Beint í leiðarkerfi vefsins.
Starfsemi stöðvarinnar og flestir starfsmenn flytja til embættis landlæknis frá sama tíma. Fréttaflutningur frá starfseminni verður á vef embættis landlæknis en allt efni Lýðheilsustöðvar verður aðgengilegt á vef stöðvarinnar þar til nýr vefur verður opnaður með efni beggja stofnanna.
Út er komin hjá Lýðheilsustöð lokaskýrsla Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!. Skýrslan nær yfir helstu þætti starfsemi, árangur og samstarf um verkefnið frá árinu 2004.
Lesa meira
Fæðuvenjur Íslendinga hafa breyst samfara minni kaupmætti og hækkuðu verðlagi. Minni neysla er á þeim matvörum sem hafa hækkað hvað mest í verði og eins þeim sem ekki teljast til brýnna nauðsynja. Hugsanleg heildaráhrif á heilsu þjóðarinnar eru ekki augljós þar sem bæði neysla hollustuvara svo og sætinda og skyndibita hefur minnkað.
Lesa meira
Flensborgarskóli í Hafnarfirði hlaut Gulleplið – viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf á sviði heilsueflandi framhaldsskóla. Það var mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir sem afhenti eplið þann 27. apríl. Flensborgarskóli var fyrsti skólinn sem hóf formlega að starfa með Lýðheilsustöð að heilsueflandi framhaldsskóla en nú hafa 24 framhaldsskólar fylgt í kjölfarið. Gert er ráð fyrir að á hverju ári hljóti einhver skólanna Gulleplið sem viðurkenningu fyrir afburða gott starf í sínum skóla.
Lesa meira
Við þriðju umræðu á Alþingi um frumvarp til laga um nýja sameinaða stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins var lögð fram óvænt breytingatillaga, sem snérist að forminu til um nafn á nýrri stofnun, en fól fleira í sér. Frumvarpið var samþykkt með breytingatillögunni þann 30. mars s.l. og með því verður Lýðheilsustöð lögð niður frá og með 1. maí 2011. Nýju lögin fela í sér breytingar á lögum um landlækni nr. 41/2007 og að lög nr. 18/2003 um Lýðheilsustöð verða felld úr gildi. Starfsfólki Lýðheilsustöðvar verða boðin störf við embætti landlæknis.
Málþing um mat í skólamötuneytum verður haldið 6. apríl kl. 15:00 að Stórhöfða 31 (gengið inn að neðanverðu). Þingið er haldið á vegum MATVÍS en Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð heldur erindi sem hún byggir á efni handbókar Lýðheilsustöðvar fyrir skólamötuneyti.
Í nýrri reglugerð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem tekur gildi 1. ágúst n.k., er kveðið á um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt er að markaðssetja matvæli sem innhalda meira en 2 grömm af transfitusýrum í hverjum 100 grömmum af heildarfitumagni og er þetta gert að fyrirmynd Dana. Reglugerðin gildir um transfitusýrur sem myndast þegar olía er hert að hluta en gildir hins vegar ekki um transfitusýrur sem eru í dýrafitu frá náttúrunnar hendi.
Lesa meira
Í ljósi umræðu um niðurskurð í grunnskólum landsins vekur Lýðheilsustöð athygli á mikilvægi þess að staðið sé vörð um gæði skólamáltíða. Skólamáltíðir eru lögbundin þjónusta samkvæmt 23. grein grunnskólalaga nr. 91 frá 2008. Samkvæmt lögunum skulu nemendur eiga kost á málsverði á skólatíma í samræmi við opinber manneldismarkmið.
Lesa meira
Um 320 bekkir víðsvegar um landið taka þátt í verkefni Lýðheilsustöðvar Reyklaus bekkur. Jafnt og þétt yfir vetrarmánuðina er ákveðin dagskrá í gangi og nýverið var annar útdráttur á meðal þátttökubekkjanna og nokkrir bekkir fengu gjafabréf í Skífuna. Einnig hafa allir nemendur í Reyklausum bekkjum fengið senda litla gjöf.
Lesa meira
Heilsunnar vegna skiptir fjölbreytt og hollt fæði, í hæfilegu magni, afar miklu máli. Lýðheilsustöð-manneldisráð gáfu árið 2006 út ráðleggingar um mataræði og næringarefni, en með því að fylgja ráðleggingunum má draga úr líkunum á ýmsum langvinnum sjúkdómum.
Lesa meiraTæplega 1,8 milljón íslenskra hliðartannflata fær enga hreinsun, skv. niðurstöðum úr rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga 2007. Af þeim 8.562.694 íslensku hliðartannflötum sem hægt er að hreinsa með tannþræði fá einungis 1.578.354 daglega hreinsun. Ætla má að með aukinni notkun á tannþræði geti fullorðnir Íslendingar fækkað tannskemmdum stórlega og sparað þannig umtalsverðar fjárhæðir í viðgerðarkostnað.
Vanlíðan og hegðan barna - margvíslegar orsakir
er heiti næsta Náum áttum morgunverðarfundar sem haldinn verður á Grand hóteli miðvikudaginn 23. mars kl. 8:15-10. Allir áhugasamir velkomnir en greiða þarf þátttökugjald, 1.500 kr., og skrá sig á: www.lydheilsustod.is/skraning
Lesa meira
Lýðheilsustöð, ásamt faghópi Heilsueflandi framhaldsskóla um hreyfingu, stendur fyrir vinnufundi á Hótel Loftleiðum föstudaginn 1. apríl kl. 13-16. Til fundarins hafa verið kallaðir fulltrúar ýmissa hópa sem málið snertir og er þess vænst að vinnufundurinn skili mikilvægu framlagi til að stuðla að meiri hreyfingu í framhaldsskólum landsins. Skráning á fundinn er til og með 29. mars.
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Umsóknarfrestur er til 3. apríl og er einungis tekið við umsóknum sem skilað er rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum.
Lesa meira
Opnað hefur verið fyrir nýjar styrkumsóknir vegna heilsuáætlunar Evrópusambandsins og er opið fyrir umsóknir til 27. maí n.k. Önnur heilsuáætlun ESB tók gildi 1. janúar 2008 og gildir í sex ár, eða til ársins 2013. Fjármagn sem er til ráðstöfunar vegna áætlunarinnar er 321,5 milljónir Evra á tímabilinu en því er ætlað að fjármagna samstarfsverkefni og aðgerðir sem stuðla að samstöðu og hagsæld innan ESB-landa.
Lesa meira
Á vef Lýðheilsustöðvar er komin út skýrslan Heilsa og líðan Íslendinga 2007: Framkvæmdaskýrsla. Rannsóknin ,,Heilsa og líðan Íslendinga" byggir á póstkönnun sem var send til tæplega 10.000 Íslendinga á aldrinum 18–79 ára í lok október 2007. Skýrslan er öllum opin á vefsvæði rannsóknarinnar. Þess má geta að fjallað verður um rannsóknina, sem og framhaldsrannsókn árið 2009, í þættinum Vísindi og nýsköpun í Sjónvarpinu 7. mars n.k.
Lýðheilsustöð, sem meðal annars hefur því hlutverki að gegna að stuðla að bættu mataræði þjóðarinnar, hefur frá upphafi stutt það að Ísland taki upp samnorrænt hollustumerki, skráargatið, og verði með í frekari þróun á þessu merki.
Verðlaun voru veitt í Evrópusamkeppni um besta barnaefnið á netinu á alþjóðlega netöryggisdeginum, 8. febrúar síðastliðinn, og hlaut myndin ,,Hugsaðu áður en þú sendir" verðlaun í flokki ungs fólks og vefur Námsgagnastofnunar í flokki fullorðinna.
Lesa meiraer heiti næsta Náum áttum
morgunverðarfundar sem haldinn verður á Grand hóteli miðvikudaginn 16. febrúar kl. 8:15-10. Allir áhugasamir velkomnir en greiða þarf þátttökugjald, 1.500 kr., og skrá sig á: www.lydheilsustod.is/skraning
Lífshlaupið hófst í gær 2. febrúar og eru landsmenn hvattir til að huga að daglegri hreyfingu sinni og taka þátt.
Alþjóðlegi netöruyggisdagurinn er 8. febrúar og af því tilefni verður haldin ráðstefna um öryggi á netinu. Erlendir og innlendir sérfræðingar flytja erindi og að þessu sinni er lögð áhersla á stefnumótun, þróun og tækifæri á vettvangi veraldarvefsins.
Lýðheilsustöð er virkur þátttakandi í SAFT verkefninu, sem Heimili og skóli stýrir, en það er hluti af Safer Internet Action Plan, aðgerðaáætlun Evrópusambandsins um öruggari netnotkun og er styrkt af ESB.
Lesa meiraFyrsta vikan í febrúar ár hvert er helguð tannvernd og í ár er áhersla lögð á glerungseyðingu og hvernig stemma megi stigu við henni.
Af því tilefni hefur Lýðheilsustöð gefið út veggspjaldið Þitt er valið þar sem lýst er á myndrænan hátt innihaldi algengustu vatns-, ávaxta- og gosdrykkja á markaðnum og áhrifum innihaldsins á tannheilsu.
Einnig hefur verið gefið út fræðslumyndband um umhirðu tanna barna, jafnt ungra sem þeirra eldri, og það talsett á ensku, rússnesku og pólsku, auk íslensku. Nýtt fræðsluefni er svo gjarnan gert fyrir leikskólabörn og yngstu börnin í grunnskóla í tannverndarvikunni og hefur það verið sent til allra leikskóla á landinu.
Næsta norræna lýðheilsuráðstefna verður haldin í Turku í Finnlandi í ágústmánuði. Aðalþema ráðstefnunnar að þessu sinni er „Health promotion at a system level - How does the Nordic welfare model cope with today's challenges?“
Óskað er eftir að þeir sem ætla að senda inn „abstract“ geri það fyrir 1. mars n.k.
Enn dregur úr reykingum meðal landsmanna. Nýjar tölur yfir umfang reykinga á Íslandi fyrir árið 2010 sýna að tíðni daglegra reykinga fullorðinna heldur áfram að lækka.
Tíðni daglegra reykinga fullorðinna mældist 14,2% á árinu 2010 en var 15.4% árið 2009.
Lesa meiraGeðorðin 10, sem byggð eru á niðurstöðum rannsókna um hvað einkennir þá sem búa við velgengni og vellíðan í lífinu, hafa náð umtalsverðum vinsældum hér á landi. Lýðheilsustöð gaf út bókina Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10 og nú eru komin út veggspjöld með myndum úr þessari fallegu bók.
Lesa meira