Sími : 5 800 900

Fréttir

Hvatt til neyslu óáfengra drykkja - 28.12.2006 Áfengi og vímuefni

Um hátíðarnar og þá ekki síst um áramótin finnst mörgum gaman að skála í fallegum drykk í tilefni tímamótanna. Brautin, bindindisfélag ökumanna í samstarfi við ýmsa aðila, stendur nú, í þriðja skipti fyrir hvatningu til neyslu óáfengra drykkja. Að þessu sinni var Jói Fel. fenginn til að búa til Hátíðardrykk 2007. Lesa meira
 

Reyklausir veitingastaðir - undirbúningur hafinn - 19.12.2006 Tóbaksvarnir

Límmiði, Reyklaus staður frá 1. júní 2007. smella á mynd til að stækkaAllir veitinga- og skemmtistaðir á Íslandi verða reyklausir frá og með 1. júní nk. skv. lögum. Þegar er hafin vinna við að undirbúa rekstraraðila undir þessa breytingu, m.a. lét Lýðheilsustöð útbúa kynningarbækling um málið, í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar, og sendi nýverið til allra veitingahúsa á landinu. Lesa meira
 

Fjárhagsleg staða barna og heilsusamlegir lífshættir - 12.12.2006 Lýðheilsustöð

Á hvaða hátt kann fjárhagsstaða fjölskyldunnar að hafa áhrif á heilsusamlega lífshætti barna og unglinga á Íslandi, með tiliti til hreyfingar, næringar og holdafars? Rannsóknarniðurstöður, sem fengust úr hluta rannsóknarinnar Heilsa og lífskjör skólanema, benda til að börn sem búa við fátækt á Íslandi hreyfi sig minna en önnur börn, borði sjaldnar hollan mat og séu líklegri til að vera of þung og of feit. Áður hefur verið sýnt að börn í efnaminni fjölskyldum fara sjaldnar til tannlæknis en börn úr efnameiri fjölskyldum. Lesa meira
 

Umsögn Lýðheilsustöðvar um breytingu á lögum um ,,matarskatt" - 8.12.2006 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð sendi efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis umsögn vegna breytinga á lögum um vörugjald og virðisaukaskatt á matvælum, þar sem einkum er bent á neysluhvetjandi áhrif þess að lækka gjöld af gosdrykkjum og öðrum drykkjum með viðbættum sykri. Slíkar aðgerðir samræmast ekki manneldissjónarmiðum sem ættu að vera lögð til grundvallar breytingum sem þessum. Lesa meira
 

Reykingar enn á niðurleið - 1.12.2006 Tóbaksvarnir

Lýðheilsustöð fékk Capacent Gallup til að kanna umfang reykinga á Íslandi á árinu 2006. Kannanirnar fóru fram snemma árs, um mitt ár og í lok árs. Samantekt kannanna þriggja liggur nú fyrir og birtast niðurstöðurnar hér.

Lesa meira
 




Fréttir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica