Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á árinu 2010 hefur starfsfólk Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar búið sig undir sameiningu stofnananna tveggja sem gert var ráð fyrir að tæki gildi nú við áramót þann 1. janúar 2011.
Lesa meira
Komin er upp íslensk vefsíða með uppskriftum fyrir óáfenga drykki, „oafengt.is“. Þar er talsvert safn uppskrifta þó enn séu þar helst hátíðardrykkir en aðrir flokkar munu fljótt bætast við.
Lesa meira
Vel er hægt er að njóta hátíðarinnar og allra jólakræsinganna án þess að það þurfi að hafa slæm áhrif á heilsuna. Í léttum jólapistli er bent á auðveldar leiðir til þessa - og hvatt til hreyfingar og slökunar inn á milli.
Lífsleikninámsefnið Vinir Zippýs eða „Zippy´s friends“ er alþjóðlegt forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir ung börn.
Á nýliðnu hausti hafa verið haldin 8 kennaranámskeið fyrir námsefnið á höfuðborgarsvæðinu. Þrjú þessara námskeiða tengdust landsbyggðinni í gegnum fjarfundabúnað og voru Akureyri, Ísafjörður og Grundarfjörður á hinum endanum.
Lýðheilsustöð, ásamt samstarfsaðilum, hefur staðið fyrir rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga, sem fyrst var gerð árið 2007 og síðan framhaldsrannsókn að hausti 2009. Töluvert er verið að vinna úr rannsóknagögnunum, bæði á vegum stöðvarinnar og annarra sem til þess hafa fengið leyfi, og á fræðadögum heilsugæslunnar sem fram fóru 19. nóvember sl., var flutt erindi um áhrif kreppunnar á heilsu og líðan Íslendinga.
Lýðheilsustöð vinnur að því með grunnskólum landsins að þeir starfi í anda „heilsueflandi grunnskóla“, sem m.a. byggir á verkefninu Schools for Health in Europe. Nú er Egilsstaðaskóli orðinn fyrsti formlegi heilsueflandi grunnskóli landsins og var því fagnað á sérstakri heilsuhátíð í skólanum fyrir skömmu.