Sími : 5 800 900

Fréttir

Skuggahliðar áfengisneyslu - 20.12.2005 Áfengi og vímuefni

Þessa dagana er verið að sýna á sjónvarpsstöðvunum nýjar auglýsingar á vegum Lýðheilsustöðvar sem eiga það sameiginlegt að sýna skuggahliðar áfengisneyslu. Lesa meira
 

Félagslíf menntaskóla reyklaust - 19.12.2005 Tóbaksvarnir

Í byrjun þessa skólaárs tóku nemendafélög Menntaskólans í Reykjavík þá stefnu að halda öll böll og alla atburði félagslífsins reyklausa. Árangur þessarar herferðar hefur farið fram úr björtustu vonum, tvö reyklaus böll hafa þegar verið haldin við frábærar undirtektir nemenda og er reyklaust jólaball skipulagt þann 19. desember.

Lesa meira
 

Enn fækkar þeim sem reykja - 13.12.2005 Tóbaksvarnir

Í nýrri samantekt þriggja kannanna, sem Gallup gerði fyrir Lýðheilsustöð, á tóbaksnotkun Íslendinga kemur í ljós að reykingar minnka enn. Lesa meira
 

Jákvæð viðhorf til reyklausra veitinga- og kaffihúsa - 9.12.2005 Tóbaksvarnir

Nýverið gerðu nemendur við Háskólan í Reykjavík BSc verkefni þar sem skoðuð voru viðhorf gesta veitinga- og skemmtistaða, sem og viðhorf eigenda og starfsmanna, til lagasetningar um reyklaus veitingahús. Í ljós kom að viðhorfin eru almennt jákvæð bæði hjá gestum og eigendum, einnig að fáir telja sig síður fara á slíka staði ef þeir eru alveg reyklausir. Lesa meira
 

Yfir 100 þúsund seglum með Geðorðunum 10 dreift til landsmanna - 8.12.2005 Geðrækt

Að undanförnu hefur verið að berast inn á heimili landsmanna segulspjald með Geðorðunum 10. Um er að ræða eins konar jólagjöf frá Lýðheilsustöð og sveitarfélögum í landinu. Alls lét Lýðheilsustöð framleiða rúmlega 100.000 segulspjöld. Lesa meira
 

Til hamingju Súðavík! - 8.12.2005 Tóbaksvarnir

Í fréttum sjónvarpsins þann 6. desember síðastliðinn kom fram að Súðavík væri orðin svo gott sem reyklaust sveitarfélag. Haldin hafa verið námskeið í bænum til að aðstoða fólk við að hætta að reykja og hefur bæjarbúum gengið vel að standa við reykleysið saman. Glöggir bæjarbúar telja aðeins tólf reykingamenn vera eftir í öllu sveitafélaginu, sem samtals telur um 200 manns. Lesa meira
 




Fréttir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica