Beint í leiðarkerfi vefsins.
Lýðheilsustöð óskar landsmönnum gleði og góðrar heilsu á nýju ári og minnir um leið á að varúðar er þörf við meðferð flugelda um áramótin.
Lesa meira
Lýðheilsustöð kynnir nýútgefna bók sína Velgengni og vellíðan - Um geðorðin 10 í Borgarbókasafninu, Tryggvagötu, í hádeginu í dag og við sama tækifæri tekur heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, formlega við eintaki af bókinni. Kynningarfundurinn er öllum opinn.
Lesa meira
Bókin Holdafar – hagfræðileg greining, eftir Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur heilsuhagfræðing, sem Lýðheilsustöð gaf út fyrir skömmu, hefur hlotið mikla athygli og um hana verið fjallað í mörgum fjölmiðlum landsins.
Lesa meira
Hvert stefnum við í forvarnamálum á Íslandi er umræðuefni morgunverðarfundar Náum áttum samstarfshópsins sem fram fer á Grand-hóteli miðvikudaginn 28. nóvember. Fjallað verður um hvað liggi að til grundvallar stefnumótun ríkistjórnarinnar í forvarnamálum, aðgerðaráætlun í málefnum barna og unglinga og forvarnastarf almannasamtaka.
Lesa meira
talið því meirihluti fullorðinna Íslendinga er yfir kjörþyngd. En hvaða hagfræðilegu áhrif á samfélagið hafa þeir lifnaðarhættir íbúanna sem orsaka þennan kvilla? Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, heilsuhagfræðingur, leitar svara við þessari spurningu, og fleirum er snerta holdafar, í nýútkominni bók sinni Holdafar – hagfræðileg greining, sem var að koma út kom á vegum Lýðheilsustöðvar. Kynning verður í Norræna húsinu í hádeginu mánudaginn 26. nóvember.
Lesa meira
Lesa meira
Lesa meira
Lesa meira
fá krabbamein, eins og fram kemur í nýrri skýrslu World Cancer Research Fund og American Institute for Cancer Research ,,Food, Nutrition, Physical Activity, and the Prevention of Cancer: a Global Perspective”.
Lesa meira
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað við auknu framboði af e-töflum. Sérstakur áhættuhópur hvað e-töflurnar varðar er ungt fólk og þar sem um er að ræða mjög hættulegt efni þykir lögreglu ástæða til þessara varúðarráðstafana. Lýðheilsustöð tekur undir varnaðarorð lögreglunnar.
Lesa meira
Munntóbaksnotkun fer vaxandi á Íslandi þótt bannað hafa verið að flytja munntóbak inn frá árinu 1997. ,,Munntóbaksleiknum" Ekki segja sííísss! er ætlað að vekja athygli ungs fólks - og annarra - á áhrifum munntóbaksnotkunar og er það gert með því að fá fólk til að taka þátt í leik á vefnum.
Lesa meira
Reyklaus bekkur-verkefnið er nú að fara af stað, 9. árið í röð, og allir 7. og 8. bekkir í grunnskólum landsins geta skráð sig til leiks.
Lesa meira
Nemendur í 1. bekk grunnskóla Seltjarnarness hófu í dag formlega verkefnið Göngum í skólann með því að ganga með ríkislögreglustjórarnum, bæjarstjóra Seltjarnarness, kennurum og fleirum í nágrenni skólans. Í um 40 löndum víðs vegar um heiminn ganga nemendur og foreldrar í skólann í októbermánuði en Göngum í skólann-dagurinn er 3. október.
Lesa meira
Þörf er fyrir fleiri úrræði sem styðja reykingafólk í að hætta tóbaksnotkuninni og fleira fagfólk sem sinnir þessu stuðningsstarfi. Lýðheilsustöð og Heilsugæslan stóðu fyrir fræðslufundi og námskeiði í hvetjandi samtalstækni og nokkur erindanna sem þar voru flutt eru nú aðgengileg hér á heimasíðunni.
Lesa meira
Í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum, 10. október, sem að þessu sinni er helgaður geðheilsu í heimi þar sem fólk af mörgum þjóðernum býr saman á einum stað, hefur Lýðheilsustöð látið þýða geðorðin 10 á sex tungumál og eru þau nú til á alls átta tungumálum.
Lesa meira
Árlega standa iðjuþjálfar fyrir svokölluðum Skólatöskudögum þar sem fram fer sérstök fræðsla um mikilvægi þess að skólatöskur séu ekki of stórar né of þungar. Haustið 2008 kom út nýr fræðslubæklingur um þetta efni, en hér á eftir er fræðsluefni sem birtist árið 2007.
Lesa meira
standa að verkefninu Hraust saman - eða ,,Healthy Together" - sem snýst um heilsueflingu á vinnustöðum, með áherslu á smáa og meðalstóra vinnustaði.
Lesa meira
Út er kominn nýr fræðslubæklingur Fólat – fyrir konur sem geta orðið barnshafandi þar sem fjallað er um mikilvægi fólats fyrir konur á barneignaaldri. Lýðheilsustöð, Landlæknisembættið og Miðstöð mæðraverndar standa að útgáfu bæklingsins en efni hans er byggt á eldri bæklingi um sama efni, auk þess sem nýjar upplýsingar koma þar fram.
Lesa meira
Út er komin hjá Lýðheilsustöð, Ársskýrsla 2006. Þessi ársskýrsla, sem nú er gefin út, nær yfir starfsemi Lýðheilsustöðvar á árinu 2006 en að auki er minnst á nokkra mikilvæga viðburði sem áttu sér stað á árinu 2005.
Lesa meira
Í umræðu um forvarnir og áfengismál ber oft á þeim misskilningi að forvarnir snúist eingöngu um fræðslu um skaðsemi áfengis og ábyrgt uppeldi barna. Öflugt forvarnarstarf felst ekki síður í réttum stjórnvalds-aðgerðum. Niðurstöður fjölda rannsókna hafa sýnt að aðgengi og verð á áfengi eru lykilþættir sem ákvarða heildar áfengisneyslu hverjar þjóðar.
Lesa meira
Með hverju árinu fjölgar þeim stöðum á landinu þar sem á sumrin er boðið upp á bæjar- og/eða útihátíð, landsmönnum yfirleitt til ánægju og yndisauka. Lýðheilsustöð vill þó vekja athygli foreldra og skipuleggjenda þessara hátíða á þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir hvað varðar þátttöku barna og ungmenna í hátíðahöldunum.
Lesa meira
Reykingabanninu á veitingarhúsum og skemmtistöðum hefur verið afar vel tekið hér á landi. Svo virðist sem landinn hafi verið fljótur að laga sig að breyttum aðstæðum. Reynslan frá öðrum löndum hefur sýnt hið sama í gegnum tíðina. Óhætt er að segja að lagabreytingarnar njóta víðtæks stuðnings meðal almennings, þrátt fyrir að vart yrði ákveðins kvíða um að draga myndi úr viðskiptum.
Lesa meira
ar sælgæti og smáhlutir eru annars vegar, hefur nú verið endurútgefinn. Bæklingurinn hefur verið ófáanlegur um nokkurt skeið, en töluvert hefur verið spurt um hann.
Lesa meira
Nú er á auðveldan hátt hægt að nálgast upplýsingar hjá Matís um efni sem eru í algengum matvælum. Upplýsingarnar eru í íslenska gagnagrunninum ÍSGEM og segja til um allt að 45 efni í um 900 fæðutegundum.
Lesa meira
Áfengi og áfengisneysla er hluti af því samfélagi sem við búum við. Neyslan fer reyndar vaxandi og salan eykst á sumrin. Í sumar munu birtast nýjar auglýsingar Lýðheilsustöðvar sem minna landsmenn á að áfengisneyslunni fylgir ábyrgð.
Lesa meira
Nú styttist í 1. júní 2007 en þá munu taka gildi breytingar á tóbaksvarnalögum. Þessar breytingr fela í sér að ekki má leyfa reykingar í þjónusturými veitinga- og skemmtistaða á Íslandi. Staðurinn skal vera alveg reyklaus og ekki má skipta í reyk og reyklaus svæði.
Lesa meira
Á kynningarfundi Lýðheilsustöðvar í dag voru kynntar niðurstöður ESPAD-rannsóknarinnar 2007 og formleg úthlutun úr Forvarnasjóði fór fram.
Íslensku lýðheilsuverðlaunin voru afhent í fyrsta sinn, í morgun, 24. apríl 2007, og voru verðlaunin afhent af Siv Friðleifsdóttur heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra. Ákveðið var að veita SAMAN-hópnum Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2007 fyrir að leiða saman ólíka aðila til stuðnings íslenskum foreldrum í vandasömu uppeldishlutverki þeirra. Afhending verðlaunanna fór fram í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.
Lesa meira
Miðvikudaginn 28. mars buðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð og Samtök iðnaðarins til morgunverðarfundar á hótel Nordica þar sem til umfjöllunar var samstarf um aukið framboð á hollum matvörum, markaðssetning, vöruþróun og skammtastærðir.
Hafin er undirbúningur að því að á öllum tóbaksvörum, sem seldar eru á Íslandi, verði myndir til aðvörunar um skaðsemi tóbaks og kæmu þær þá í stað viðvaranna sem nú eru á þessum vörum. Íslendingar yrðu þá meðal fyrstu þjóða sem merktu tóbaksvörur á þennan hátt.
Lesa meira
Evrópusambandið hefur sent frá sér drög að stefnu - s.k. „Green paper“- um tóbaksvarnir í Evrópusambandslöndunum. Áður en stefnan verður samþykkt gefst öllum, sem áhuga hafa, tækifæri til að gefa álit sitt á henni.
Lesa meira
Frítt til Evrópu fyrir reyklausa var keppni ætluð ungu fólki á aldrinum 15-20 ára og liður í að hvetja ungt fólk á þessum aldri til reykleysis. Þátttakendum var skipt í tvo hópa, annars vegar reyklausa og hins vegar þeir sem reyktu en vildu hætta.
Lýðheilsustöð hefur birt svokölluð heilsuskilaboð í ýmsum miðlum og nú hefur eitt þeirra verið tilnefnt til íslensku auglýsingaverðlaunanna, Lúðursins, í flokknum ,,almannaheillaauglýsingar - prentmiðlar".
Lesa meira
góð viðbót í hópi þeirra sem veita reykleysisaðstoð en það eru Lyf og heilsu-apótekin og ber að fagna þessu framtaki.
Lesa meira
Transfitusýrur hafa verið talsvert í umræðunni að undanförnu. Lýðheilsustöð hefur tekið saman nokkur áhersluatriði sem vonandi gefa svör við helstu spurningum sem vaknað hafa í kjölfar umræðunnar.
Lesa meira
Borðum meiri fisk! er heitið á nýjum bæklingi með 20 ljúffengum fiskuppskriftum sem Lýðheilsustöð hefur látið útbúa og gefur á hvert heimili í landinu. Þetta er liður í að stuðla að meiri fiskneyslu í landinu en hún fer stöðugt minnkandi sérstaklega hjá ungu fólki. Uppskriftabæklingurinn og átakið var kynnt í dag en pósturinn ber síðan bæklinginn í hvert hús í landinu í þessari viku.
Lesa meira
Lýðheilsustöð vekur athygli á því að Evrópusambandið er nú að auglýsa eftir umsóknum um styrki til verkefna á sviði lýðheilsu. Upplýsingadagur verður í Lúxemborg 28. febrúar nk.
Lesa meira
nýverið gefið út Ráðleggingar um mataræði, sem landsmenn er hvattir til að kynna sér, en í ljósi umræðunnar að undanförnu vill stöðin vekja sérstaka athygli á því að í ráðleggingunum er lögð áhersla á að nota olíu eða mjúka fitu í stað harðrar fitu og jafnframt að stilla neyslu á fitu og feitum matvörum í hóf.
Lesa meira
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna og eru styrkir veittir til verkefna eða afmarkaðra rannsókna. Lögð er áhersla á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum og ungmennum á mismunandi skólastigum eða ungu fólki utan skóla. Þá er auglýst sérstaklega eftir verkefnum sem taka til félagslegrar stöðu ungs fólks og ungs fólks af erlendum uppruna.
Lýðheilsustöð sendir landsmönnum bestu óskir um gott og farsælt nýtt ár! 
Margir nota áramót sem tíma til að breyta einhverju í lífi sínu, s.s. til að huga betur að líkamlegri og andlegri heilsu. Margir ætla að minnka stressið, hreyfa sig meira, borða hollari mat og hætta að reykja. Lýðheilsustöð vonar að hún geti þarna orðið að liði og bendir í því sambandi á margt ágætis fræðsluefni sem hægt er að panta hjá stöðinni - eða einfaldlega lesa hér á síðunni.