Beint í leiðarkerfi vefsins.
Allir veitinga- og skemmtistaðir á Íslandi verða reyklausir frá og með 1. júní nk. skv. lögum. Þegar er hafin vinna við að undirbúa rekstraraðila undir þessa breytingu, m.a. lét Lýðheilsustöð útbúa kynningarbækling um málið, í samstarfi við Samtök ferðaþjónustunnar, og sendi nýverið til allra veitingahúsa á landinu.
Lesa meira
Lýðheilsustöð fékk Capacent Gallup til að kanna umfang reykinga á Íslandi á árinu 2006. Kannanirnar fóru fram snemma árs, um mitt ár og í lok árs. Samantekt kannanna þriggja liggur nú fyrir og birtast niðurstöðurnar hér.
Lesa meira
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins hefur undanfarin ár fylgst náið með magni mengunarefna - þungmálma og þrávirkra lífrænna efna - í fiski af Íslandsmiðum. Þessi efni mælast ætíð langt undir þeim viðmiðunarmörkum sem sett hafa verið af Evrópusambandinu í íslensku sjávarfangi, sem við borðum hvað mest af, t.d. ýsu, rækju, þorski, grálúðu, laxi, smálúðu, lúðu (minni en 1m eða 12 kg), ýmsum kolategundum og svo mætti lengi telja.
Lesa meira
Kominn er út á vegum Lýðheilsustöðvar bæklingurinn Ráðleggingar um mataræði og næringarefni. Ráðleggingarnar eru ætlaðar fullorðnum og börnum frá tveggja ára aldri og eiga þær að auðvelda fólki að velja fæði í samræmi við næringarefna- og orkuþörf sem og ráðlagða dagskammta af ýmsum vítamínum og steinefnum.
Lesa meira
Verkefni Lýðheilsustöðvar: Allt hefur áhrif – einkum við sjálf hefur fengið viðurkenningu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO Counteracting Obesity Award – fyrir lýðheilsustarf sem styður við aðgerðir sveitarfélaga til að efla lýðheilsu með bættri næringu og aukinni hreyfingu sem eru liðir í að sporna gegn vaxandi offitu þjóðarinnar.
Verkefni Lýðheilsustöðvar: Allt hefur áhrif – einkum við sjálf hefur fengið viðurkenningu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO Counteracting Obesity Award – fyrir lýðheilsustarf sem styður við aðgerðir sveitarfélaga til að efla lýðheilsu með bættri næringu og aukinni hreyfingu sem eru liðir í að sporna gegn vaxandi offitu þjóðarinnar.
Lýðheilsustöð hefur ýtt úr vör keppni fyrir reyklausa og er hún ætluð ungu fólki á aldrinum 15-20 ára. Allir sem skrá sig til leiks og eru á þessum aldri eiga þess kost að vinna utanlandsferð. Þátttakendum er skipt í tvo hópa, annars vegar eru reyklausir og hins vegar þeir sem reykja en vilja hætta. Veglegir vinningar eru í boði.
sjúkrahús eftir slíka neyslu. Neysla E-töflu er alltaf hættuleg og vegna atburða helgarinnar hefur Lögreglan Í Reykjavík verið að vara sérstaklega við notkun E-töflunnar - og undir þau varnaðarorð tekur Lýðheilsustöð.
Lesa meira
Slysavarnaráð hélt sitt 7. landsþing 19. október 2006 undir yfirskriftinni ,,Slysavarnir aldraðra”.
Lesa meira
Árleg evrópsk vinnuverndarvika stendur nú yfir. Í ár er vinnuverndarvikan helguð ungu fólki og er yfirskrift hennar Örugg frá upphafi. Af þessu tilefni stendur Vinnueftirlitið fyrir morgunverðarfundi á Grand Hóteli, þriðjudaginn 24. okóber, þar sem flutt verða erindi um vinnuaðstæður og vinnuslys ungs starfsfólks.
Lesa meira
mál að hætta að reykja, taka bara ákvörðunin og hætta - ekkert mál. Öðrum reynist það erfiðara og hafa jafnvel reynt margoft. Frá og með morgundeginum gefst tækifæri til að hætta um leið og nokkrir þekktir einstaklingar með aðstoð þáttarins 6 til 7 á Skjá Eiinum.
Lesa meira
Fiskneysla landsmanna fer stöðugt minnkandi og er það orðið áhyggjuefni. Ungt fólk borðar almennt sérlega lítið af fiski. Ýmislegt er verið að gera til að hvetja landsmenn til að borða meiri fisk og þessa dagana stendur yfir hátíðin Fiskirí en þar leggja um 80 veitingahús sérstaka áherslu á gómsæta fiskrétti.
Lesa meira
september. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár og skiptast heilbrigðisstofnanir á að halda hana. Áhersla ráðstefnunnar að þessu sinni er óbeinar reykingar og reykingar á vinnustöðum og í vinnuumhverfi en einnig verður fjallað um reykingar út frá sjónarhóli heilsugæslu og það sem efst er á baugi varðandi reykleysismeðferð.
Lesa meira
verslunarmannahelgina. Í flestum tilfellum gengur allt vel á slíkum hátíðum en eins og reynslan hefur sýnt hafa því miður komið upp tilvik þar sem ungt fólk hefur lent í vanda – sem væntanlega hefði mátt koma í veg fyrir hefðu foreldrar eða aðrir fullorðnir verið með í för.
Lesa meira
Þegar vara er auglýst þá er tilgangurinn vanalega sá að fá fólk til að muna eftir og langa í vöruna - sem leiðir svo gjarnan til þess að varan er keypt. Auglýsingar hafa sterk áhrif á börn og ungt fólk og því er auglýsingum gjarnan beint að þeim. Þetta gildir t.d. mjög um áfengisauglýsingar, þar sem áfengi og ,,skemmtilegar” stundir er gjarnan sýnt saman. Bannað er með lögum að auglýsa áfengi á Íslandi en ótal dæmi sýna hvernig farið er í kringum þessi lög – nægir að nefna ýmsar verslunarmannahelgarauglýsingar nú í ár. Og nú er meira að segja svo langt gengið að hægt er að kaupa barnaleikföng með áfengisauglýsingum.
Lesa meira
Í fjölmiðlum undanfarið hefur mikið verið rætt um eftirlitslausa unglinga á
bæjarhátíðum og tjaldstæðum víða um land. Nú þegar líður að verslunarmannahelgi nær þessi umræða hámarki og er sérstaklega talað um þátt foreldra. Sjálfræðisaldurinn er við 18 ára aldur og því hefur verið talað um 18 ára ábyrgð í þessu sambandi. Sú ábyrgð gildir alltaf og fer ekki í sumar- eða helgarfrí.
Lesa meira
Lýðheilsustöð er í samstarfi við verslanakeðjur í landinu um að fók yngra en 18 ára hvorki selji né kaupi tóbak hjá þeim.
Lesa meira
nota tóbak, drekka áfengi, neyta ólöglegra vímuefna eða aka undir áhrifum og langt yfir löglegum hraða. Viðburðir eins og 17. júní skapa sérstaka hættu. Þessa dagana og mánuði eru ýmsir aðilar að birta skilaboð til að minna á þetta - og þeirra á meðal eru Lýðheilsustöð og SAMAN-hópurinn.
Lesa meira
,,Dagur án tóbaks" vekur hjá mörgum löngun til að láta verða af því að hætta tóbaksnotkuninni og auglýsingar og fræðsluefni sem Lýðheilsustöð birti í tilefni af deginum er ætlað að hvetja til slíks. Nýlega kom út sjálfshjálparbæklingurinn Hættu fyrir lífið sem aðstoðað getur þá sem vilja hætta.
Lesa meira
til að nota tækifærið og hætta að nota tóbak. Slík breyting á hegðun gerist í yfirleitt í þrepum og Lýðheilsustöð hefur útbúið efni á heimasíðunni með ráðleggingum til auðvelda fólki að hætta. Einnig eru upplýsingar um þá sem veita aðstoð við að hætta tóbaksnotkun.
Lesa meira
nskólar taka þátt í þessu verkefni ásamt 21 öðru Evrópulandi. Í ár voru um 320 bekkir skráðir til leiks en þátttakan hefur verið góð öll árin. Bekkirnir staðfestu reykleysi sitt 6 sinnum í gegnum vefsíðu Lýðheilsustöðvar.
Lesa meira
Kynningarfundur var haldinn 15. maí í tilefni
af útkomu nýrrar skýrslu um niðurstöður rannsóknar á mataræði 9 og 15 ára barna og unglinga, sem Rannsóknastofa í næringarfræði og Lýðheilsustöð standa að en rannsóknin var unnin af RÍN 2003-2004. Höfundar skýrslunnar eru Inga Þórsdóttir, prófessor og Ingibjörg Gunnarsdóttir, dósent við Háskóla Íslands.
Hérna er hægt að nálgast ýmiss konar talnaefni og skýrslur sem tengjast áfengis- og vímuefnrannsóknum og umfjöllunum um þær. Einnig um sértæk viðfangsefni sem flokkast ekki undir aðra liði hér á vinstri hönd. Sumar rannsóknir spanna mörg svið og geta því verið á fleiri en einum stað.
Lesa meira
Landssamtök hjólreiðamanna standa fyrir ráðstefnunni Látum hjólin snúast - ráðstefna um heilbrigðar samgöngur á Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 11. maí. Ein þeirra spurninga sem leitað verður svara við á ráðstefnunni er: Hvert er heilsufarslegt mikilvægi hjólreiða?
Lesa meira
Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin gefa öllum börnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða sérstakt átak í samvinnu Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að auki nýtur verkefnið aðstoðar Lýðheilsustöðvar. Alls verður 4.500 reiðhjólahjálmum dreift í ár og er heildarverðmæti verkefnisins um 23 milljónir kr.
Landsmenn vita að áfengiskaupaaldur á Íslandi miðast við 20 ár. Samt sem áður sýnir reynslan að yngra fólk – og oft mun yngra – er að neyta áfengis og það jafnvel í mjög miklu og skaðlegu magni. Þetta sýnir líka að aðgengi unga fólksins að áfengi er tiltölulega auðvelt og að eldra fólk er að kaupa eða útvega ungu fólki, sem ekki hefur aldur til, áfengi. Því lengur sem ungt fólk dregur það að hefja áfengisneyslu því betra fyrir heilsu þess og vellíðan.
Lesa meira
Dregnir hafa verið út nokkrir bekkir sem taka þátt í verkefninu Reyklaus bekkur og hljóta nemendur þessara bekkja geisladiska í vinning.
Lesa meira
Litla gjöfin er farin til nemenda í samkeppninni Reyklaus bekkur. Samkeppnin er nú í fullum gangi og skráðu 316 bekkir sig til leiks eða tæplega 6300 nemendur.
Lesa meira
Þessa dagana er verið að senda foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna póstkort þar sem bent er á hætturnar sem fylgja því að ungt fólk fari í ljósabekki. Skilaboðin á kortinu eru frá Félagi íslenskra húðlækna, Geislavörnum ríkisins, Landlæknisembættinu og Krabbameinsfélaginu. Þetta er þriðja árið sem þessir aðilar standa saman að fræðsluherferð undir slagorðinu „Hættan er ljós“.
Hinn 10. mars undirrituðu þær Guðfinna S. Bjarnadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, og Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, viljayfirlýsingu þar sem lýst er yfir vilja til samstarfs um rannsóknir og fræðsluverkefni á sviði lýðheilsu. Markmið samstarfsins er að efla lýðheilsurannsóknir og fræðslu í landinu með það að leiðarljósi að bæta heilsu og líðan landsmanna.
Lesa meira
kennarar tveggja bekkja, eins í Ingunnarskóla og eins í Grunnskóla Snæfellsbæjar, þeir heppnu að þessu sinn. Hljóta þeir bakpoka í verðlaun.
Lesa meira
Fræðslubæklingur Lýðheilsustöðvar um skaðsemi vímuefnanotkunar, sem einkum er ætlaður ungu fólki á framhaldsskólaaldri. Bæklingurinn nefnist Staðreyndir um vímuefni, og er hluti af verkefni sem kallast ,,Höldum heilanum heilum”.
Lesa meira
einkum við sjálf! fer fram á Hótel Nordica föstudaginn 27. janúar. Allt hefur áhrif-verkefnið hófst formlega haustið 2005 en Lýðheilsustöð hefur unnið að undirbúningi þess frá árinu 2004, m.a. með því að fá sveitarfélög um allt land til samstarfs. Verkefnið hefur það að markmiði efla og bæta næringu og hreyfingu barna og ungmenna sem og fjölskyldunnar í heild.
Lesa meira
einkum við sjálf! fer fram á Hótel Nordica föstudaginn 27. janúar. Allt hefur áhrif-verkefnið hófst formlega haustið 2005 en Lýðheilsustöð hefur unnið að undirbúningi þess frá árinu 2004, m.a. með því að fá sveitarfélög um allt land til samstarfs. Verkefnið hefur það að markmiði efla og bæta næringu og hreyfingu barna og ungmenna sem og fjölskyldunnar í heild.
Lesa meira
Sigurlaug Jónasdóttir og Leifur Hauksson umsjónarmenn þáttarins heimsóttu Lýðheilsustöð föstudaginn 6. janúar kl. 11-12.
Lesa meira
Lýðheilsustöð óskar þess að nýtt ár verði landsmönnum öllum gleðilegt og árangursríkt - ekki síst hvað heilsuna varðar!
Lesa meira
Áramót er sá tími sem margir nota til að hefja breytingar á einhverju í sínu lífi og þar eru reykingar oftar en ekki ofarlega á blaði, þ.e. að hefja nýja árið á því að hætta að reykja eða nota annað tóbak. Ekki þarf að fjölyrða hér um það hversu erfitt það reynist mörgum en þar eru þó ýmsar leiðir til hjálpar. Reyklausi síminn er ein þeirra.
Lesa meira