Sími : 5 800 900

Fréttir

Sameiningin frestast - 30.12.2010 Lýðheilsustöð

HJH_Vetrarmynd_02_Minni

Á árinu 2010 hefur starfsfólk Landlæknisembættisins og Lýðheilsustöðvar búið sig undir sameiningu stofnananna tveggja sem gert var ráð fyrir að tæki gildi nú við áramót þann 1. janúar 2011.

Lesa meira
 

Óáfengt í boðinu - 29.12.2010 Áfengi og vímuefni

oafengt

Komin er upp íslensk vefsíða með uppskriftum fyrir óáfenga drykki, „oafengt.is“. Þar er talsvert safn uppskrifta þó enn séu þar helst hátíðardrykkir en aðrir flokkar munu fljótt bætast við.

Lesa meira
 

Lýðheilsustöð óskar landsmönnum gleðilegrar hátíðar - njótum hennar á heilbrigðan hátt - 22.12.2010 Næring og holdafar

HJH_Vetrarmynd_07_MinniVel er hægt er að njóta hátíðarinnar og allra jólakræsinganna án þess að það þurfi að hafa slæm áhrif á heilsuna.  Í léttum jólapistli er bent á auðveldar leiðir til þessa - og hvatt til hreyfingar og slökunar inn á milli. 

Lesa meira
 

„Vinir Zippýs“ - Kennarar 122ja grunn- og leikskóla hafa sótt námskeiðin - 20.12.2010 Geðrækt

Zippy_Fjarfundur_286_NetstaerdLífsleikninámsefnið Vinir Zippýs eða „Zippy´s friends“ er alþjóðlegt forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir ung börn.
Á nýliðnu hausti hafa verið haldin 8 kennaranámskeið fyrir námsefnið á höfuðborgarsvæðinu. Þrjú þessara námskeiða tengdust landsbyggðinni í gegnum fjarfundabúnað og voru Akureyri, Ísafjörður og Grundarfjörður á hinum endanum.

Lesa meira
 

Áhrif kreppunnar á heilsu og líðan landsmanna - 6.12.2010 Lýðheilsustöð

Mynd_2009-06-17_1024Lýðheilsustöð, ásamt samstarfsaðilum, hefur staðið fyrir rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga, sem fyrst var gerð árið 2007 og síðan framhaldsrannsókn að hausti 2009. Töluvert er verið að vinna úr rannsóknagögnunum, bæði á vegum stöðvarinnar og annarra sem til þess hafa fengið leyfi, og á fræðadögum heilsugæslunnar sem fram fóru 19. nóvember sl., var flutt erindi um áhrif kreppunnar á heilsu og líðan Íslendinga.

Lesa meira
 

Egilsstaðaskóli er formlegur heilsueflandi grunnskóli - 2.12.2010 Lýðheilsustöð

Veggspjald fyrir heilsueflandi Egilsstaðaskóla.Lýðheilsustöð vinnur að því með grunnskólum landsins að þeir starfi í anda „heilsueflandi grunnskóla“, sem m.a. byggir á verkefninu Schools for Health in Europe. Nú er Egilsstaðaskóli orðinn fyrsti formlegi heilsueflandi grunnskóli landsins og var því fagnað á sérstakri heilsuhátíð í skólanum fyrir skömmu.

Lesa meira
 

Höfuðmeiðsl eru meginorsök dauðaslysa og alvarlegs líkamstjóns á skíðasvæðum - 23.11.2010 Slysavarnir

snjoithrottahjalmurLýðheilsustöð tekur undir hvatningu Euro Safe um að stjórnvöld og stjórnendur skíðasvæða beiti sér fyrir því að allir sem nýta sér skíðasvæði hlíti skilyrðislaust þeirri reglu að vera með hjálm á höfði.
Á hverju ári slasast þúsundir manna við iðkun vetraríþrótta í Evrópu. Talið er að meðal þeirra sem iðka snjóbrekkuíþróttir í Evrópusambandinu verði á hverju 300.000 slys sem sinna þarf á spítölum, þar á meðal 170.000 skíðaslys og 90.000 snjóbrettaslys (1).

Lesa meira
 

Lagafrumvarp vegna nýrrar stofnunar lagt fram á Alþingi - 17.11.2010 Lýðheilsustöð

Althingishusid_bakÁ þingfundi 16. nóvember var lagt fram til 1. umræðu lagafrumvarp heilbrigðismálaráðherra vegna sameiningar Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins. Áætlað er að stofnanirnar verði sameinaðar 1. janúar 2011 og við sameiningunni verður til ný stofnun; embætti landlæknis og lýðheilsu.

Lesa meira
 

Náum áttum morgunverðarfundur 17. nóvember - 11.11.2010 Áfengi og vímuefni

N8nov2010_smamynd

Áhrif niðurskurðar á framhaldsskólann og brottfall.

Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík, miðvikudaginn 17. nóvember kl. 8:15 - 10:00. Skráning nauðsynleg, fyrir kl. 17 þriðjudaginn 16. nóv. 
Þátttökugjald er 1.500 kr., sem þarf að staðgreiða. Morgunhressing innifalin.

Lesa meira
 

Seltjarnarnesbær undirritar fyrstur samning um Öruggt samfélag - 28.10.2010 Slysavarnir

SC_Seltjarnarnes_Undirskr_001_1024pSeltjarnarnesbær varð í dag fyrst íslenskra sveitarfélaga til að ganga formlega til liðs við verkefni Alþjóða heilbrigðis­mála­stofnunar­innar (WHO) og Lýðheilsustöðvar um Öruggt samfélag, þegar bæjarstjóri Seltjarnarness, Ásgerður Halldórsdóttir, og forstjóri Lýðheilsustöðvar, Margrét Björnsdóttir, undirrituðu samning þar um.

Lesa meira
 

„Þetta er bara gras“ og boð á Hvað ef? - 26.10.2010 Áfengi og vímuefni

Naum-attum-vika-43

Vika 43 í samstarfi við Náum áttum heldur morgunverðarfund í Þjóðleikhúskjallaranum kl. 08:15 - 10.00 fimmtudaginn 28. október 2010.
Að loknu morgunþingi kl. 10 er fundarfólki boðið að sjá leikritið HVAÐ EF?

Lesa meira
 

Náum áttum morgunverðarfundur 13.10 - 8.10.2010 Áfengi og vímuefni

Náum áttum okt. 2010. Smellið á mynd til að stækka dagskrá.Að uppræta einelti

er þema næsta morgunverðarfundar Náum áttum hópsins, sem haldinn verður að Grand hóteli miðvikudagsmorguninn 13. október kl. 8:15-10. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn: lydheilsustod.is/skraning

Lesa meira
 

10. október - alþjóðageðheilbrigðisdagurinn - 4.10.2010 Geðrækt

Dagskrá alþjóða geðheilbrigðisdagsins 2010. Smellið á mynd til að stækka.

Árlega er 10. október helgaður geðheilbrigðismálum um allan heim. Á Íslandi hefur í áranna rás verið haldið upp á daginn með margvíslegu móti og í ár verður haldið upp á daginn í göngugötunni í Mjódd. Þema ársins er: Geðheilsa og langvinn veikindi: þörf fyrir samfellda og samhæfða þjónustu.

Lesa meira
 

Nýr samningur um heilsueflingu í framhaldsskólum - 4.10.2010 Lýðheilsustöð

Flensborg_2010_10_01_11_47_57MUndirritaður hefur verið nýr samningur um heilsueflingu í framhaldsskólum milli Lýðheilsustöðvar, heilbrigðisráðuneytisins, menntamálaráðuneytisins, samtaka framhaldsskólanemenda, Félags íslenskra framhaldsskóla og Ráðgjafanefndar um æskulýðsrannsóknir. Undirritunin fór fram í Flensborgarskóla í Hafnarfirði 1.10.10 en á sama tíma fóru fram mikil hátíðarhöld í skólanum, m.a. vegna þess að skólinn telst nú forystuskóli heilsueflandi framhaldsskóla.

Lesa meira
 

Flensborg Heilsueflandi framhaldsskóli - 30.9.2010 Lýðheilsustöð

Heilsueflandi framhaldsskóli. Smellið á merki til að opna síðu verkefnisins

Eitt af verkefnum Lýðheilsustöðvar er að vinna með framhaldsskólum landsins að velferð og góðri heilsu framhaldsskólanema undir heitinu Heilsueflandi framhaldsskólar. Á morgun verða hátíðarhöld í Flensborgarskólanum í Hafnarfirði í tilefni afþví að skólinn er fyrsti formlegi heilsueflandi framhaldsskóli landsins.  

Lesa meira
 

Könnun á mataræði Íslendinga - 10.9.2010 Næring og holdafar

matardiskur_gLýðheilsustöð og Matvælastofnun í samvinnu við Rannnsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands eru um þessar mundir að hefja könnun á mataræði og neysluvenjum landsmanna. Um tvö þúsund manns á aldrinum 18-80 ára geta því átt von á bréfi með beiðni um þátttöku, en könnunin fer þannig fram að haft verður samband við þátttakendur símleiðis og spurt um mataræði og neysluvenjur. 

Lesa meira
 

Kyrrðarstund og kertafleyting til minningar um þá sem fallið hafa frá fyrir eigin hendi - 10.9.2010 Lýðheilsustöð

Domkirkjan1B_1000Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Dómkirkjunni föstudaginn 10. september 2010, kl. 20:00 – 20:30, á vegum þjóðkirkjunnar, Landlæknisembættisins, geðsviðs Landspítala, Geðhjálpar og Hugarafls.

Lesa meira
 

„Náum áttum“ 15. sept. - Eineltisáætlun - hvað svo? - 9.9.2010 Áfengi og vímuefni

Náum áttum september 2010

Morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 15. sept. n.k..
Morgunverðarfundir Náum áttum hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. 

Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning

Lesa meira
 

Göngum í skólann 2010 - 9.9.2010 Hreyfing

010B

Ísland tekur nú þátt í fjórða skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í Skólann. Verkefnið hófst í Bretlandi árið 2000 og hefur þátttaka aukist ár frá ári.
Átaksverkefnið Göngum í Skólann var sett formlega í gær í Fagralundi í Kópavogi af Ögmundi Jónassyni samgöngu- og sveitastjórnarráðherra.

Lesa meira
 

Norræna vímuvarnaráðstefnan í Reykjavík - 8.9.2010 Áfengi og vímuefni

mynd_20100826_133727

Dagana 25-27 ágúst 2010 var haldin árleg norræn vinnustofa um forvarnir og heilsueflingu. Þátttakendur á vinnustofunni voru frá norrænum opinberum stofnunum sem vinna að málefninu. Þetta var í 26. skiptið sem slík vinnustofa er haldin og voru þátttakendur 27 frá öllum norðurlöndunum.

Lesa meira
 

Heilsuskilaboð Lýðheilsustöðvar á mjólkurfernum - 7.9.2010 Lýðheilsustöð

Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, og Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar. Smellið á mynd til að stækka. Lýðheilsustöð og Mjólkursamsalan hafa tekið höndum saman um að koma á framfæri ábendingum um heilsuna. Þetta er gert með því að birta heilsuskilaboð frá Lýðheilsustöð á mjólkurfernum og daglega munu því skilaboð Lýðheilsustöðvar rata inn á nánast hvert heimili landsins. Lesa meira
 

Verkefnið Göngum í skólann 2010 - 3.9.2010 Hreyfing

Gongumiskolann_200Alþjóðlega verkefnið Göngum í skólann í ár verður sett hér á landi miðvikudaginn 8. september næstkomandi kl. 10.00, í Fagralundi í Kópavogi, í samstarfi við Fossvogsskóla og Snælandsskóla
Megin markmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra til að ganga, hjóla eða fara á annan virkan hátt til og frá skóla en einnig að vekja til vitundar um heilsu, umhverfi og hreyfingu.

Lesa meira
 

Heilsuverndarstöðin hýsir nýju stofnunina - 2.9.2010 Lýðheilsustöð

Heilsuverndarstödin. smellið á mynd til að stækkaÁkveðið hefur verið að ganga til samninga við eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47, um leigu á hluta af húsnæðinu fyrir nýja stofnun, sem verður til við sameiningu Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins.

Lesa meira
 

Vel heppnaðir starfsdagar - 19.8.2010 Lýðheilsustöð

Starfsdagar2010-075++

Að baki eru nú tveir afar vel heppnaðir Heilsuskolar_taknAAA_150starfsdagar sem Lýðheilsustöð gekkst fyrir um Heilsueflandi grunnskóla. Þátttakendur voru á þriðja hundrað frá meira en 30 skólum. Það var Víkurskóli í Grafarvogi sem hýsti starfsdaga Lýðheilsustöðvar af myndarskap og mikilli hjálpsemi.

Lesa meira
 

Starfsdagar fyrir heilsueflandi grunnskóla - Dagskrá - 11.8.2010 Lýðheilsustöð

Skólamynd

Lýðheilsustöð gengst fyrir starfsdögum fyrir kennara og starfsfólk grunnskóla um heilsueflandi grunnskóla, dagana 17. og 18 ágúst n.k. í Víkurskóla í Grafarvogi.

Lesa meira
 

Bagg er bögg - Átak gegn munntóbaksnotkun - 5.8.2010 Tóbaksvarnir

bagg_er_bgg_allir

„Bagg er bögg“ er nýtt átaksverkefni Jafningjafræðslu Hins hússins, Knattspyrnusambands Íslands og Lýðheilsustöðvar til að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur.

Lesa meira
 

Götuhátíð Jafningjafræðslunnar - 14.7.2010 Lýðheilsustöð

Jafningjafraedslan_gotuhatid_2010_A

Jafningjafræðslan og stuðningsaðilar bjóða landsmönnum að fagna með sér sumrinu á götuhátíð á Austurvelli föstudaginn 16. júlí frá kl. 14:00. Þar mun fjöldi tónlistarmanna og listamanna stíga á stokk.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

SAMAN í sólinni í sumar - 2.7.2010 Lýðheilsustöð

Sumardagur_i_Nautholsvik

Foreldrar eru hvattir til að njóta sumarsins með börnunum sínum og unglingum og verja tímanum saman. Sumarið einkennist oft af útilegum, útihátíðum og sumarbústaðaferðum, en mikilvægt er að foreldrar hafi í huga að börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki erindi í slíkar ferðir eftirlitslaus. Söfnum góðum minningum í sumar - SAMAN í sólinni.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Könnun á notkun vefsíðu Lýðheilsustöðvar - 29.6.2010 Lýðheilsustöð

Notendur vefsíðu Lýðheilsustöðvar gætu orðið varir við það á næstu vikum að gluggi birtist á síðunni þar sem þeir eru beðnir að svara nokkrum spurningum um vefsíðuna. Með þessari könnun er verið að búa í haginn til að gera vefsíðuna enn betri og bæta við efni sem notendum finnst vanta. Það væri Lýðheilsustöð mikils virði að sem flestir tækju þátt því þannig getum við sameiginlega mótað góðan og notadrjúgan vef til framtíðar.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Samningur um landskönnun á mataræði Íslendinga - 22.6.2010 Næring og holdafar

-LHS_22Jun2010-002_1200

Undirritaður var í dag samstarfssamningur Lýðheilsustöðvar, Matvælastofnunar (MAST) og Rannsóknastofu í næringarfræði (RÍN) um framkvæmd Landskönnunar á mataræði Íslendinga.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Ánægja með lög um að börnum sé bannað að fara í ljósbekki - 16.6.2010 Lýðheilsustöð

Verum klár í sólinni. Smellið á myndina til að stækka og prenta út.

Lýðheilsustöð lýsir yfir ánægju sinni með að lög um bann við ljósabekkjanotkun barna hafi náð fram að ganga. Stöðin hefur í samstarfi við fleiri unnið að því á undanförnum árum að vara við skaðlegum áhrifum sólargeisla á húðina, ekki síst barna.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Forsetafrúr í heimsókn - 10.6.2010 Lýðheilsustöð

1Heimsokn_10Jun2010-061B

Hluti af opinberri heimsókn forseta Eistlands til Íslands er sérstök dagskrá fyrir forsetafrúnna. Hún hafði óskað eftir að fá kynna sér lýðheilsustarf, ekki síst það sem snýr að því að draga úr ofþyngd sem og vímuvörnum. Rétt fyrir hádegi í dag komu því í heimsókn til Lýðheilsustöðvar forsetafrú Íslands, Dorrit Moussaieff og Evelin Ilves, forsetafrú Eistlands, ásamt fríðu föruneyti.

Lesa meira
 

Efni ráðstefnunnar Öruggt samfélag komið á vefinn - 7.6.2010 Slysavarnir

SC-ICELAND_150Lýðheilsustöð, og fleiri, stóðu fyrir Evrópsku ráðstefnunni Öruggt samfélag í maí sl. Nú hafa fyrirlestrar frá ráðstefnunni verið settir á vefsíðu Lýðheilsustöðvar ásamt tali allra aðalfyrirlesaranna.

Lesa meira
 

Úthlutun úr Forvarnasjóði 2010 - 2.6.2010 Áfengi og vímuefni

Úthlutað hefur verið úr Forvarnasjóði fyrir árið 2010. Að þessu sinni er ríflega 71 milljón kr. úthlutað til 79 verkefna þar af er sérstök fjárveiting, 15 milljónir, sem ætluð er til sérstakra heilsueflingaverkefna. Alls bárust umsóknir um 129 verkefni.

Lesa meira
 

Reykjalundur hlýtur viðurkenningu vegna tóbaksmeðferðar - 2.6.2010 Tóbaksvarnir

ReyklausDagur_Reykjalundur_72_1200Á morgunverðarþingi, sem haldið var í tilefni af Degi án tóbaks 2010, var tilkynnt að Reykjalundur hefði hlotið viðurkenningu, ,,SmokeFreeAward”, í flokki heilbrigðisstarfsmanna en hana hljóta þeir sem með baráttuvilja, framsýni og hugrekki leggja sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð á Íslandi.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Ný áfengisstefna Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - 1.6.2010 Áfengi og vímuefni

who

Á heimsþingi Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunarinnar, 20. maí s.l., var samþykkt ályktun um hnattræna stefnumörkun til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengisneyslu (Global Strategy to Reduce the Harmfule Use of Alcohol).

Lesa meira
 

Dagur án tóbaks – Konur og reykingar - 27.5.2010 Tóbaksvarnir

dagur_an_tobaks_Krabbamein_150Dagur án tóbaks er haldinn 31. maí ár hvert. Sú ánægjulega þróun hefur átt sér stað að frá því mælingar á reykingum hófust hafa aldrei á sama tíma verið uppi jafnmargir Íslendingar sem hafa verið reyklausir allt sitt líf. Þessi þróun á jafnt við um karla sem konur, en ekki síst til að hvetja þær konur sem enn reykja, er þema tóbakslausa dagsins í ár: Konur og reykingar og er boðið til morgunverðarþings til að fjalla um málið í því ljósi.

Deildu með öðrum

Lesa meira
 

Hættu að hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga! - 26.5.2010 Lýðheilsustöð

Hættu að hanga. Smellið á mynd til að stækka.

Allir þurfa að hreyfa sig daglega, eftir bestu getu, og sumir þurfa meiri hvatningu til þess en aðrir. UMFÍ er að hleypa af stokkunum skemmtilegu og hvetjandi hreyfingarverkefni sem þeir nefna ,,Hættu að hanga - komdu að hjóla, synda og ganga". Lýðheilsustöð styður verkefnið en það hefst formlega með fjölskyldudegi 5. júní á Miðfelli í Hrunamannahreppi. 

Lesa meira
 

Ný handbók um hreyfingu fyrir grunnskóla - 19.5.2010 Hreyfing

Forsíða handbókarinnar um hreyfingu, Virkni í skólastarfi.Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar handbók um hreyfingu fyrir grunnskóla, Virkni í skólastarfi.

Hreyfing er mikilvægur liður við heilsueflingu í grunnskólum og er handbókin hugsuð sem hjálpartæki við þá vinnu.

Lesa meira
 

Öruggt samfélag – Seltjarnarnes fyrsta sveitarfélagið til að taka þátt - 18.5.2010 Slysavarnir


mynd_20100519_091506Á morgun hefst á Grand hóteli alþjóðleg ráðstefna Lýðheilsustöðvar og fleiri um örugg samfélög. Á ráðstefnunni verður m.a. athöfn þar sem gengið er frá því formlega að Lýðheilsustöð sé miðstöð fyrir Örugg samfélög á Íslandi. Nýverið samþykkti Seltjarnarnesbær að starfa í anda Öruggs samfélags og er fyrsta bæjarfélagið á Íslandi sem það gerir.

Lesa meira
 

„Náum áttum" 19. maí - Að þora að vera foreldri - 18.5.2010 Áfengi og vímuefni

Naum-attum19Morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 19. maí n.k..
Morgunverðarfundir Náum áttum hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. 

Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning

 

Reyklaus bekkur 2009-2010
- Úrslit
- 17.5.2010 Tóbaksvarnir

kubbur2-Reyklausbekkur

Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins skólaárið 2009-2010 er lokið, og úrslit liggja fyrir. Bekkirnir kepptu um lokaverðlaun sem er ferð til Danmerkur fyrir bekkinn sem hlýtur fyrstu verðlaun, og iPod nano fyrir alla nemendur bekkjarins sem hreppir önnur verðlaun. Í ár tóku 290 bekkir, víðsvegar um landið, þátt í keppninni milli reyklausra bekkja. Um 100 lokaverkefni bárust og hafa þau aldrei verið fleiri.

Lesa meira
 

Í tilefni af alþjóðadegi hreyfingar 10. maí
- fræðslufundir um samgönguhjólreiðar
- 7.5.2010 Hreyfing

Move-for-health-day

Árlega hvetur Alþjóðaheilbrigðismála-stofnunin aðildarþjóðir sínar til að halda alþjóðadag hreyfingar hátíðlegan. Tilgangur dagsins er að minna á lykilhlutverk daglegrar hreyfingar fyrir heilsu og vellíðan fólks á öllum aldri.

Lesa meira
 

Hjólað í vinnuna 5.-25. maí - 28.4.2010 Hreyfing


Hjóað í vinnuna vefurinnHvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, stendur yfir dagana 5.-25. maí n.k. Tilvalið er að nýta verkefnið til að taka upp heilsusamlegar ferðavenjur og efla um leið liðsandann á vinnustaðnum. Það verndar og bætir heilsuna að hreyfa sig daglega. Lýðheilsustöð hvetur því sem flesta til að fara ferða sinna á hjóli eða á tveimur jafnfljótum meðan á verkefninu stendur - og auðvitað sem lengst og mest, einnig eftir að því lýkur.

Lesa meira
 

Eldgosið í Eyjafjallajökli – hvað ber að hafa í huga - 16.4.2010 Lýðheilsustöð

mynd_20100417_1000


Lýðheilsustöð beinir því til landsmanna að fylgjast vel með ábendingum opinberra aðila um hvað beri að gera í aðstæðum eins og þeim sem skapast hafa vegna eldgossins í Eyjafjallajökli.

Lesa meira
 

Er hlutfall barna yfir kjörþyngd hætt að aukast? - 16.4.2010 Lýðheilsustöð

Undanfarin misseri hefur víða verið rætt um líkamsþyngd grunnskólabarna. Í slíkri umræðu er mikilvægt að tekið sé mið af bestu fáanlegu upplýsingum á hverjum tíma en nokkuð hefur borið á ónákvæmni í meðferð bæði talna og hugtaka. Lýðheilsustöð og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hafa tekið saman upplýsingar og gefið út í skýrslunni ,,Líkamsþyngd barna á höfuðborgargsvæðinu - Er hlutfall barna yfir kjörþyngd hætt að aukast?" þar sem komið er á framfæri nýjum tölum og stuttri útlistun á lykilhugtökum sem notuð eru um líkamsþyngd barna.

Lesa meira
 

Margar góðar ástæður fyrir því að borða 5 skammta af grænmeti og ávöxtum á dag - 13.4.2010 Næring og holdafar

tomatur

Í tenglsum við niðurstöðu nýrrar rannsóknar vill Lýðheilsustöð koma á framfæri að  margar góðar ástæður eru fyrir því að borða 5 skammta af grænmeti og ávöxtum á dag.

Lesa meira
 

Skólaþing Lýðheilsustöðvar - eflt samstarf heilbrigðis- og skólastofnana - 12.4.2010 Lýðheilsustöð

Img_2010-04-09_11-58-00Skólaþing Lýðheilsustöðvar, 9. apríl, var mjög vel sótt og almenn ánægja með það efni sem þar kom fram. Fyrirlestrar, ásamt hljóðskrám, hafa nú verið settir á vefsíðuna.





Lesa meira
 

Niðurstöður kannana meðal skólastjóra á landinu - 7.4.2010 Allt hefur áhrif

Stöðumat 2009;leik-og grunnskólar. Smellið á mynd til að opnaÚt er komin skýrsla með niðurstöðum kannana sem Lýðheilsustöð gerði á meðal leik- og grunnskólastjóra á Íslandi vorið 2009. Niðurstöðurnar varpa ljósi á stöðu helstu þátta sem snerta aðstæður, framboð og hvernig unnið er að hreyfingu og hollri næringu í leik- og grunnskólum landsins.

Lesa meira
 

Skólaþing Lýðheilsustöðvar 9. apríl - 31.3.2010 Lýðheilsustöð

Skólaþing Lýðheilsustöðvar um heilsueflandi skólaLýðheilsustöð, í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneytið stendur fyrir öðru skólaþingi sínu þann 9. apríl n.k. Þingið er haldið í Rúgbrauðsgerðínni og er öllum opið og þátttakendum að kostnaðarlausu.

Lesa meira
 

Vefsíða fyrir fagfólk um lífsstílsbreytingar - 24.3.2010 Áfengi og vímuefni

++LHS2-149Opnuð hefur verið vefsíðan frjáls.is sem ætluð er fagfólki, einkum á heilbrigðissviði, þar sem bent er á leiðir til að hvetja og styðja fólk til lífstílsbreytinga. Landlæknir, Geir Gunnlaugsson, opnaði síðuna formlega í dag í Heilsugæslunni í Mjódd að viðstöddu fjölmenni.

Lesa meira
 

Vefsíða fyrir fagfólk um lífsstílsbreytingar - 24.3.2010 Áfengi og vímuefni

++LHS2-149Opnuð hefur verið vefsíðan frjáls.is sem ætluð er fagfólki, einkum á heilbrigðissviði, þar sem bent er á leiðir til að hvetja og styðja fólk til lífstílsbreytinga. Landlæknir, Geir Gunnlaugsson, opnaði síðuna formlega í dag í Heilsugæslunni í Mjódd að viðstöddu fjölmenni.

Lesa meira
 

Ný handbók fyrir framhaldsskóla - 22.3.2010 Næring og holdafar

mappa-forsida717pHandbók um mataræði í framhaldsskólum

er komin út á vegum Lýðheilsustöðvar. Handbókin er gefin út í tengslum við verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli og er ætluð sem stuðningur við skólann í vinnu sinni við að stuðla að hollu mataræði nemenda og starfsfólks.

Lesa meira
 

Sameining Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins undirbúin - 10.3.2010 Lýðheilsustöð

Undirbúningur fyrir sameiningu Lýðheilsustöðvar og landlæknisembættisins er hafinn. Stefnt er að því ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2011.

Lesa meira
 

Ungt fólk á ekki að fara í ljósabekki - 3.3.2010 Lýðheilsustöð

Þessa dagana er átak í að benda á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki og er því einkum beint að fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra. Skilaboðin, undir slagorðinu Hættan er ljós, eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Krabbameinsfélaginu, Landlæknisembættinu og Lýðheilsustöð. Viðhorfskönnun til banns við ljósabekkjanotkun ungmenna sýnir að mikill meirihluti er með slíku banni.

Lesa meira
 

Upplýsingar um transfitusýrur - 24.2.2010 Næring og holdafar

kleinurNýlega var greint frá niðurstöðum nýrra greininga á transfitusýrum  í völdum matvælum á Íslandi. Lýðheilsustöð hefur í kjölfarið tekið saman smá fróðleik um transfitusýrur sem hægt er að skoða hér.

Lesa meira
 

Morgunverðarfundur „Náum áttum" 24. febrúar:
Um börn með ADHD - ekki gera ekki neitt
- 22.2.2010 Áfengi og vímuefni

Smella til að opna pdf auglýsinguna

Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 24. febrúar og er yfirskriftin „Börn með ADHD - ekki gera ekki neitt“. Morgunverðarfundir Náum áttum hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. 

Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning

 

Lesa meira
 

Reyklaus 2009 - verðlaunahafi valinn - 10.2.2010 Tóbaksvarnir

Reyksíminn og Lýðheilsustöð, í samstarfi við Evrópukeppnina European Network of Quitlines, hafa nú í valið vinningshafa í verðlaunasamkeppnina Reyklaus 2009 og er það Rún Knútsdóttir sem varð fyrir valinu.

Lesa meira
 

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði 2010 - 5.2.2010 Áfengi og vímuefni

Forvarnarsjodur-Auglysing_2010_300Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Umsóknarfrestur er til 5. mars og er einungis tekið við umsóknum sem skilað er rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar.



Lesa meira
 

,,Hugsaðu áður en þú sendir" - Alþjóðlegi netöryggisdagurinn - 3.2.2010 Lýðheilsustöð

Í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginu, 9. febrúar, verður haldið opið málþing undir yfirskriftinni ,,Hugsaðu áður en þú sendir" í Skriðu, aðalbyggingu menntavísindasviðs HÍ, við Stakkahlíð. Þar munu bæði sérfræðingar og talsmenn ungs fólks munu fjalla um örugga netnotkun út frá ýmsum sjónarhornum, undir styrkri stjórn Páls Óskars Hjálmtýssonar. Þingið er á vegum SAFT-verkefnisins sem Lýðheilsustöð er virkur þátttakandi í.

Lesa meira
 

Tannverndarvikan hefst - 1.2.2010 Tannvernd

Tannverndarvika. Smellið á mynd til að stækka

Í dag, 1. febrúar 2010, hefst árleg Tannverndarvika en í henni er lögð áhersla á málefni tannheilsu. Að þessu sinni er kastljósinu beint að tannheilsu barna en eins og MUNNÍS rannsóknin sýndi þá búa börn á Íslandi við verstu tannheilsu á Norðurlöndunum. Margt þarf að gera til að snúa vörn í sókn, ekki síst að huga almennt betur að tannhirðu barnanna. Útbúið hefur verið lifandi myndefni þar sem farið er yfir það helsta sem snýr að tannburstun barna og er það aðgengilegt hér á vefsíðunni.

Lesa meira
 

Fitusýrur í matvælum - ný greining - 28.1.2010 Næring og holdafar

franskar,-matis

Á árunum 2008 og 2009 voru gerðar hjá Matís ohf fitusýrugreiningar á 51 sýni af matvörum í þeim tilgangi að uppfæra gögn í ÍSGEM gagnagrunninum um efnainnihald matvæla. Verkefnið var unnið í samstarfi við Lýðheilsustöð og Matvælastofnun. Áhersla var lögð á að kanna magn trans-fitusýra í unnum matvælum og því voru tekin sýni af borðsmjörlíki, bökunarvörum, djúpsteikingarfeiti, mat frá skyndibitastöðum, ís, kexi, snakki og sælgæti.

Lesa meira
 

Lífshlaupið hefst 3. febrúar - 28.1.2010 Hreyfing

lifshlaupid-merkiLífshlaupið

hefst 3. febrúar og eru landsmenn hvattir til að huga að daglegri hreyfingu sinni og taka þátt.

Lesa meira
 

Nýr forstjóri Lýðheilsustöðvar - 22.1.2010 Lýðheilsustöð

Margrét Björnsdóttir. Smellið á mynd til að stækka

Heilbrigðisráðherra hefur sett Margréti Björnsdóttur, hjúkrunarfræðing, forstjóra Lýðheilsustöðvar frá 1. janúar til 31. ágúst 2010 en hún hefur verið starfandi forstjóri frá 9. nóvember sl. í orlofi fyrrverandi forstjóra. Margrét hefur undanfarin ár starfað í heilbrigðisráðuneytinu sem deildarstjóri og skrifstofustjóri á sviði stefnumótunar heilbrigðismála í ráðuneytinu.

Lesa meira
 

Tillögur um framboð á matvörum í íþróttamannvirkjum - 18.1.2010 Næring og holdafar

Íþróttafélög og íþróttamannvirki - framboð á matvörum. Smellið á myndina til að skoða bæklinginnLýðheilsustöð hefur gefið út fræðsluefnið Tillögur um framboð á matvörum í íþróttamannvirkjum og hjá íþróttafélögum en markmiðið með útgáfunni er að stuðla að hollri næringu íþróttaiðkenda. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR), Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur (ÍTR) og Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) standa að kynningu á efninu ásamt Lýðheilsustöð.  

Lesa meira
 

Mikilvægt að fylgjast með koffínneyslu barna og unglinga - 18.1.2010 Næring og holdafar

Í ljósi þess að talsvert framboð er nú af drykkjarvörum og öðrum matvælum sem innihalda koffín telur Lýðheilsustöð ástæðu til að hvetja foredra og aðra til að fylgjast vel með koffínneyslu barna og unglinga. Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða.

Lesa meira
 

Geðheilbrigði barna – fræðsluefni - 14.1.2010 Geðrækt

Smella til að sækja pdf eintak af bæklingnum

Út eru komnir tveir Smella til að sækja pdf eintak af bæklingnumfræðslubæklingar um geðheilbrigði barna, annar ætlaður unglingum og hinn aðstandendum barna og unglinga. Bæklingarnir eru unnir á vegum Barna- og unglingageðdeildar Landspítala (BUGL) í samstarfi við Lýðheilsustöð og Landlæknisembættið. Þeir verða kynntir í fyrsta sinn á árlegri ráðstefnu BUGL ,,Snemma beygist krókurinn - Bjargráð og þjónusta í nærumhverfi" sem haldinn er föstudaginn 15. janúar, kl. 08.15-16.15, í Þróttarsalnum, Engjavegi 7 í Laugardal.

Lesa meira
 

Fæðuframboð á Íslandi 2008 - Verulegur samdráttur á ávöxtum og grænmeti - 11.1.2010 Framboð og sala á matvöru

Tölur um fæðuframboð á Íslandi fyrir árið 2008.
Lýðheilsustöð birtir reglulega upplýsingar um fæðuframboð á Íslandi og þó þær veiti ekki beinar upplýsingar um neyslu gefa þær vísbendingar um þróun á mataræði þjóðarinnar. 

Lesa meira
 

Mataræði á nýju ári - 6.1.2010 Næring og holdafar

Í upphafi árs leiða margir hugann að því hvað þeir geti gert til að stuðla að bættu heilsufari. Einn þáttur sem tengist heilsu og við getum haft áhrif á er mataræðið en með góðu fæðuvali má draga úr líkunum á ýmsum sjúkdómum. Það er því ekki úr vegi að rifja upp ráðleggingar Lýðheilsustöðvar – manneldisráðs um mataræði og nærignarefni en markmiðið með þeim er meðal annars að draga úr líkunum á ýmsum sjúkdómum og stuðla að sem bestri líðan landsmanna.

Lesa meira
 




Fréttir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica