Sími : 5 800 900

Fréttir

Lýðheilsustöð og Heilbrigðisráðherra færa jólahjálpinni Velgengni og vellíðan - 11.12.2008 Lýðheilsustöð

velgengi_og_vellidan_forsidaFimm milljónir til sameiginlegrar jólahjálpar geta safnast núna fyrir jólin á sama tíma og við hlúum að geðheilsunni.

Forsvarsmenn Lýðheilsustöðvar og heilbrigðisráðherra færðu í dag fulltrúum Hjálparstarfs kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur og Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands bókina Velgengni og vellíðan-um geðorðin 10.

Bókin verður seld án þóknunar þannig að öll innkoma rennur óskipt til sameiginlegu jólahjálparinnar. Fimm milljónir renna til jólahjálparinnar ef allar bækurnar seljast. Bókin var afhent í Rauðakrossbúðinni, Laugavegi 116.

Lesa meira
 

Sálrænn stuðningur við ungt fólk - 24.11.2008 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð bendir á samantekt menntamálaráðuneytisins yfir sálrænan stuðning við börn og ungmenni í skólum landsins. Lesa meira
 

Heilsustefna ráðherra kynnt - 19.11.2008 Lýðheilsustöð

Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, kynnti heilsustefnu sína á fundi 18. nóvember. Heilbrigðisráðherra sagði að hún væri liður í því að geta veitt heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Snar þáttur í því væri að leggja stóraukna áherslu á forvarnir á öllum sviðum og stuðla að heilbrigðari lífsháttum einstaklinganna.

Lesa meira
 

Auðvelda valið verði holla valið - 12.11.2008 Næring og holdafar

Kolsýrt vatn, smellið á mynd til að stækka.Hluti af fræðslustarfi Lýðheilsustöðvar er að miðla upplýsingum um hollustu matvæla í þeim tilgangi að auðvelda fólki að velja það sem er hollara fyrir heilsuna framyfir það sem talist getur óhollara. Liður þar í eru fastir pistlar í Morgunblaðinu sem bera heitið Hollráð um heilsuna. Í þessri viku er fjallað um vatn og bragðbætta vatnsdrykki og áhrif þeirra á tannheilsu, ef einhver eru. Lesa meira
 

Síðdegishressing í eftirskólum og á frístundaheimilum - 11.11.2008 Næring og holdafar

Nauðsynlegt er fyrir börn að fá síðdegishressingu og þar þarf að hafa heilsu barnanna í huga, bæði til skamms og langs tíma litið. Til hægðarauka fyrir starfsfólk þá hefur Lýðheilsustöð gefið út ráðleggingar um hvers konar mat sé æskilegt að bjóða sem síðdegishressingu í eftirskólum og frístundaheimilum sveitarfélaganna. Lesa meira
 

Af bestu lyst 3 - hollt, gott og girnilegt - 3.11.2008 Næring og holdafar

Af Bestu Lyst, 3. Smellið á myndina til að stækka. Út er komin matreiðslubókin Af bestu lyst 3 en Lýðheilsustöð, Hjartavernd og Krabbameinsfélagið unnu með bókaforlaginu Vöku-Helgafelli að útgáfu bókarinnar. Nanna Rögnvaldardóttir, sem er landsþekkt fyrir mataruppskriftir sínar, valdi uppskriftirnar í þessa bók en eins og í fyrri bókunum, Af bestu lyst 1 og 2, fara hér saman uppskriftir að hollum og góðum mat sem jafnframt er girnilegur og spennandi. Lesa meira
 

Heilbrigðisstarfsfólk eflist í tóbaksmeðferð - 31.10.2008 Tóbaksvarnir

Í samanburði við aðrar þjóðir standa Íslendingar sig mjög vel í tóbaksvörnum, nema í aðstoð við að hjálpa fólki að hætta að reykja. Þar hefur heilbrigðisstarfsfólk mikilvægu hlutverki að gegna og til að efla það starf þá stendur heilbrigðisstarfsfólki til boða námskeið í tóbaksmeðferð hjá Endurmenntun HÍ 13. og 14. nóvember. Lesa meira
 

Munum eftir þorskalýsinu - ein teskeið á dag - 29.10.2008 Næring og holdafar

Þorskalýsi. smella á mynd til að stækkaNú þegar vetur er genginn í garð og sól lækkar á lofti er vert að minna á nauðsyn þess að fá sér daglega 1 teskeið (5 ml) af þorskalýsi eða annan D-vítamíngjafa. Lesa meira
 

Spörum ekki í öryggismálum - 28.10.2008 Slysavarnir

Núna þegar þjóðin stendur frammi fyrir efnahagsþrengingum sem hafa áhrif á allt samfélagið er mikilvægt að huga að öllum þáttum sem snerta velferð fólks, þar með talið eru öryggismál. Lesa meira
 

Landsmenn reykja minna en í fyrra - 21.10.2008 Tóbaksvarnir

Nýjustu tölur yfir umfang reykinga á Íslandi sýna að dregið hefur úr reykingum á síðustu árum. Lýðheilsustöð fær Capacent-Gallup til að kanna reykingavenjur landsmanna og sýna niðurstöðurnar fyrir árið 2008 að tíðni daglegra reykinga fullorðinna (15-89 ára) hefur lækkað úr 19,0% árið 2007 í 17,6% nú í ár. Þarna munar mest um að færri konur reykja. Lesa meira
 

Stöndum upprétt og tölum fyrir beinheilsu - 20.10.2008 Hreyfing

Beinþynning er lýðheilsuvandi sem herjar á fólk um allan heim og er talið að þriðja hver kona og fimmti hver karl brotni af hennar völdum. Í dag, 20. október 2008, er alþjóðlegur beinverndardagur og er þá m.a. minnt á að hægt er að minnka hættu á beinþynningu og brotum af hennar völdum með ýmsu móti.

Lesa meira
 

Námskeið í tóbaksvörnum fyrir heilbrigðisstarfsfólk - 15.10.2008 Tóbaksvarnir

Lýðheilsustöð í samstarfi við Landspítalann, Félag íslenskra lungnalækna, Félag heimilislækna, Félag hjúkrunarfræðinga, Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga og Tannlæknafélag Íslands stendur fyrir námskeiði í tóbaksvörnum fyrir heilbrigðisstarfsfólk dagana 13. og 14. nóvember. Lesa meira
 

Hugum að velferð barna - 8.10.2008 Lýðheilsustöð

Íslendingar standa nú á miklum tímamótum sem hafa víðtæk áhrif á unga sem aldna. Mikilvægt er að huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum. Lesa meira
 

Hlúðu að því sem þér þykir vænt um - Geðheilbrigðisdagurinn 2008 - - 7.10.2008 Geðrækt

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er haldinn 10. október ár hvert. Í ár er yfirskrift dagsins á Íslandi: „Hlúðu að því sem þér þykir vænt um“ og verður athyglinni einkum beint að ungu fólki. Viðamikil og skemmtileg dagskrá verður í tilefni af deginum og stendur hún yfir frá 6. - 10. október. Að auki hefur verið opnuð sérstök heimasíða geðræktardagsins: www.10okt.com

Lesa meira
 

Aðgát skal höfð - 3.10.2008 Lýðheilsustöð

Umræða um samdrátt og niðurskurð í atvinnulífinu með beinum afleiðingum fyrir heimili og fyrirtæki er mjög hávær og rökin fyrir henni skýr. Þetta er alvarleg umræða sem snertir unga sem aldna og þar af leiðandi er mikilvægt að vanda orðaval til að valda börnum, ungmennum, veikum og öldruðum ekki óþarfa kvíða. Myndskreytt PDF-skjal með þessum ábendingum. Lesa meira
 

Margir áhugasamir um heilsueflingu á vinnustöðum - 25.9.2008 Lýðheilsustöð

Fyrirlestrarnir sem fluttir voru á ráðstefnu um heilsueflingu á vinnustöðum, sem Lýðheilsustöð, Vinnueftirlitið og Háskólinn í Reykjavík stóðu að 18. sept. sl., eru nú komnir á vefinn. Ef marka má aðsókn að ráðstefnunni þá er mikill áhugi á málefninu því áætlað er að á milli 160-170 manns hafi sótt hana. Lesa meira
 

Hreyfum okkur í minnst 30/60 mínútur á dag! - 22.9.2008 Hreyfing

Ráðleggingar um hreyfingu, forsíða. Smelltu til að skoða ráðleggingarnar.Heilsunnar vegna – ekki síst geðheilsunnar – er fullorðnum ráðlagt að hreyfa sig í minnst 30 mínútur á dag og börnum 60 mínútur. En fara Íslendingar almennt eftir þessum ráleggingum? Á hádegisverðarfundi fimmtudaginn 25. september verður kynnt formlega ný útgáfa Lýðheilsustöðvar, Ráðleggingar um hreyfingu, og flutt forvitnileg erindi um ýmislegt sem viðkemur hreyfingu Íslendinga.

Lesa meira
 

„Göngum í skólann“- verkefnið er hafið á ný - 11.9.2008 Slysavarnir

„Göngum í skólann“ verkefnið er hafið í annað sinn á Íslandi. Meginmarkmið verkefnisins eru að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga hjóla eða fara á annan hátt til og frá skóla.

Lesa meira
 

Ávinningur heilsueflingar á vinnustöðum - ráðstefna 18. sept. - 11.9.2008 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð, Vinnueftirlitið og Háskólinn í Reykjavík standa að ráðstefnu varðandi heilsueflingu á vinnustöðum og ávinning af henni, fimmtudaginn 18. september n.k. Lesa meira
 

JÁKVÆÐ SÁLFRÆÐI - loksins á Íslandi! - 3.9.2008 Lýðheilsustöð

STYRKLEIKAR – HAMINGJA – HEILSA OG VELLÍÐAN „What would happen if we studied what is right with people?“ Lýðheilsustöð, ásamt fleirum, býður til málstofu og vinnusmiðju um jákvæða sálfræði dagana 11. og 12. september. Lesa meira
 

Áhættuhegðun ungra ökumanna - Morgunverðarfundur 9. september - 2.9.2008 Slysavarnir

lydheilsustod, merkiheader_logo,_umferdarradLýðheilsustöð/slysavarnaráð og Umferðarráð standa fyrir morgunverðarfundi um áhættuhegðun ungra ökumanna, þriðjudaginn 9. september kl. 8 -10 á Grand Hóteli. Tveir hollenskir sérfræðingar auk sérfræðings frá Umferðarstofu munu halda fyrirlestra og tækifæri gefst til fyrirspurna og umræðna.

Viðbætur 12.9.: Útdráttur úr fyrirlestrum og efni fundarins.

Lesa meira
 

Þekkingatorg - samstarf um upplýsingamiðlun á heilbrigðissviði - 27.8.2008 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð er einn af mörgum samstarfsaðilum um s.k. Þekkingatorg en það er aðgangsstýrð upplýsingamiðlun gagna á heilbrigðissviði. Þekkingatorgi er ætlað að auðvelda allt samstarf og verkefnavinnslu. Lýðheilsustöð hvetur alla sem á þessum vettvangi starfa til að nýta sér þennan aðgengilega miðil.   Lesa meira
 

Lykillinn að hollum skólamat - handbækur fyrir leikskólaeldhús og grunnskólamötuneyti - 25.8.2008 Næring og holdafar

Skólabörn borða. Smella á mynd til að stækka. Nú þegar líða tekur að hausti og grunnskólar og leikskólar eru að fara í gang eftir sumarfrí vill Lýðheilsustöð minna á hve mikilvægt er að sá matur sem börnum og unglingum stendur til boða sé hollur og næringarríkur. Lýðheilsustöð mælir með því að eldhús í grunn- og leikskólum nýti sér Handbók fyrir skólamötuneyti eða Handbók fyrir leikskólaeldhús sem Lýðheilsustöð gaf út.

Lesa meira

 

Vinningshafi evrópsku reykleysisverðlaunanna ,,Reyklaus 2008“ - 19.8.2008 Tóbaksvarnir

Valinn hefur verið vinningshafi verðlaunasamkeppninnar „Reyklaus 2008“ sem Reyksíminn og Lýðheilsustöð stóðu að. Lesa meira
 

Nýtt íslenskt grænmeti og nýtínd krækiber og bláber - 11.8.2008 Næring og holdafar

gulrætur eru herramannsmaturÁ þessu árstíma er gott úrval af nýju íslensku grænmeti á boðstólnum í matvörubúðum og því er tilvalið að landsmenn nýti sér þetta mikla úrval. Lesa meira
 

Foreldrar, unglingar og verslunarmannahelgin - 31.7.2008 Lýðheilsustöð

fjör í útileguVerslunarmannahelgin er ein stærsta útihátíðahelgin á Íslandi. Fjölmargt og fjölbreytt skemmtanahald freistar ungs fólks og margt þarf að hafa í huga. Lesa meira
 

Starfsfólki á veitingastöðum líður betur - 17.7.2008 Tóbaksvarnir

Síðastliðið sumar tóku gildi ný lög sem m.a. vernda starfsfólk á veitinga- og skemmtistöðum á Íslandi gegn því að vinna í reykmettuðu umhverfi. Með lagabreytingunni voru reykingar ekki lengur leyfðar innandyra. Vinnueftirlit ríkisins lét kanna starfsumhverfi og líðan starfsfólksins og sýna niðurstöður að almenn ánægja er á meðal starfsfólks með lagabreytinguna. Lesa meira
 

Samstarfssamningur Lýðheilsustöðvar og Landspítalans undirritaður - 4.7.2008 Tóbaksvarnir

Lýðheilsustöð og Landspítali - Háskólasjúkrahús hafa gengið til samstarfs um að vinna gegn tóbaksnotkun sjúklinga með skipulagðri fræðslu fyrir þá, viðeigandi meðferð og með gerð fræðsluefnis fyrir starfsfólk á sjúkrahúsinu. Lesa meira
 

Verum klár í sólinni - 30.6.2008 Heilsufar almennt

Mynd: Verum klár í sólinni. Smellið á myndina til að stækka. Lýðheilsustöð hefur tekið saman nokkur ráð um hvernig hægt er að verja sig gegn geislun sólarinnar. Ráðleggingarnar eru settar upp á léttan og læsilegan hátt á blaði í A4 stærð og því auðvelt að prenta út og hafa við höndina. Lesa meira
 

Fjölþjóðlegar niðurstöður HBSC kynntar - 20.6.2008 Heilsa og líðan skólanema

Niðurstöður fjölþjóðlegu rannsóknarinnar HBSC - Heilsa og lífskjör skólanema - voru kynntar með viðhöfn á Akureyri 18. júní. Niðurstöðurnar sýna stöðu íslenskra nemenda í samanburði við jafnaldra sína í þátttökulöndunum. Lesa meira
 

Næring ungbarna á 5 tungumálum - 9.6.2008 Næring og holdafar

Forsíða bæklingsins Næring ungbarna. Smella á myndina til að skoða bæklinginn.Lýðheilsustöð hefur látið þýða íslenskan texta fræðsluefnis sem snýr að næringu ungbarna á 5 tungumál. Um er að ræða bæklinginn Næring ungbarna, útgefinn 2003 af heilsugæslunni og Lýðheilsustöð sem nú hefur verið þýddur á ensku, pólsku, rússnesku, spænsku og taílensku.

Lesa meira

 

Hlutu viðurkenningu fyrir starf sitt að tóbaksvörnum - 30.5.2008 Tóbaksvarnir

Tóbakslaus_dagur_08_verðlaunahafar. smella á mynd til að stækka. Alþjóðlegi dagurinn án tóbaks er haldinn 31. maí ár hvert og í ár er þema dagsins Tóbakslaus framtíð. Í tilefni af deginum efndi Lýðheilsustöð til málþings í morgun þar sem m.a. var í fyrsta sinn veitt sérstök viðurkennig fyrir starf í þágu tóbaksvarna á Íslandi. Viðurkenninguna hlutu þeir Þorvarður Örnólfsson, Pétur Heimisson og Jóhannes Jónsson. Lesa meira
 

Tóbakslausi dagurinn 2008 - Tóbakslaus framtíð - 27.5.2008 Tóbaksvarnir

Tóbakslaus framtíð. smella á mynd til að stækka. Lýðheilsustöð býður til málþings á Grand hóteli föstudaginn 30. maí kl. 8:15-10:00. Á þinginu mun heilbrigðisráðherra afhenda þeim viðurkenningu sem þykja hafa skarað fram úr í tóbaksvörnum og tóbaksmeðferð á Íslandi. Lesa meira
 

Fjölmenning - næsti Náum áttum fundur - 26.5.2008 Áfengi og vímuefni

Náum áttum auglýsing 05.08. Smella á mynd til að stækka.Morgunverðarfundur Náum áttum er miðvikudaginn 28. maí og er að þessu sinni helgaður fjölmenningu. Morgunverðarfundirnir hafa verið mjög vel sóttir en skrá þarf þátttöku. Skráning er hjá: www.lydheilsustod.is/skraning Lesa meira
 

Ráðleggingar um hreyfingu - Ný útgáfa - 20.5.2008 Hreyfing

Ráðleggingar um hreyfingu. Smella á mynd til að skoða ritið. Í fyrsta sinn koma nú út hér á landi Ráðleggingar um hreyfingu í ýtarlegri mynd. Lýðheilsustöð gefur ráðleggingarnar út en áður hafa ráðleggingar um hreyfingu meðal annars verið hluti af ráðleggingum um mataræði og næringarefni. Lesa meira
 

Skóli og lýðheilsa - fyrirlestrar komnir á vefinn - 19.5.2008 Lýðheilsustöð

Hljómsveitin NaflakuskLýðheilsustöð stóð fyrir ráðstefnunni Skóli og lýðheilsa 9. maí s.l. og voru þátttakendur nærri 200 að tölu. Nú hafa fyrirlestrar og erindi frá ráðstefnunni verið sett á hér á vefsíðu Lýðheilsustöðvar. Lesa meira
 

Reyklaus bekkur 2008 - úrslit - 16.5.2008 Fréttir

Reyklaus bekkur 2007-2008. Smella á mynd til að stækka. Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja í skólum landsins er lokið í ár. Að venju keppa bekkirnir um lokaverðlaun, ferð til Danmerkur fyrir allan bekkinn. Dómnefnd mat þau rúmlega 70 lokaverkefni sem bárust og niðurstaðan liggur fyrir: Vinningshafi er 7. ÞEG í Hlíðaskóla. Lesa meira
 

Kynning á fyrstu niðurstöðum könnunar á heilsufari Íslendinga - Sól og sólbruni - - 13.5.2008 Lýðheilsustöð

Forsida,_heilsufarskonnunLýðheilsustöð og samstarfsaðilar kynntu fyrstu niðurstöður könnunarinnar Heilsa og líðan Íslendinga 2007 þriðjudaginn 13. maí kl 15:00 í húsnæði Sundlauganna í Laugardal. Lesa meira
 

Viðurkenning til baráttufólks gegn tóbaki - óskað eftir tilnefningum - 7.5.2008 Tóbaksvarnir

Alþjóðlegi tóbakslausi dagurinn er haldinn 31. maí ár hvert. Í tilefni af deginum í ár ætla ætla Reyksíminn og Lýðheilsustöð að veita viðurkenningu þeim einstaklingi eða hópi sem með baráttuvilja, framsýni og hugrekki hefur lagt sitt af mörkum í tóbaksvörnum eða tóbaksmeðferð þeirra sem heyja baráttu við tóbakið. Lesa meira
 

Mataræði aldraðra - ný handbók - 30.4.2008 Næring og holdafar

Mynd af forsíðu Handbókar um mataræði aldraðra. Smella á mynd til að skoða bókina. Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar Handbók um mataræði aldraðra sem ætlað er að auðvelda þeim störfin sem vinna við að skipuleggja matseðla og útbúa mat fyrir aldraða eða vinna við hjúkrun aldraðra. Handbókin kemur í handhægri plastmöppu í A4 stærð og fæst endurgjaldslaust. Lesa meira
 

Skóli og lýðheilsa - ráðstefna Lýðheilsustöðvar 9. maí - 28.4.2008 Lýðheilsustöð

Skóli og lýðheilsa, myndahnappur. Smella á hnappinn til að opna upplýsingasíðu ráðstefnunnar. Lýðheilsustöð stendur fyrir ráðstefnu 9. maí um skóla og lýðheilsu. Fyrirlesarar á ráðstefnunni er bæði innlendir og erlendir og þarna gefst kærkomið tækifæri til að kynnast því starfi sem verið er að vinna á þessum vettvangi, sem og því sem stefnt er að hér á landi. Ráðstefnan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir. Engin ráðstefnugjöld eru. Búið er að loka fyrir skráningu. Lesa meira
 

Rannsókn um reykingavenjur fólks á Íslandi - 18.4.2008 Tóbaksvarnir

Frá árinu 1985 hafa árlega verið gerðar rannsóknir á reykingum Íslendinga. Niðurstöður þessara rannsókna sýna að verulega hefur dregið úr reykingum á Íslandi undanfarin rúm 20 ár[1]. Þessi þróun er í samræmi við þróunina í nágrannalöndum okkar. Þessar rannsóknir hafa nýst til að fylgjast með þróun reykinga á Íslandi á þessu tímabilinu útfrá kyni og aldri. Hins vegar hafa íslenskar rannsóknir ekki fjallað nægjanlega mikið um hvað einkennir það fólk sem tekur ákvörðun um að hætta að reykja, þá sem tekst að hætta að reykja og hvaða leiðir hafa verið notaðar, t.d. hvort eða hvernig aðstoð fólkið hefur fengið. Lesa meira
 

Heilsuefling á vinnustöðum - 11.4.2008 Lýðheilsustöð

Nýverið komu út Ráðleggingar um heilsueflingu á vinnustöðum á vegum Vinnueftirlitsins og Lýðheilsustöðvar. Í tilefni af því var efnt til hádegisfundar um heilsueflingu á vinnustöðum miðvikudaginn 16. apríl í Háskólanum í Reykjavík kl. 12-14. Lesa meira
 

Reyklaus bekkur - tilkynning um vinningshafa og áminning um lokaskiladag - 3.4.2008 Tóbaksvarnir

Nemendur í reyklausum bekkjum vinna geisladiska. Um er að ræða gjafabréf frá Skífunni að verðmæti 2.500 krónur. Bekkirnir sem dregnir voru út eru : Lesa meira
 

Heilsa og líðan Íslendinga 2007 - dregið hefur verið í happdrættinu - 31.3.2008 Lýðheilsustöð

Þátttaka landsmanna í könnun Lýðheilsustöðvar Heilsa og líðan Íslendinga 2007 var góð og gagnavinnsla er hafin. Með því að taka þátt í könnuninni tóku þátttakendur um leið þátt í happdrætti sem nú hefur verið dregið í. Lesa meira
 

Vítamín og steinefni - fræðslubanki - 27.3.2008 Næring og holdafar

Hnappur fyrir vefsíðu um vítamína- og steinefnafræðslubankann.

Lýðheilsustöð og Matvælastofnun hafa opnað vefsíðu með upplýsingum og fræðslu um helstu vítamín og steinefni: www.lydheilsustod.is/vitamin

Lesa meira
 

Færri vilja að áfengi sé selt í matvöruverslunum - 14.3.2008 Áfengi og vímuefni

Lýðheilsustöð lét í ársbyrjun kanna viðhorf landsmanna til sölu bjórs og léttvíns í verslunum og sýna niðurstöður að nú vilja færri en áður að áfengi sé selt í matvöruverslunum. Lesa meira
 

Varað við ljósabekkjanotkun fermingarbarna - 5.3.2008 Lýðheilsustöð

Hættan er ljós, auglýsingHættan er ljós nefnist átak sem beinist að fermingarbörnum og foreldrum eða forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki. Lesa meira
 

Bókin Velgengni og vellíðan komin á metsölulista - 29.2.2008 Geðrækt

Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10, kápumyndBókin Velgengni og vellíðan - um geðorðin 10 kom út á vegum Lýðheilsustöðvar í desember sl. Strax í upphafi hlaut hún mjög góðar viðtökur og nú berast þau ánægjulegu tíðindi að bókin sé í 5. sæti yfir söluhæstu fræði- og handbækurnar í Eymundsson, bókaverslun. Lesa meira
 

Tíðni reykinga árið 2007 - 22.2.2008 Tóbaksvarnir

Lýðheilsustöð lætur árlega kanna tíðni reykinga meðal Íslendinga. Samantekt úr þeim fjórum úrtakskönnunum sem gerðar voru af Capacent – Gallup árið 2007 liggja nú fyrir. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi: Lesa meira
 

Almenn ánægja með reyklaus veitingahús - niðurstaða könnunar - 19.2.2008 Tóbaksvarnir

Mynd: allir veitingastaðir reyklausir 1.6. 2007. Smella á mynd til að stækka. Veitinga- og skemmtistaðir á Íslandi hafa verið reyklausir frá því breytingar á tóbaksvarnalögum tóku gildi 1. júní 2007. Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar, sem gerð var sl. haust, á viðhorfi fólks til þessara breytinga. Almennt sýna niðurstöðurnar að fólk er ánægt og finnst betra að koma á þessa staði eftir breytingu þar sem andrúmsloftið hefur batnað svo mikið – og þar af leiðandi einnig vinnuaðstæður fólks á þessum stöðum. Lesa meira
 

Viðbættur sykur í matvælum - 6.2.2008 Næring og holdafar

Viðbættur sykur í matvælum hefur verið áberandi í umræðunni að undanförnu. Lýðheilsustöð hefur tekið saman ýmsan fróðleik um viðbættan sykur, t.d.: Hvað er viðbættur sykur? Einnig ráðleggingar um neyslu, myndir sem sýna viðbættan sykur í ýmsum vörutegundum og fleira. Þess er vænst að þessar upplýsingar veiti svör við einhverjum þeirra spurninga sem leitað hefur verið svara við. Lesa meira
 

Öryggisins vegna er ekki mjög mikill munur á 2+1 eða 2+2 vegum - 6.2.2008 Slysavarnir

Lýðheilsustöð stóð fyrir morgunverðarfundi slysavarnaráðs á Grand hóteli í morgun með yfirskriftinni ,,2+2 EÐA 2+1 VEGIR: Öryggi vegfarenda – kostnaður samfélagsins – erum við á réttri leið?” Góð þátttaka var í fundinum og skiptust menn á skoðunum um ágæti þessara vegakerfa. Ekki var þó laust við að tónninn í garð 2+1 vega væri jákvæðari, sérstaklega með tilliti til öryggis miðað við kostnað. Lesa meira
 

Reyklaus bekkur - tveir bekkir vinna vandaða bakpoka - 5.2.2008 Tóbaksvarnir

Nú hafa verið dregnir út tveir bekkir í samkeppninni Reyklaus bekkur og vinna allir nemendur þessara bekkja og kennarar Eastbak bakpoka. Lesa meira
 

Skilafrestur á rannsókninni Heilsa og líðan Íslendinga 2007 - 1.2.2008 Lýðheilsustöð

Heilsufarskönnun, auglýsingEftir mjög góðar viðtökur hjá landsmönnum sem valdir voru til þátttöku í rannsókninni hefur verið ákveðið að framlengja skilafresti til að enn fleiri sjái sér fært að skila inn útfylltum spurningalistum. Lesa meira
 

Morgunverðarfundur Slysavarnaráðs - 31.1.2008 Slysavarnir

Miðvikudaginn 6. febrúar nk. verður áhugaverður morgunverðarfundur sem Slysavararáð efnir til og ber heitið „2+2 eða 2+1 vegir: Öryggi vegfarenda - kostnaður samfélagsins - erum við á réttri leið?“. Fundurinn verður haldinn á Grand Hóteli. Lesa meira
 

Forvarnasjóður - umsóknir um styrki skilist inn í síðasta lagi 18. febrúar - 25.1.2008 Áfengi og vímuefni

Minnt er á að síðasti dagur til að skila inn umsóknum um styrki úr forvarnasjóði er 18. febrúar. Einungis er tekið við umsóknum sem skilað er á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast hér á vef Lýðheilsustöðvar.

Lesa meira
 

Ert þú „Tóbakslausi maður/kona ársins 2008“? - 18.1.2008 Tóbaksvarnir

Taka þáttReyksíminn og Lýðheilsustöð hafa ákveðið að setja af stað verðlaunasamkeppnina „Reyklaus 2008“.
Leitað er að þeim sem eru tilbúnir að hætta að reykja, eða eru þegar hættir, og búa yfir góðri sögu sem getur verið hvatning fyrir aðra í baráttunni gegn tóbaki. Verðlaunasamkeppnin er hluti af „European Smoke Free Awards 2008“ sem Evrópuráð reyksíma stendur að. Aðalverðlaun fyrir vinningshafann á Íslandi eru ferð til Amsterdam, á evrópsku verðlaunaafhendinguna, ásamt 100.000 krónum í gjaldeyri.

                                                            Taka þátt

Lesa meira
 

Áherslan á aðstoð við að hætta að reykja - 14.1.2008 Tóbaksvarnir

Tóbaksvarnaauglýsing, Fyrirmynd. Smella á mynd til að stækka. Lýðheilsustöð hefur látið útbúa sex nýjar tóbaksvarnaauglýsingar þar sem áhersla er lögð á mikilvægi þess að fá aðstoð við að hætta notkun tóbaks. Auglýsingarnar hafa verið að birtast á sjónvarpsstöðvunum frá áramótum og í ýmsum prentmiðlum. Lesa meira
 

Slysavarnaráð ályktar um breytingu á áfengislögum - 4.1.2008 Slysavarnir

Á fundi sínum í desember samþykkti slysavarnaráð umsögn um frumvarp til breytinga á lögum um áfengi þar sem ráðið lýsir m.a. yfir áhyggjum sínum um að hugsanlega geti fyrirhugaðar breytingar leitt til enn fleiri slysa og ofbeldisverka í samfélaginu. Lesa meira
 




Fréttir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica