Sími : 5 800 900

Fréttir

Vinningshafar í Munntóbaksleiknum - 17.12.2009 Tóbaksvarnir

Munntóbaksleikur. Smellið á myndina til að opna leikinn. ,,Ekki segja síííís!"

er heitið á tölvuleik sem Lýðheilsustöð lét útbúa sem hluta af fræðslu fyrir ungt fólk um skaðsemi munntóbaks. Þeir sem taka þátt í leiknum eiga möguleika á að vinna bíómiða fyrir tvo á valdar myndir sem sýndar eru í Sambíóunum. Nú hafa verið dregin út nöfn 50 vinningshafa og þau birt hér á síðunni.

Lesa meira
 

Til hvers nota börnin netið? - Niðurstöður könnunar SAFT - 11.12.2009 Lýðheilsustöð

Tölvu- og netnotkun barna og unglinga hér á landi er mikil og unga fólkið ver miklum tíma fyrir framan tölvuskjáinn. Á vegum SAFT-verkefnisins var netnotkun unga fólksins könnuð sem og hversu mikið foreldrar vissu um notkun barna sinna. Flestir foreldrar vita nokkuð vel hvað unga fólkið hefur fyrir stafni fyrir framan tölvuskjáinn en ástæða er til að hvetja allra foreldra að vera vakandi fyrir tölvunotkun barna sinna.  

Lesa meira
 

Nýr heilsuvefur
- efni frá fagfólki fyrir börn, unglinga og foreldra
- 30.11.2009 Lýðheilsustöð

Börn úr Fellaskóla opna vefsíðuna. Smellið á mynd til að stækka

Börn úr Fellaskóla opnuðu formlega nýja heilsuvefinn http://www.6h.is/. Opnunarathöfnin fór fram á Grand hóteli föstudaginn 27. nóvember. Nafnið á vefnum vísar til fræðsluefnisins 6 H heilsunnar sem er fróðleikur frá fagfólki fyrir börn, unglinga og foreldra.

Lesa meira
 

Áhugahvetjandi samtalstækni - að breyta lifnaðarháttum - 23.11.2009 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð býður fagfólki á vegum heilsugæslunnar á námskeið í áhugahvetjandi samtalstækni mánudaginn 4. desember n.k. Á námskeiðinu verður einnig kynnt ný vefsíða með kennsluefni um samtalstæknina.

Lesa meira
 

Heilsa og líðan Íslendinga - 6.11.2009 Lýðheilsustöð

HL09

Lýðheilsustöð ásamt samstarfsaðilum stendur um þessar mundir að rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga, Framhaldsrannsókn 2009. Rannsóknin er viðamikil spurningalistakönnun á heilsu, líðan og velferð fullorðinna Íslendinga og er unnin í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands, Landlæknisembættið, Landspítalann og Vinnueftirlitið, auk sérfræðinga hjá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og Háskólanum í Reykjavík.

Lesa meira
 

Áfengi, slys og obeldi - morgunverðarfundur - 4.11.2009 Slysavarnir

Morgunverðarfundur, dagskrá. Smella á mynd til að stækkaLýðheilsustöð, slysavarnaráð og áfengis- og vímuvarnaráð boða til morgunverðarfundar um slys og ofbeldi í tengslum við áfengisneyslu. Fundurinn er öllum opinn.

Skrá þarf þátttöku fyrir 10. nóvember á: www.lydheilsustod.is/skraning

 

Lesa meira
 

Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri? - 30.10.2009 Næring og holdafar

Hvað borða íslensk börn á leikskólaaldri? Smella á myndina til að skoða skýrslunaKomin er út skýrsla með niðurstöðum könnunar á mataræði 3ja og 5 ára barna á höfuðborgarsvæðinu árið 2007. Rannsóknastofa í næringarfræði (RÍN) og Lýðheilsustöð stóðu að rannsókninni en hún var unnin af RÍN 2007-2008. Rannsóknin leiddi í ljós bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar á mataræði barnanna, s.s. að fiskneysla væri í samræmi við ráðleggingar en langt væri í land með ávaxta- og grænmetisneyslu.

Lesa meira
 

Unglingar á Íslandi standa sig betur en jafnaldrar þeirra í Evrópu - 22.10.2009 Áfengi og vímuefni

Reglulega er kannað hér á landi hvernig unga fólkið okkar stendur sig í samanburði við jafnaldra sína t.d. í Evrópu. Ein slík rannsókn er ESPAD-rannsóknin á vímuefnaneyslu 15-16 ára unglinga í 35 Evrópulöndum. Margt ánægjulegt kemur fram í niðurstöðum nýjustu rannsóknarinnar (2007), hvað snertir unga fólkið á Íslandi, sem ástæða er til að halda á lofti. Niðurstöðurnar sýna m.a. að ungmenni á Íslandi eru almennt til mikillar fyrirmyndar og standa sig yfirleitt betur en flestir jafnaldrar þeirra í Evrópu.

Lesa meira
 

Fjölmiðlar og lýðheilsa - 16.10.2009 Lýðheilsustöð

Fjölmiðlar hafa mikil áhrif á opinbera umræðu og eru oft nefndir fjórða valdið, líklega ekki að ástæðulausu. Félagsfræðingafélag Íslands, í samvinnu við Lýðheilsustöð, standa fyrir málþingi um fjölmiðla og lýðheilsu eftir hádegi þriðjudaginn 20. október á Hótel Sögu. Yfirskrift málþingsins er: Getur umfjöllun fjölmiðla skaðað velferð fólks?

Lesa meira
 

Velferð á tímum efnahagsþrenginga - ráðstefna - 13.10.2009 Lýðheilsustöð

Dagskrá. Smellið á myndina til að stækka.

 

Lýðheilsustöð kemur ásamt fleirum að ráðstefnunni Velferð á tímum efnahagsþrenginga - ,,Welfare in times of crises" - sem Norræna ráðherranefndin styrkir. Fjallað verður um efni eins og áhrif efnahagsþrenginga á heilsu og líðan þjóðar og reynslu annarra Norðurlandaþjóða af slíkum þrengingum. Ráðstefnan er haldin á Hótel Sögu, 21. október og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Hægt er að fylgjast með ráðstefnunni beint í gegnum vefinn.
Smellið hér til að sjá ráðstefnuna í heild sinni

Lesa meira
 

Alþjóðageðheilbrigðisdagurinn 10. október - 5.10.2009 Geðrækt

Alþjóðgeðheilbrigðisdagurinn 2009. Smellið á mynd til að stækka10. október ár hvert er haldið upp á alþjóðageðheilbrigðisdaginn með ýmsum viðburðum tengdum málefnum geðheilbrigðis. Yfirskrift dagsins í ár er: Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta. Í tilefni af deginum er efnt til hátíðarhalda í Mjódd í Breiðholti laugardaginn 10. október og hefst dagskráin kl. 13.   Lesa meira
 

SAFT - 10 netheilræði - 1.10.2009 Áfengi og vímuefni

Örugg netnotkun barna er mjög mikilvæg og til að aðstoða fjölskyldur í þeim efnum hefur SAFT gefið út fræðsluefni með 10 netheilræðum sem dreift verður til allra nemenda í 1.-4. bekk grunnskóla. Lesa meira
 

Enn dregur úr daglegum reykingum - 30.9.2009 Tóbaksvarnir

Undanfarin ár hefur Lýðheilsustöð fengið Capacent-Gallup til að kanna reykingavenjur landsmanna þrisvar yfir árið og sýna niðurstöðurnar fyrir árið 2009 að tíðni daglegra reykinga fullorðinna (15-89 ára) hefur lækkað úr 17,6% árið 2008 í 15,4% nú í ár. Mestu munar að nú reykja mun færri karlar daglega en árið 2008. Lesa meira
 

Rannsókn Lýðheilsustöðvar í sjónvarpsþætti um vísindi - 29.9.2009 Lýðheilsustöð

Rannsókn Lýðheilsustöðvar á hamingju Íslendinga verða gerða skil á lifandi og áhugaverðan hátt í fyrsta þætti nýrrar sjónvarpsþáttaraðar um nýsköpun og íslensk vísindi. Þátturinn verður sýndur í Sjónvarpinu fimmtudaginn 1. október nk. Lesa meira
 

Líkamsþyngd og holdafar fullorðinna Íslendinga frá 1990-2007 - 28.9.2009 Næring og holdafar

Lýðheilsustöð kynnti í dag niðurstöður rannsóknar sinnar á líkamsþyngd og holdafari fullorðinna Íslendinga og á sama tíma kom út skýrsla um rannsóknina.Skýrsla (PDF) Lesa meira
 

Reyklaus bekkur 2009-2010 - skráning hafin - 28.9.2009 Fréttir

kubbur2-ReyklausbekkurSamkeppnin Reyklaus bekkur er hafin og er hún nú haldin í ellefta sinn hér á landi. Skráning er hafin en allir 7. og 8. bekkir á landinu geta tekið þátt, svo fremi að enginn nemendanna reyki. Skrá þarf bekki í síðasta lagi 6. nóvember 2009. Lesa meira
 

Heilsuvika og Geðveikir dagar - 21.9.2009 Geðrækt

Geðorð á vegg í Vogunum. smellið á mynd til að stækkaÞað fer í vöxt að sveitarfélög standi fyrir heilsuátaki í ákveðinn tíma og hvetji þá íbúa til að taka þátt í heilsueflandi atburðum. Oftar en ekki er leitað til Lýðheilsustöðvar með fræðsluefni og fagnar stöðin slíkum tækifærum til að koma að eflingu heilsu í sveitarfélögum. Nú stendur yfir heilsu- og forvarnavika í Reykjanesbæ og meðal atburða eru Geðveikir dagar þar sem geðorðin 10 eru í hávegum höfð. Lesa meira
 

Nýtt fræðsluefni um næringu barna - fyrir dagforeldra og ungbarnaleikskóla - 21.9.2009 Næring og holdafar

R´ðleggingar um næringu barna, fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleikskóla. smellið á mynd til að stækka. Út er komið hjá Lýðheilsustöð nýtt fræðsluefni: Ráðleggingar um næringu barna, fyrir dagforeldra og starfsfólk ungbarnaleikskóla. Tilgangurinn með útgáfunni er að auðvelda þessum aðilum að gefa börnunum hollan og góðan mat við þeirra hæfi. Lesa meira
 

Göngum í skólann og leiksskólann - 7.9.2009 Hreyfing

foreldri_2008Lýheilsustöð, ásamt fleirum, hleypti af stokkunum átakinu Göngum í skólann árið 2007 en nú er framkvæmd þess í höndum ÍSÍ. Í haust fer verkefnið formlega af stað í Flóaskóla þann 9. september. Gaman að geta þess að í Reykjavík er nú að hefjast Labbað í leikskólann, sem nokkrir aðilar standa að. Foreldrar og aðrir eru hvattir til góðrar þátttöku í þessum ágætu átaksverkefnum, en þau stuðla að heilsusamlegri lifnaðarháttum, öruggari umferð og draga úr mengun. Lesa meira
 

Fækkar í hópi þeirra sem aldrei drekka áfengi - einkum á meðal kvenna - 4.9.2009 Áfengi og vímuefni

Þegar skoðuð er þróun áfengisdrykkju á Íslandi síðustu áratugi kemur í ljós umtalsverð aukning í sölu áfengislítra en einnig að breyting hefur orðið á drykkjumynstri fólks. Jafnframt hefur orðið sú breyting að fækkað hefur verulega í hópi þeirra sem aldrei neyta áfengis, einkum meðal kvenna. Lesa meira
 

Íslendingar ennþá hamingjusöm þjóð, þrátt fyrir kreppu - niðurstöður nýrrar rannsóknar - 19.8.2009 Lýðheilsustöð

Á ýmsan hátt hefur verið unnið að því að kanna áhrif breytts efnhagsástands á Íslandi á landsmenn, einkum ungt fólk. Einnig að koma með tillögur að aðgerðum til að sporna gegn óæskilegum áhrifum efnahagsástandsins. Á ráðstefnu sem haldin var 17. ágúst sl. kom fram að þrátt fyrir allt teljast Íslendingar ennþá hamingjusöm þjóð. Lesa meira
 

Velferð íslenskra barna - sóknarfæri á umbrotatímum - 10.8.2009 Lýðheilsustöð

Velferð, börn, 2009Ráðstefnan Velferð íslenskra barna - sóknarfæri á umbrotatímum verður haldin 17. ágúst n.k. í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8. Ráðstefnan er öllum opin en skráningargjald er 2.500 kr. Lesa meira
 

Styrktarsjóður ungs fólks án atvinnu - 16.7.2009 Lýðheilsustöð

Nú þegar sumarið er rúmlega hálfnað eru nokkur verkefni sem fengu styrk úr sjóðnum í vSíða Styrktarsjóðsinnslu og önnur jafnvel fullkláruð. Það hefur verið einstaklega gaman að lesa um fjölbreyttar hugmyndir í umsóknum ungs fólks og enn skemmtilegra að sjá þær í framkvæmd. Lesa meira
 

Norrænu lýðheilsuverðlaunin afhent - 30.6.2009 Lýðheilsustöð

Barbro Westerholm, prófessor, hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár fyrir störf sín sem tengjast heilsufari aldraðra á Norðurlöndunum og á Evrópuvettvangi. Barbro Westerholm lauk læknisfræðinámi 1959, varð prófessor 1988 og er hún nú heiðursdoktor við háskólann í Uppsala og heiðursfélagi í sænska læknafélaginu. Lesa meira
 

Styrktarsjóður ungs atvinnulauss fólks - 30.6.2009 Lýðheilsustöð

styrktarsjóður ungs fólks, smellið á mynd til að opna vefsíðu sjóðsinaUmsóknir hafa verið að berast til Styrktarsjóðs ungs atvinnulauss fólks til að vinna að forvarnaverkefnum í sumar. Eitt verkefni er þegar hafið og önnur um það bil að hefjast. Lýðheilsustöð vonar að sjóðurinn gagnist ungu atvinnulausu fólki um allt land til að vinna að skapandi og áhrifaríkum verkefnum í sumar en næsti umsóknarfrestur er til 10. júlí. Lesa meira
 

,,Höngum saman í sumar!" - 29.6.2009 Lýðheilsustöð

hongum_saman,_sumar_2009SAMAN hópurinn stendur fyrir átaki með þessari yfirskrift en rannsóknir hafa sýnt að samvera foreldra og barna er ein besta forvörnin. Yfirskriftin ,,að hanga saman“ hefur þá skýrskotun að samveran þarf ekki að kosta neitt, vera skipulögð eða hafa skemmtanagildi. Lesa meira
 

Ert þú ,,Tóbakslausi maður/kona ársins 2009"? - 18.6.2009 Tóbaksvarnir

Verðlaunasamkeppnin Reyklaus 2009. Smellið á myndina til að opna vefsíðu samkeppninnar. Reyksíminn og Lýðheilsustöð fara nú af stað með verðlaunasamkeppnina „Reyklaus 2009“ á Íslandi. Þessi keppni var haldin í fyrsta skipti í fyrra en þeir geta tekið þátt sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, og geta miðlað góðri sögu af reynslu sinni sem gæti orðið öðrum hvatning í baráttunni gegn tóbakinu. Góð verðlaun eru í boði. Lesa meira
 

Úthlutun úr Forvarnasjóði og Styrktarsjóði ungs fólks án atvinnu - 15.6.2009 Áfengi og vímuefni

Úthlutun úr Forvarnasjóði fór fram 15. júní í Austurbæjarbíói – Húsi unga fólksins. Það var heilbrigðisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem úthlutaði styrkjum úr sjóðnum til 45 mismunandi verkefna. Einnig fór fram fyrsta úthlutun úr Styrktarsjóði Ungs fólks án atvinnu sumarið 2009. Lesa meira
 

JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI - námskeið Roberts Biswas-Diener í ágúst - 9.6.2009 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð og Sálfræðisvið kennslufræði- og lýðheilsudeildar HR, í samstarfi við Opna háskólann, bjóða upp á einstakt 12 klst. námskeið með Robert Biswas-Diener um jákvæða sálfræði (Positive Psychology). Skráning á námskeiðið er hafin. Lesa meira
 

Austurbæjarbíó - Hús unga fólksins - 9.6.2009 Lýðheilsustöð

Austurbæjarbíó. Smella á mynd til að stækka. Austurbæjarbíó - Hús Unga Fólksins opnar formlega þriðjudagskvöldið 9. júní. Húsið verður miðstöð ungs fólks sem vill virkja krafta sína í hvetjandi umhverfi. Markmið miðstöðvarinnar er að bjóða ungu fólki upp á aðstöðu og aðstoð við framkvæmd hugmynda sinna. Lesa meira
 

Styrktarsjóður Lýðheilsustöðvar fyrir ungt fólk án atvinnu sumarið 2009 - 27.5.2009 Styrktarsjóður

Unglingar_a_Ingolfstorgi_-_HSBLýðheilsustöð styrkir í sumar ungt atvinnulaust fólk til að vinna að verkefnum sem hafa heilsueflingu og/eða forvarnir að markmiði og stuðla að tóbaksleysi. Til ráðstöfunar verða 5 milljónir króna en miðað er við að einstaklingar geti fengið 50.000 kr. styrk til að vinna verkefni sem stendur yfir í 2 vikur í sumar og að hámarki 150.0000 kr. fyrir verkefni sem stendur yfir í 6 vikur.

NÆSTI UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 23. JÚLÍ.

Lesa meira
 

Dagur án tóbaks 31. maí - 27.5.2009 Tóbaksvarnir

Auglýsing um reykingar. Smellið á mynd til að stækka. Dagur án tóbaks er árlega haldinn 31. maí. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) ákveður þema hvers árs og í ár er dagurinn helgaður viðvörunum, í formi mynda, á tóbaksvörur um hættuna af reykingum . Alþingi samþykkti í vor að innleiða á Íslandi Evróputilskipun um myndmerkingar á tóbaksvörur en Lýðheilsustöð hefur beitt sér fyrir því að það yrði gert. Lesa meira
 

Hvað ætlar fjölskyldan að gera í sumar? - Næsti Náum áttum fundur - 24.5.2009 Áfengi og vímuefni

naum_attumNæsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 27. maí og ber yfirskriftina „Hvað ætlar fjölskyldan að gera í sumar?“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Reyklaus bekkur 2008-09: Úrslit - 20.5.2009 Tóbaksvarnir

Reyklaus_bekkur_2008-09Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins er lokið í ár. Bekkirnir kepptu að venju um lokaverðlaun, ferð til Danmerkur fyrir allan bekkinn, auk 2. og 3. sætis. Í ár tóku 324 skólar þátt og 100 lokaverkefni bárust, og hafa þau aldrei verið fleiri. 1. sæti hlaut 8. bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar.

Lesa meira
 

Síðdegishressing fyrir börnin á frístundaheimilum - 15.5.2009 Næring og holdafar

Börn að borða. smellið á myndina til að stækkaNauðsynlegt er fyrir börn, sem dvelja á frístundaheimilum eftir að skóladegi lýkur, að fá staðgóða hressingu síðdegis. Lýðheilsustöð og nemar í lýðheilsu-næringarfræði við HÍ könnuðu hvernig næringarmálunum væri háttað í frístundaheimilum á öllu landinu og niðurstaða könnunarinnar leiddi í ljós að flest þeirra bjóða börnunum síðdegishressingu. Aftur á móti mættu frístundaheimilin bæta sig í því að fara að ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um fæðuval í síðdegishressingu. Lesa meira
 

Hjólað í vinnuna 6. - 26. maí - 4.5.2009 Hreyfing

ISI_hjolad_i_vinnunaHvatningarverkefni ÍSÍ, Hjólað í vinnuna, stendur yfir dagana 6.-26. maí n.k. Tilvalið er að nýta verkefnið sem stuðning við að taka upp heilsusamlegar ferðavenjur og efla um leið liðsandann á vinnustaðnum. Það verndar og bætir heilsuna að hreyfa sig daglega, eins og fram kemur í riti Lýðheilsustöðvar Ráðleggingar um hreyfingu, og stöðin hvetur því sem flesta til að fara ferða sinna á hjóli eða tveimur jafnfljótum á meðan á verkefninu stendur - og auðvitað helst sem oftast allan ársins hring.

Lesa meira
 

Færri nota ljósabekki - 4.5.2009 Lýðheilsustöð

Samstarfshópur um varnir gegn útfjólublárri geislun hefur árlega fengið Capacent-Gallup til að kanna ljósabekkjanotkun. Nýleg könnun sýnir að sífellt dregur úr notkun þeirra og sérstaka athylgi vekur hversu fáir karlar segjast nota ljósabekki. Lesa meira
 

Samstarf við bakara um minna salt í brauðum - 29.4.2009 Næring og holdafar

RúgbrauðLýðheilsustöð hefur hvatt bakara landsins til að draga úr salti í brauðum, sem margir hafa þegar gert. Þetta er liður í að stuðla að minni saltneyslu landsmanna, sem heilsunnar vegna er of mikil. Landsmenn borða talsvert af brauði, þótt neysla grófs brauðs mætti vera meiri, og með því að minnka saltmagnið geta bakarar lagt sitt af mörkum til bættrar heilsu landsmanna. Lesa meira
 

Sjálfboðaliðastarf og gildi þess fyrir forvarnastarf. Næsti Náum áttum fundur. - 17.4.2009 Áfengi og vímuefni

Náum áttum - dagskrá aprílfundarNæsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 22. apríl og ber yfirskriftina „Sjálfboðaliðastarf og gildi þess fyrir forvarnarstarf“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Rangur texti í auglýsingu Lýðheilsustöðvar - 16.4.2009 Lýðheilsustöð

Hvað veistu um áfengi? smella á myndina til að skoða bæklinginnNýverið kom út á vegum Lýðheilsustöðvar fræðsluefni fyrir ungt fólk um áfengi og skaðsemi af völdum neyslu þess. Um er að ræða endurskoðaða útgáfu af bæklingnum „Hvað veistu um áfengi?“ sem út kom fyrir nokkrum árum. Úr bæklingnum voru unnin veggspjöld og auglýsingar en ein þeirra, „Ef þú drekkur ekki“, hefur vakið upp hörð viðbrögð ýmissa, einkum vegna orðalags. Við nánari skoðum kom í ljós að rangur texti hafði farið í auglýsinguna og er beðist velvirðingar á því að hann hafi orsakað særindi. Lesa meira
 

Fyrirlestrar um ofbeldi og slys á börnum komnir á vefinn - 31.3.2009 Slysavarnir

Morgunverðarfundur Lýðheilsustöðvar-slysavarnaráðs var haldinn á Grand hóteli 25. mars sl. fyrir fullu húsi og nú eru fyrirlestrar sem haldnir voru á fundinum komnir á vefsíðuna. Lesa meira
 

Klínískar leiðbeiningar um meðferð við reykingum - 31.3.2009 Tóbaksvarnir

Vakin er athygli á því að út eru komin drög klínískra leiðbeininga um meðferð við reykingum hjá Landlæknisembættinu. Leiðbeiningarnar eru birtar sem drög til umsagna en faglegar athugasemdir þurfa að berast fyrir 6. maí nk.

Lesa meira
 

Viðurkenning fyrir heilsueflingu á vinnustað - 27.3.2009 Lýðheilsustöð

Heil og sæl í vinnunni. smellið á merkið til að opna heimasíðu.Heilsueflingarverkefnið Heil og sæl í vinnunni, sem Lýðheilsustöð og Vinnueftirlitið standa að, veitti fjórum fyrirtækjum/skólum viðurkenningu sem fyrirmyndarvinnustaðir, þ.e. Actavis, leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði, Íslandspósti og Snælandsskóla í Kópavogi. Lesa meira
 

Börn og auglýsingabann - RÚV þakkað - 25.3.2009 Lýðheilsustöð

Stundin_okkarLýðheilsustöð fagnar framtaki RÚV að leyfa ekki lengur birtingar auglýsinga í tengslum við sýningar á barnaefni stöðvarinnar og vonar að aðrir sem birta barnaefni taki RÚV sér þar til fyrirmyndar. Rannsóknir sýna að auglýsingar hafa áhrif á matvælaval barna og foreldra sem og neyslu, einnig að í kringum barnatíma í sjónvarpi á Íslandi voru eingöngu auglýstar óhollar matvörur á borð við sykraða svaladrykki, sykrað morgunkorn, skyndibita, sælgæti og pylsur. Lesa meira
 

Brjóstamjólk besta næringin fyrir ungbörn - 23.3.2009 Næring og holdafar

Barn á brjósti - næring ungbarna. Smellið á mynd til að stækka. Fyrir skömmu birtust fréttir um að danskir vísindamenn, sem mælt hafa eiturefni í brjóstamjólk, teldu ekki ráðlegt að gefa börnum hana eftir fjögurra mánaða aldur. Þetta gengur þvert á ráðleggingar danskra heilbrigðisyfirvalda sem vísa þessu á bug. Landlæknisembættið, Lýðheilsustöð og Miðstöð heilsuverndar barna leggja mikla áherslu á að brjóstamjólk sé besta næring fyrir ungbörn enda er talið að kostir móðurmjólkur sem helsta næring barna á fyrsta ári vegi miklum mun þyngra en gallar. Lesa meira
 

Ofbeldi og slys á börnum - Morgunverðarfundur 25. mars - 19.3.2009 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð og slysavarnaráð standa fyrir morgunverðarfundi um ofbeldi og slys á börnum, miðvikudaginn 25. mars kl. 8 -10 á Grand Hóteli, Sigtúni. Skráning fer fram á www.lydheilsustod.is/skraning fyrir kl. 12 á hádegi þriðjudaginn 24. mars. Vinsamlegast merkið „Slysavarnir“.

Þátttökugjald er 2.000 kr. Innifalið í þátttökugjaldi er morgunverðarhlaðborð.

Lesa meira
 

Velferð barna - ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga. Næsti Náum áttum fundur - 12.3.2009 Áfengi og vímuefni

Náum áttum, mars 2009Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 18. mars og ber yfirskriftina „Velferð barna - ábyrgð og hlutverk sveitarfélaga“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Betri heilsa, hreyfing og hollt mataræði - ráðstefna 18. mars - 9.3.2009 Lýðheilsustöð

Betri heilsa, hreyfing og hollt mataræði. smellið á mynd til að lesa meira. Norræna nýsköpunarmiðstöðin (Nordic Innovation Centre), í samvinnu við formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni, og Lýðheilsustöð býður til ráðstefnunnnar Betri heilsa, hreyfing og hollt mataræði. Ráðstefnan er haldin 18. mars n.k. á Hótel Nordica. Lesa meira
 

Allt hefur áhrif í Kópavogi - 6.3.2009 Allt hefur áhrif

Kópavogspósturinn. smella á mynd til að stækkaLýðheilsustöð hrinti úr vör verkefninu Allt hefur áhrif-einkum við sjálf! árið 2005, samstarfsverkefni stöðvarinnar og nokkurra sveitarfélaga í landinu um bætt mataræði og hreyfingu barna og fjölskyldna í sveitarfélaginu. Hvert og eitt sveitarfélag vinnur að verkefninu með sínum hætti og segja má að í Kópavogi hafi málin nú verið tekin föstum tökum, eins og m.a. má sjá í nýjasta hefti Kópavogspóstsins undir fyrirsögninni „Koma svo Kópavogsbúar!“ Lesa meira
 

Fermingarbörn ættu ekki að fara í ljós - 2.3.2009 Lýðheilsustöð

Hættan er ljós. smellið á mynd til að stækkaNú þegar fermingar fara í hönd hefst átak sem beinist að fermingarbörnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Lesa meira
 

ÁRNAMESSA í STYKKISHÓLMI - laugardaginn 14. mars 2009 - 24.2.2009 Áfengi og vímuefni

Lýðheilsustöð boðar til málþings helgað Árna Helgasyni um stöðu áfengismála á Íslandi, haldið í grunnskóla Stykkishólms, Borgarbraut 6, kl. 12-16:30.

Málþing og rútur í boði Lýðheilsustöðvar (ókeypis fyrir þátttakendur).
MINNT ER Á AÐ RÚTURNAR FARA KL. 9 STUNDVÍSLEGA FRÁ BSÍ OG ERU UM 10 MÍN. SÍÐAR VIÐ N1 BENSÍNSTÖÐINA Á ÁRTÚNSHÖFÐA.

Árnamessa - Þurfi að koma skilaboðum áleiðis má hringja til Bryndísar, s. 8 400 903.

Skákmót - hringja má til Helga, s. 664 8320.

Lesa meira
 

Styrkumsóknir vegna heilsuáætlunar Evrópusambandsins - 20.2.2009 Lýðheilsustöð

EAHC_logo_pictureOpnað hefur verið fyrir nýjar styrkumsóknir vegna heilsuáætlunar Evrópusambandsins. Önnur heilsuáætlun ESB tók gildi 1. janúar 2008 og gildir í sex ár,eða til ársins 2013. Fjármagn sem er til ráðstöfunar vegna áætlunarinnar er 321,5 milljónir Evra á tímabilinu en því er ætlað að fjármagna samstarfsverkefni og aðgerðir sem stuðla að samstöðu og hagsæld innan ESB-landa. Lesa meira
 

Fæðuframboð á Íslandi 2007- Aukning á ávöxtum og grænmeti en einnig harðri fitu - 17.2.2009 Manneldi

Lýðheilsustöð hefur birt tölur um fæðuframboð á Íslandi fyrir árið 2007 hér á heimasíðunni. Þessar upplýsingar eru unnar reglulega og þótt þær veiti ekki upplýsingar um neyslu gefa þær vísbendingar um þróun á mataræði þjóðarinnar.

Lesa meira
 

Velferð barna - ábyrgð og hlutverk ríkis. Næsti „Náum áttum“ -fundur - 13.2.2009 Áfengi og vímuefni

Náum áttum, auglýsingNæsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 18. febrúar og ber yfirskriftina „Velferð barna - ábyrgð og hlutverk ríkis“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn - Rafrænt einelti - 5.2.2009 Lýðheilsustöð

logo,_saftÍ tilefni að alþjóðlega netöryggisdeginum þriðjudaginn 10. febrúar stendur SAFT fyrir málþingi um rafrænt einelti í Skriðu, Háskóla Íslands, við Stakkahlíð, kl. 14.30 – 16.15.

Lesa meira
 

LÍfshlaupið hefst - starfsmanni Lýðheilsustöðvar veitt gullmerki hlaupsins - 29.1.2009 Hreyfing

Lífshlaupið - smellið á merki til að opna vefsíðu hlaupsins.Lífshlaupið hefst 4. febrúar n.k. en það er hvatningarverkefni ÍSÍ sem hleypt var af stokkunum á síðasta ári og Lýðheilsustöð er samstarfsaðili að. Tilgangurinn er að hvetja alla landsmenn til að huga að daglegri hreyfingu sinni og segja má að það hafi tekist svo um munar hjá einum starfsmanni Lýðheilsustöðvar því hann hlaut í vikunni gullmerki Lífshlaupsins fyrir góðan árangur. Lesa meira
 

Forvarnasjóður - auglýst er eftir umsóknum um styrki - 29.1.2009 Áfengi og vímuefni

Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar og er einungis tekið við umsóknum sem skilað er á þar til gerðum eyðublöðum, sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar. Lesa meira
 

Stöndum við vörð um velferð barna? - næsti „Náum áttum“ -fundur - 26.1.2009 Áfengi og vímuefni

Náum áttum - dagskrá janúar 2009Næsti morgunverðarfundur Náum áttum verður miðvikudaginn 28. janúar og er yfirskriftin „Stöndum við vörð um velferð barna?“. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Nýtt fræðsluefni um áhrif áfengisneyslu - 22.1.2009 Áfengi og vímuefni

Hvað veistu um áfengi? Fræðslubæklingur fyrir ungt fólk. Smella á mynd til að skoða bæklinginn. Lýðheilsustöð hefur gefið út endurskoðaða útgáfu af fræðslubæklingnum Hvað veistu um áfengi? Um er að ræða útgáfu ætlaða ungu fólki og miðast efnistök og útlit við lesendahópinn. Lesa meira
 

Áfram örugg netnotkun - 14.1.2009 Áfengi og vímuefni

SAFT. Smellið á merkið til að opna vefsíðu SAFT. Lýðheilsustöð er nú formlegur samstarfsaðili SAFT-verkefnisins um örugga netnotkun, sem Heimili og Skóli stýrir. Nýlega var undirritaður samningur til næstu tveggja ára um að Evrópusambandið styðji verkefnið áfram. Auk Lýðheilsustöðvar, sem mun m.a. vinna að ýmsum fræðslumálum og ráðgjöf, er Capacent Gallup nú formlegur aðili að verkefninu en á þeirra vegum verður gerð viðamikil könnun á net- og nýmiðlanotkun Íslendinga. Lesa meira
 

Verður áramótaheitið í ár til fjár? - 7.1.2009 Tóbaksvarnir

Verður áramótaheitið í ár til fjár? Smellið á mynd til að stækka

Í upphafi nýs árs huga margir að því að breyta lifnaðar-háttum sínum til hins betra, ekki síst að hætta að reykja. Lýðheilsustöð hefur að undanförnu minnt á það, með skilaboðum í fjölmiðlum, að betri árangur næst með því að fá aðstoð við að hætta að reykja. Einnig er minnt á að kostnaðurinn við reykingar er mjög hár.

Lesa meira
 

Borðum fisk á nýju ári - 5.1.2009 Næring og holdafar

Fiskur tvisvar í viku. Smellið á mynd til að stækka. Nú þegar jól og áramót eru að baki, með tilheyrandi stórsteikum og öðrum orkuríkum mat, er um að gera að fagna nýju ári með því að hafa fisk á borðum. Fiskur er nefnilega heilsusamlegur matur fyrir alla aldurshópa. Lesa meira
 

Gleðilegt nýtt ár! - 1.1.2009 Lýðheilsustöð

HringurinnLýðheilsustöð óskar landsmönnum velfarnaðar og góðrar heilsu á nýju ári. Hlúum vel að þeim sem okkur þykir vænt um og standa okkur næst! Lesa meira
 




Fréttir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica