira
„Í forvörnum eru foreldrar bestir“ er setning sem oft er notuð þegar foreldrar eru hvattir til að vera sérstaklega á verði gagnvart þeim hættum sem steðjað geta að börnum þeirra – ekki síst þegar þau eru komnir á unglingsaldurinn.
Lesa meiraAð gefnu tilefni vilja Lýðheilsustöð-Árvekni, Umhverfisstofnun, Löggildingarstofunun, Umhverfis- og heilbrigðisstofa Reykjavíkur og Rauða Kross Íslands vekja athygli á því að sælgæti og smáhlutir geta verið varasamir fyrir börn.
Lesa meiraÍ rannsókn sem Erik Brynjar Schweitz Eiríksson læknanemi gerði nýlega í samvinnu við Slysaskrá Íslands, landlæknisembættið og fl. kemur fram að fækkað hefur verulega slysum á börnum, á aldrinum 0-4 ára, í heimahúsum og frítíma fjölskyldunnar.
1. júlí 2003 var Lýðheilsustöð stofnuð með lögum. Ákveðið var að minnast 1 árs afmælisins með því að fá Jón Kristjánsson, ráðherra, til að opna formlega heimsíðu Lýðheilsustöðvar.