Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Geðrækt hlýtur alþjóðlega viðurkenningu

18.8.2004

Verkefnið Geðrækt hlaut 11. ágúst síðastliðinn sérstaka útnefningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) í Genf og Alþjóðageðheilbrigðissamtakanna (WFMH) sem fyrirmyndarverkefni á sviði geðræktar.

Geðrækt er samstarfsverkefni Lýðheilsustöðvar, geðsviðs Landspítala–háskólasjúkrahúss og Heilsugæslunnar í Reykjavík. Viðurkenningin er veitt í tengslum við alþjóðlega útgáfu bókar ofangreindra samtaka um fyrirmyndarverkefni í geðrækt (Mental Health Promotion: Case Studies from Countries) á alþjóðlegri ráðstefnu um geðrækt í Auckland á Nýja Sjálandi (http://www.charity.demon.co.uk/conference.htm) þar sem kynnt eru 35 geðræktarverkefni hvaðanæva að úr heiminum. Verkefnin 35 voru valin úr hópi 60 verkefna sem bárust og voru 5 verkefni útnefnd sérstaklega og eitt þeirra, Geðrækt, kom best út og hlaut hæstu einkunn bæði hvað varðar framkvæmd og hugmyndafræði.

Verkefninu Geðrækt var hrundið úr vör árið 2000 þegar Geðhjálp, Landlæknisembættið og Landspítali–háskólasjúkrahús í samvinnu við fyrirtækin Actavis, Eimskip, Landsbankann, Skeljung og Íslenska erfðagreiningu, ásamt heilbrigðisráðuneytinu og Háskóla Íslands, tóku höndum saman um rekstur þess, en síðar bættist Heilsugæslan í Reykjavík við. Verkefnið hefur undanfarin fjögur ár staðið fyrir ýmisskonar samfélagslegum verkefnum á sviði geðræktar á Íslandi og verið mjög sýnilegt í samfélaginu.

Aðstandendur verkefnisins og þeir sem að því hafa komið gera sér vonir um að þessi alþjóðlega viðurkenning á Geðrækt verði til þess að auka áherslu á geðheilbrigðismál á Íslandi enn frekar, auk þess að verða fyrirmynd annarra þjóða um það hvernig hægt er að virkja alla þrjá geira samfélagsins (ríki, markað og borgarlegt samfélag) til að vinna í sameiningu að bættu geðheilbrigði.

Geðrækt hafði aðsetur hjá Landlæknisembættinu en 1. september 2004 fluttist það til Lýðheilsustöðvar. Sömu aðilar og áður, Landlæknisembættið, geðsvið Landspítala–háskólasjúkrahúss og Heilsugæslan í Reykjavík, munu áfram verða leiðandi varðandi faglegar áherslur verkefnisins. Héðinn Unnsteinsson, fyrrverandi verkefnisstjóri Geðræktar og upphafsmaður þess, mun fara til Nýja-Sjálands þann 15. september fyrir hönd verkefnisins og þeirra fjölmörgu sem að því hafa komið og veita viðurkenningunni viðtöku.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica