Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Geðrækt flyst til Lýðheilsustöðvar

3.9.2004

Frá og með 1. september 2004 tekur Lýðheilsustöð að sér Geðræktarverkefnið og hefur árssamkomulag verið gert þar um.

Undirskrift Geðræktarverkefnisins 2.09.04

Frá undirritun samkomulagsins.
F.v. Anna Björg, Lúðvík, Anna Elísabet,
Guðrún og Halldór.

Forstjóri Lýðheilsustöðvar, Anna Elísabet Ólafsdóttir, og fulltrúar framkvæmdaráðs undirrituðu samkomulag um flutninginn, þau Anna Björg Aradóttir, frá Landlæknisembætti, Lúðvík Ólafsson, frá Heilsugæslunni og Halldór Kolbeinsson, geðsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss. Ráðinn hefur verið verkefnisstjóri, Guðrún Guðmundsdóttir, og starfar hún á verkefnasviði Lýðheilsustöðvar.

Verkefnið Geðrækt er fræðslu- og forvarnaverkefni um geðheilsu og áhrifaþætti hennar. Geðrækt er ætlað að upplýsa almenning um geðheilbrigði og geðraskanir, um forvarnir og eflingu geðheilbrigðis og draga úr fordómum. Eins og fram hefur komið í fréttum hlaut verkefnið nýverið viðurkenningu sem sérstaklega vel heppnað verkefni á sviði geðheilbrigðis.

Framkvæmdaráð Geðræktar er skipað fulltrúum samstarfsaðila; Landlæknisembættisins, Heilsugæslunnar og geðsviðs Landspítala-háskólasjúkrahúss og mun ráðið starfa áfram og þá sem fagráð innan Lýðheilsustöðvar. Ennfremur hefur verið starfræktur stýrihópur í tengslum við Geðræktarverkefnið. Hann hefur komið að mörkun stefnu, aðstoðað við markaðssetningu o.fl.

Lýðheilsustöð telur það mikinn ávinning að fá Geðrækt innanborðs og mun leggja sitt af mörkum til að verkefnið haldi áfram að eflast og dafna, þannig að starfið sem þar fer fram muni koma landsmönnum til góða hér eftir sem áður.

 

 

 

 

 


Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica