Sími : 5 800 900

Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð fer undir embætti landlæknis - 29.4.2011

Embætti landlæknis tekur frá 1. maí 2011 við eignum Lýðheilsustöðvar sem og réttindum og skyldum hennar að því er varðar framkvæmd þeirra laga sem falla undir málefnasvið hennar á þeim tíma.

Starfsemi stöðvarinnar og flestir starfsmenn flytja til embættis landlæknis frá sama tíma. Fréttaflutningur frá starfseminni verður á vef embættis landlæknis en allt efni Lýðheilsustöðvar verður aðgengilegt á vef stöðvarinnar þar til nýr vefur verður opnaður með efni beggja stofnanna.

Lesa meira
 

Flensborg fær Gulleplið - 29.4.2011

Fáni heilsueflandi skóla og Flensborgarskóla

Flensborgarskóli í Hafnarfirði hlaut Gulleplið – viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf á sviði heilsueflandi framhaldsskóla. Það var mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir sem afhenti eplið þann 27. apríl. Flensborgarskóli var fyrsti skólinn sem hóf formlega að starfa með Lýðheilsustöð að heilsueflandi framhaldsskóla en nú hafa 24 framhaldsskólar fylgt í kjölfarið. Gert er ráð fyrir að á hverju ári hljóti einhver skólanna Gulleplið sem viðurkenningu fyrir afburða gott starf í sínum skóla.

Lesa meira
 

Lýðheilsustöð lögð niður - 6.4.2011

lydheilsust_2Við þriðju umræðu á Alþingi um frumvarp til laga um nýja sameinaða stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins var lögð fram óvænt  breytingatillaga, sem snérist að forminu til um nafn á nýrri stofnun, en fól fleira í sér. Frumvarpið var samþykkt með breytingatillögunni þann 30. mars s.l. og með því verður Lýðheilsustöð lögð niður frá og með 1. maí 2011. Nýju lögin fela í sér breytingar á lögum um landlækni nr. 41/2007 og að lög nr. 18/2003 um Lýðheilsustöð verða felld úr gildi. Starfsfólki Lýðheilsustöðvar verða boðin störf við embætti landlæknis.

Lesa meira
 

Hliðarfletir vilja verða útundan - 23.3.2011

Tæplega 1,8 milljón íslenskra hliðartannflata fær enga hreinsun, skv. niðurstöðum úr rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga 2007. Af þeim 8.562.694 íslensku hliðartannflötum sem hægt er að hreinsa með tannþræði fá einungis 1.578.354 daglega hreinsun. Ætla má að með aukinni notkun á tannþræði geti fullorðnir Íslendingar fækkað tannskemmdum stórlega og sparað þannig umtalsverðar fjárhæðir í viðgerðarkostnað.

Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica