Umræða um sykurneyslu
Sykur og aftur sykur - getum við hamið neysluna? Grein eftir Önnu Sigríði Ólafsdóttur.
Sykur og brauð - sitt af hvoru tagi. Grein eftir Laufeyju Steingrímsdóttur
Sykur í fæði íslenskra barna. Grein eftir Önnu Sigríði Ólafsdóttur
Ofþung börn - ráð til foreldra. Grein eftir Hólmfríði Þorgeirsdóttur.
Megrunarkúrar - einu sinni enn. Grein eftir Sigurð Guðmundsson.
Tekið í taumana. Fræðslubæklingur fyrir þá sem vilja grennast. Panta bæklinginn.
Ráðleggingar um mataræði. Samantekt.
Æskileg samsetning fæðunnar
- Hæfilegt er að prótein veiti 10-20% heildarorku. Ráðleggingar fyrir hópa fólks miðast við 15% orkunnar úr próteinum.
- Hæfilegt er að fá 25-35% orkunnar úr fitu, þar af komi ekki meira en 10% orkunnar úr harðri fitu. (Með harðri fitu er átt við bæði mettaðar fitusýrur og trans-ómettaðar fitusýrur). Ráðleggingar fyrir hópa fólks miðast við 30% orkunnar úr fitu.
- Hæfilegt er að úr kolvetnum fáist 50-60% af orkunni, þar af ekki meira en 10% úr viðbættum sykri. Ráðleggingar fyrir hópa fólks miðast við 55% orkunnar úr kolvetnum.
- Æskilegt er að fæðutrefjar séu að minnsta kosti 25 grömm á dag miðað við 10 MJ fæði (u.þ.b. 2400 kcal).
- Æskilegt er að saltneysla kvenna sé ekki meiri en 6 grömm á dag og 7 grömm á dag hjá körlum
