Sími : 5 800 900

Fréttir

Skuggahliðar áfengisneyslu - 20.12.2005 Áfengi og vímuefni

Þessa dagana er verið að sýna á sjónvarpsstöðvunum nýjar auglýsingar á vegum Lýðheilsustöðvar sem eiga það sameiginlegt að sýna skuggahliðar áfengisneyslu. Lesa meira
 

Félagslíf menntaskóla reyklaust - 19.12.2005 Tóbaksvarnir

Í byrjun þessa skólaárs tóku nemendafélög Menntaskólans í Reykjavík þá stefnu að halda öll böll og alla atburði félagslífsins reyklausa. Árangur þessarar herferðar hefur farið fram úr björtustu vonum, tvö reyklaus böll hafa þegar verið haldin við frábærar undirtektir nemenda og er reyklaust jólaball skipulagt þann 19. desember.

Lesa meira
 

Enn fækkar þeim sem reykja - 13.12.2005 Tóbaksvarnir

Í nýrri samantekt þriggja kannanna, sem Gallup gerði fyrir Lýðheilsustöð, á tóbaksnotkun Íslendinga kemur í ljós að reykingar minnka enn. Lesa meira
 

Jákvæð viðhorf til reyklausra veitinga- og kaffihúsa - 9.12.2005 Tóbaksvarnir

Nýverið gerðu nemendur við Háskólan í Reykjavík BSc verkefni þar sem skoðuð voru viðhorf gesta veitinga- og skemmtistaða, sem og viðhorf eigenda og starfsmanna, til lagasetningar um reyklaus veitingahús. Í ljós kom að viðhorfin eru almennt jákvæð bæði hjá gestum og eigendum, einnig að fáir telja sig síður fara á slíka staði ef þeir eru alveg reyklausir. Lesa meira
 

Yfir 100 þúsund seglum með Geðorðunum 10 dreift til landsmanna - 8.12.2005 Geðrækt

Að undanförnu hefur verið að berast inn á heimili landsmanna segulspjald með Geðorðunum 10. Um er að ræða eins konar jólagjöf frá Lýðheilsustöð og sveitarfélögum í landinu. Alls lét Lýðheilsustöð framleiða rúmlega 100.000 segulspjöld. Lesa meira
 

Til hamingju Súðavík! - 8.12.2005 Tóbaksvarnir

Í fréttum sjónvarpsins þann 6. desember síðastliðinn kom fram að Súðavík væri orðin svo gott sem reyklaust sveitarfélag. Haldin hafa verið námskeið í bænum til að aðstoða fólk við að hætta að reykja og hefur bæjarbúum gengið vel að standa við reykleysið saman. Glöggir bæjarbúar telja aðeins tólf reykingamenn vera eftir í öllu sveitafélaginu, sem samtals telur um 200 manns. Lesa meira
 

Auglýsingar og áfengisneysla - 26.11.2005 Lýðheilsustöð

Auglýsingar á léttöli og bjórneysla - þversagnir á íslenskum auglýsingamarkaði er heitið á fyrirlestri sem Stefán Hrafn Jónsson, félags- og lýðfræðingur og verkefnastjóri á rannsóknasviði Lýðheilsustöðvar flutti á morgunverðarfundi hjá Náum áttum - hópnum. Fyrirlesturinn hefur vakið þó nokkra athygli og þeir sem vilja kynna sér efni hans geta gert það hér á síðunni.

Lesa meira
 

Nýr fæðuhringur og hreyfihringur komnir út - 17.11.2005 Hreyfing

Þessa dagana er verið að dreifa til fjölmargra aðila og stofnana um allt land nýjum fæðuhring og hreyfihring í formi veggspjalda í nokkrum stærðum. Nú er efnið komið hér á síðu Lýðheilsustöðvar og hægt að panta spjöldin. Lesa meira
 

Nýr fæðuhringur og hreyfihringur komnir út - 17.11.2005 Hreyfing

Þessa dagana er verið að dreifa til fjölmargra aðila og stofnana um allt land nýjum fæðuhring og hreyfihring í formi veggspjalda í nokkrum stærðum. Nú er efnið komið hér á síðu Lýðheilsustöðvar og hægt að panta spjöldin. Lesa meira
 

Árlega slasast um 100 börn í innkaupakerrum - 16.11.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Hérlendis slasast um 100 börn árlega við það að falla úr innkaupakerrum. Lýðheilsustöð og Slysavarnafélagið Landsbjörg standa því fyrir átaki til að sporna gegn þessum slysum og héldu í tengslum við það til kynningarfundar í Byko í Breiddinni í Kópavogi fimmtudaginn 17. nóvember. Lesa meira
 

Kynntar niðurstöður könnunar á neysluvenjum framhaldsskólanema - 15.11.2005 Ýtarefni

Lýðheilsustöð og Rannsóknir & greining boðuðu til sameiginlegs kynningarfundar þar sem kynntarvoru niðurstöður kannana á notkun tóbaks, áfengis og annarra vímuefna meðal framhaldsskólanema. Lesa meira
 

Mikilvægara að fá nóg D-vítamín en ríflegt magn af kalki - 11.11.2005 Næring og holdafar

Ný íslensk rannsókn sýnir að það skiptir meira máli fyrir kalkbúskap líkamans að fá nægilegt magn af D-vítamíni heldur en að auka kalkskammtinn umfram ráðlagðan dagskammt. Rannsóknin, sem var unnin á Landspítala- háskólasjúkrahúsi í samvinnu við Lýðheilsustöð, birtist í nýjasta tölublaði bandaríska læknablaðsins Journal of American Medical Association, en höfundar greinarinnar voru þau Laufey Steingrímsdóttir, Örvar Gunnarsson, Ólafur S. Indriðason, Leifur Franzson og Gunnar Sigurðsson. Lesa meira
 

Börn eru að festa skófatnað í rúllustigum - 10.11.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Lýðheilsustöð hafa verið að berast tilkynningar um óhöpp í rúllustigum þar sem börn hafa fest stígvél eða gúmmískó í stigunum. Skófatnaðurinn eyðilagðist en börnin sluppu með skrekkinn í þessum tilvikum. Af gefnu tilefni eru foreldrar beðnir að hafa gætur á börnum sínum í rúllustigum og leyfa þeim alls ekki að leika sér þar. Lesa meira
 

Keppnin Reyklaus bekkur 2005 – 2006 er hafin - 8.11.2005 Tóbaksvarnir

Reyklaus bekkur er keppni þar sem öllum reyklausum 7. og 8. bekkjum í landinu er boðið að taka þátt svo fremi að enginn nemenda reyki. Frestur til að skrá sig til leiks hefur verið framlengdur þar til í vikulok, þ.e. til 12. nóvember.

reyklaus bekkur 2005

Lesa meira
 

Fundur með Robin Room 3. nóvember - 2.11.2005 Áfengi og vímuefni

Á vegum Lýðheilsustöðvar kom hingað til lands prófessor Robin Room og hélt hann erindi á opnum fundi í bíósal Hótel Loftleiða fimmtudaginn 3. nóvember. Lesa meira
 

Birtingar á áfengisauglýsingum á Íslandi - 27.10.2005 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð hefur látið taka saman tvær skýrslur yfir auglýsingar, kynningar og umfjöllun um áfengi og léttöl í íslenskum prentmiðlum. Lesa meira
 

Togast á forvarnarstarf og markaðsöflin? - 27.10.2005 Lýðheilsustöð

Eins og fram kom í máli Þórodds Bjarnasonar, prófessors við Háskólann á Akureyri, í sjónvarpsfréttum ríkisútvarpsins í gærkvöldi sýna ESPAD-rannsóknir (The European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs) þá ánægjulegu þróun á Íslandi að áfengisneysla 10. bekkinga grunnskóla hefur verið að minnka á síðustu 8 árum. Við nánari skoðun þessara rannsóknagagna kemur þó í ljós að þeir nemendur í 10. bekk, sem á annað borð drekka, drekka nú meira áfengi en nemendur í 10. bekk hafa áður gert. Þetta kallar fram ýmsar spurningar og áhyggjur okkar sem störfum að forvörnum og heilsueflingu. Gögnin sýna ennfremur að það er fyrst og fremst neysla bjórs sem hefur vaxið.

Lesa meira

 

Kiwanis veitir Herdísi Storgaard Hixon orðuna - 20.10.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Kiwanis umdæmið Ísland - Færeyjar veittu á dögunum Herdísi Storgaard, verkefnisstjóra slysavarna barna, Hixson orðuna fyrir störf hennar í þágu barna.
Lesa meira
 

Fæðingarstærð barna tengd lýsisneyslu kvenna á fyrri hluta á meðgöngu - 20.10.2005 Lýðheilsustöð

Nýlega birtist grein um samband fæðingarstærðar barna og lýsisneyslu verðandi mæðra snemma á meðgöngu í tímaritinu British Journal of Obstetrics and Gynaecology. Niðurstöðurnar eru hluti af stóru samvinnuverkefni Lýðheilsustöðvar, Lífeðlisfræðistofnunar Háskóla Íslands og Miðstöðvar Mæðraverndar og verkefnið hefur verið styrkt af Rannís, Rannsóknarsjóði HÍ, Heilsugæslunni í Reykjavík og Áfengis og vímuvarnarráði. Lesa meira
 

Er áfengi hollt fyrir ungt fólk? - 18.10.2005 Áfengi og vímuefni

Samstarfshópurinn Náum áttum, í samráði við Samstarfsráð um forvarnir, heldur fræðslufund um skaðsemi áfengis fyrir ungt fólk. Fundurinn er liður í Vímuvarnaviku 2005 þar sem yfirskriftin er ,,Upphafsaldur áfengisneyslu: Hvað er í húfi”. Á fundinum verður fjallað um að andleg og líkamleg áhrif áfengis á börn og ungt fólk.
Fundurinn er miðvikudaginn 19. október kl. 8:15-11:30 á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2.

Lesa meira

 

Handbók fyrir leikskólaeldhús er komin út - 17.10.2005 Næring og holdafar

Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar Handbók fyrir leikskólaeldhús með hagnýtum ábendingum fyrir starfsfólk leikskóla um hollustu og samsetningu fæðunnar, matseðlagerð, matreiðslu, sérfæði, hreinlæti og innkaup. Lesa meira
 

Fyrirlestrar frá 8. norrænu lýðheilsuráðstefnunni - 17.10.2005 Lýðheilsustöð

Þátttakendur á 8. norrænu lýðheilsuráðstefnunni, sem haldin var á Nordica hóteli dagana 9. - 11. október, voru um 250 að tölu. Ráðstefnan þótti takast mjög vel og mörg áhugaverð erindu voru þar flutt. Flestir fyrirlestrarnir eru nú aðgengilegir á heimasíðu ráðstefnunnar www.publichealth.is/nph2005 Lesa meira
 

8. norræna lýðheilsuráðstefnan hefst á sunnudaginn - 7.10.2005 Lýðheilsustöð

Nú er í fyrsta sinn haldin á Íslandi Norræna lýðheilsuráðstefnan en þetta er sú áttunda í röðinni. Ráðstefnan er haldin á Nordica hóteli og hefst sunnudaginn 9. október og stendur til þriðjudagskvölds 11. október. Ráðstefnugestir eru um 250 að tölu. Lesa meira
 

Handbók fyrir starfsfólk skólamötuneyta - 5.10.2005 Næring og holdafar

Komin er út á vegum Lýðheilsustöðvar önnur útgáfa af Handbók fyrir skólamötuneyti með hagnýtum ábendingum fyrir starfsfólk um matseðlagerð, hollustu, matreiðslu, hreinlæti og innkaup. Lesa meira
 

Frítt til Evrópu fyrir reyklausa - samkeppnin hafin - 4.10.2005 Tóbaksvarnir

Frítt til Evrópu fyrir reyklausa (Quit and win - Don’t start) er keppni ætluð ungu fólki á aldrinum 15-20 áraSmella á myndina til að lesa bakhliðina og er liður í að hvetja ungt fólk á þessum aldri til reykleysis. Þátttakendur skrá sig með því að senda póstkort eða í gegnum heimasíðu Lýðheilsustöðvar.

Lesa meira

 

Ráðstefna um geðheilbrigðismál 7. október - 4.10.2005 Geðrækt

Hluti dagskrár í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum er ráðstefna á Hótel Loftleiðum föstudaginn 7. október kl. --Sérstök athygli er vakin á fyrirlestri Chris Bale, framkvæmdastjóra samtakanna Partnership for Children en þar segir hann m.a. frá verkefninu Vinir Zýppí sem nýhafið er hjá Lýðheilsustöð. Lesa meira
 

Að vera manneskja - fræðsluerindi í Gerðubergi í dag - 4.10.2005 Geðrækt

Í tilefni Alþjóðlega geðheilbrigðisdagsins, 10. október 2005, verður starfsfólk geðsviðs Reykjalundar með fræðsluerindi í Gerðubergi þann 4. október, kl. 14:00 og 16:30. Erindi er ætlað öllum sem áhuga hafa og er það hluti fræðslu sem boðin er í endurhæfingardagskrá Reykjalundar undir yfirskriftinni „Að vera manneskja“. Lesa meira
 

Geðorðin 10 á strætisvögnum í Reykjavík - 27.9.2005 Geðrækt

Geðrækt á strætó, smella á myndina til að stækka

Frá og með 23. september birtast Geðorðin 10 á öllum strætisvögnum í Reykjavík, eitt geðorð á hverjum vagni, og verða geðorðin á vögnunum í einn mánuð.

Lesa meira
 

Geðhlaupið 8. október - 26.9.2005 Geðrækt

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október og í tilefni af honum er fjölbreytt dagskrá til að minna okkur á að það er engin heilsa án geðheilsu. Einn liður þar í er Geðhlaupið í Nauthólsvík 8. október. Lesa meira
 

Lýðheilsuáætlun Evrópusambandsins og verkefnstyrkir henni tengdir - Gögn frá kynningarfundinum 23. september - 21.9.2005 Lýðheilsustöð

Föstudaginn 23. september, kl. 13:00 – 17:00, fór fram á Grand hóteli, Sigtúni 38, Reykjavík, kynningarfundur á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins og Lýðheilsustöðvar þar sem kynnt var lýðheilsuáætlun Evrópsambandsins og verkefnastyrkir henni tengdir. Á fundinum var einnig sagt frá öðrum styrkjasjóðum, umsóknarferli og verkefnum sem þegar hafa verið styrkt. Erlendir sérfræðingar komu sérstaklega til landsins til að flytja um þetta erindi á fundinum, auk þess sem innlendir aðilar fjölluðu um málið frá ýmsum hliðum.
Gögn sem kynnt voru á fundinum eru aðgengileg hér á síðunni.

Lesa meira
 

Það er engin heilsa án geðheilsu - 19.9.2005 Geðrækt

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október, en í tengslum við daginn er um allan heim ýmislegt á dagskrá til að vekja athygli á geðheilbrigðismálum. Síðastliðið ár var yfirskrift alþjóða geðheilbrigðisdagsins „Tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu” og byggir þema dagsins í ár á þeirri yfirskrift með áherslunni „Andleg og líkamleg heilsa yfir æviskeiðið”. Markmiðið er að vekja fólk til vitundar um að tengslin milli andlegrar og líkamlegrar heilsu eru órjúfanleg. Lesa meira
 

1. september - útivistartími barna breytist - 1.9.2005 Lýðheilsustöð

Vert er að hafa í huga að frá og með 1. september breytist útivistartími barna þannig að nú mega 12 ára börn og yngri ekki vera lengur ein úti en til kl. 20. Og þau sem eru á aldrinum 13-16 ára mega ekki vera lengur úti en til kl. 22. Lesa meira
 

Akrylamíð í fæðu - 29.8.2005 Næring og holdafar

Vegna fréttar um að brátt verði skylda í Kalíforníuríki í Bandaríkjunum að vara við akrylamíði í frönskum kartöflum og kartöfluflögum vill Lýðheilsustöð koma á framfæri frekari upplýsingum um efnið. Lesa meira
 

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 10. október og annað geðheilbrigðisstarf - 26.8.2005 Geðrækt

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er 10. október og í tengslum við hann er margþætt dagskrá framundan. Lýðheilsustöð, Geðhjálp, Rauði krossinn og Landlæknisembættið hafa gert með sér samkomulag um samstarf að geðheilbrigðsismálum sem m.a. lýtur að námskeiðshaldi fyrir aðstandendur geðsjúkra, og fleiri, í öllum landsfjórðungum. Næsta námskeið verður í Borgarnesi 3. september. Lesa meira
 

Mörg þúsund blöðrum dreift á Menningarnótt - 21.8.2005 Tóbaksvarnir

Það tóku margir væntanlega eftir rauðum blöðrum sem á var prentað „Takk fyrir góða loftið" á Menningarnótt. Þetta voru blöðrur sem Lýðheilsustöð dreifði í þúsundavís til allra sem vildu og vöktu blöðrurnar mikla lukku. Lesa meira
 

Samantekt yfir reykingar landsmanna 1989-2005 - 19.8.2005 Tóbaksvarnir

Vakin er athygli á samantekt rannsóknarsviðs Lýðheilsustöðvar yfir reykingar landsmanna á árunum 1989-2005. Teknar hafa verið saman og gerðar aðgengilegar á einum stað myndir sem sýna reykingarvenjur landsmanna á þessu árabili, greint eftir aldri og kyni. Lesa meira
 

Þróun áfengismála á Norðurlöndunum - 11.8.2005 Áfengi og vímuefni

Í nýútkomnu hefti NAT (Nordisk Alkohol- & Narkotikatidskrift, vol.22.2005) er m.a. samantekt sænsku Lýðheilsustöðvarinnar yfir þróun áfengismála á Norðurlöndunum á árunum1993-2004. Þar kemur m.a. fram að verð á áfengi hefur farið lækkandi á Norðurlöndunum og einnig að meira fé er varið til áfengiskaupa. Lesa meira
 

Fimm mánaða barn hætt komið í baðkari - 11.8.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Fyrir skömmu nærdrukknaði rúmlega fimm mánaða gamalt barn.

Skilgreining á nærdrukknun er: Barnið fer í öndunarstopp eða öndunar- og hjartastopp og þarfnast endurlífgunar. Slíkt ástand getur verið lífshættulegt. Sé barninu ekki komið til hjálpar mjög fljótt er hætta á súrefnisskorti sem orsakað getur varanlegan heilaskaða.

Lesa meira

 

Geðheilsa og offita - 11.8.2005 Geðrækt

Í 7. tbl. Læknablaðsins, 91. árg. 2005, er áhugaverð umfjöllun Kristins Tómassonar, læknis, um tengsl geðheilsu og offitu. Kristinn bendir þar m.a. á að ekki sé síður mikilvægt að vera vakandi fyrir þeim áhrifum sem það hefur á offeitan einstakling að mæta sífellt neikvæðu viðhorfi frá samferðamönnum sínum,  jafnt á vinnustað sem annars staðar, eins og þeim neikvæðu áhrifum sem offita hefur á líkamann. Lesa meira
 

Nýkominn er út bæklingurinn „Til foreldra - um börn og óbeinar reykingar“ - 10.8.2005 Tóbaksvarnir

Bæklingurinn „Til foreldra - um börn og óbeinar reykingar“ er endurskoðuð útgáfa af sama bæklingi sem gefinn var út fyrir nokkrum árum. Bæklingurinn hefur verið ófáanlegur í nokkurn tíma en nú er hægt að panta hann hér hjá Lýðheilsustöð, auk þess sem hann liggur frammi á flestum heilsugæslustöðvum. Lesa meira
 

Rúmur helmingur unglinga veit nú hvað geðheilsa er - 8.8.2005 Geðrækt

Töluverð breyting hefur orðið á hugmyndum unglinga um geðheilsu frá árinu 2001 til ársins í ár – mun fleiri unglingar vita hvað geðheilsa er eða um 52% samanborið við 22% árið 2001. Þetta kemur fram í nýrri könnun Dóru Guðrúnar Guðmundsdóttur á þekkingu nemenda í Vinnuskóla Reykjavíkur á geðheilbrigði.

Lesa meira

 

Vinnustaðir í Skotlandi verða reyklausir - 3.8.2005 Tóbaksvarnir

Skotland slæst í hóp Írlands, Noregs, Nýja-Sjálands, Möltu, Svíþjóðar, Bútan og Ítalíu þegar allir vinnustaðir verða þar reyklausir næsta vor - nánar tiltekið 26. mars 2006. Lesa meira
 

Takk fyrir góða loftið! - 3.8.2005 Tóbaksvarnir

Takk fyrir góða loftið! er yfirskrift átaks Lýðheilsustöðvar sem snýr að því að minna á mikilvægi þess að loftið sem að við öndum að okkur sé alltaf hreint og ómengað. Segja má að reykingafólki - sem og öllum þeim sem ekki reykja -sé þar þakkað sérstaklega fyrir að sýna öðrum þá tillitssemi að reykja ekki í návist þeirra.

Lesa meira

 

Leyfum ekki að börn fari eftirlitslaus í útilegu - 27.7.2005 Áfengi og vímuefni

Góð samskipti foreldra og barna og góðar samverustundir er besta forvörnin hvað varðar hættuna á að unglingur, 18 ára ábyrgðbarnið leiðist út í áfengis- eða vímuefnaneyslu. Þetta er vert að hafa í huga nú þegar verslunarmannahelgin er að ganga í garð. Á undanförnum árum hefur skilaboðum verið beint til foreldra og annarra fullorðinna að leyfa ekki að börn fari ein í útilegu – og minnt á að foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum til 18 ára aldurs. Lesa meira
 

„Vinir Zippý“ námsefnið á Íslandi - 27.7.2005 Geðrækt

Hjá LýðheilsustöðVinir er að hefjast verkefnið Vinir Zippý eða „Zippy´s Friends“ sem er forvarnarverkefni á sviði geðheilsu fyrir börn (geðrækt fyrir börn). Um er að ræða námsefni ætlað 6-7 ára börnum sem notað hefur verið með góðum árangri víða um heim. Í vetur verður íslenska þýðing námsefnisins forprófuð á þremur stöðum. Lesa meira
 

Reykleysi gengur vel í Noregi - 25.7.2005 Tóbaksvarnir

Þann 1. júní 2004 urðu allir veitinga- og skemmtistaðir í Noregi reyklausir. Nú ári eftir að lögin tóku gildi er komin út skýrsla þar sem kemur fram að breytingarnar hafa gengið mjög vel fyrir sig og það sem mestu máli skiptir vinnuumhverfi starfsmanna hefur verið bætt. Lesa meira
 

Slasaðist þegar hann féll af trampólíni - 21.7.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kallaðir að íbúðarhúsi í Keflavík í gærkvöldi en í bakgarði hússins hafði 12 ára drengur slasast við leik á trampólíni. Leiktækið var búið öryggisneti en pilturinn féll út um gat sem var á því og kom harkalega niður á steypta stéttina. Pilturinn hljóp því næst inn á heimilið en missti þar meðvitund. Lesa meira
 

Enn og aftur um fótboltamörk - 5.7.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Í byrjun sumars slasaðist unglingsstúlka á höfði þegar það féll á hana fótboltamark. Slysið gerðist með þeim hætti að stúlkan var að klifra í markinu þegar það féll um koll of fékk hún marksúluna í höfuðið. Lesa meira
 

Norræn lýðheilusráðstefna á Íslandi - 27.6.2005 Lýðheilsustöð

Dagana 9.-11. október 2005 verður haldin á Íslandi 8. norræna lýðheilsuráðstefnan. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Lýðheilsa – sameiginleg ábyrgð“. Ráðstefnan mun fara fram á ensku en fyrirlesarar og stýrendur vinnusmiðja eru frá Norðurlöndunum og Kanada. Þeir komu úr mismunandi starfsstéttum en starfa allir á einn eða annan hátt að lýðheilsumálum. Ráðstefnan veitir því mikilvægt tækifæri til að kynnast því helsta og nýjasta sem er að gerast í þessum málum hér heima og í nágrannalöndunum.

Lesa meira

 

Námsstefna um offitu barna - 22.6.2005 Lýðheilsustöð

Námsstefna um offitu barna, meðferðarúrræði og forvarnir, verður haldin dagana 13. og 14. júní 2006, þ.e. dagana á undan ,,Nordic Obesity Meeting" fundinum sem haldinn verður á Grand hóteli 15. og 16. júni. Dagskrá námstefnunnar verður auglýst síðar. Lesa meira
 

Sumarið og fjölskyldan - 2.6.2005 Áfengi og vímuefni

SAMANhópurinn hefur nú starfað hátt á sjötta ár. Í dag eiga 24 stofnanir og félagasamtök sem láta sig varða velferð barna og ungmenna fulltrúa í hópnum. Það hefur verið einn af föstum þáttum í starfi hópsins að vekja athygli á því að oft er sumarið sá tími sem ungt fólk byrjar að nota tóbak og/eða vímuefni. Lesa meira
 

Reyklausi dagurinn er í dag! - 31.5.2005 Tóbaksvarnir

Þriðjudaginn 31. maí er Alþjóða reyklausi dagurinn. Dagurinn er haldinn árlega og ákvarðar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) þema hvers árs. Lesa meira
 

Fyrsti ársfundur Lýðheilsustöðvar - úthlutun úr Forvarnasjóði - 27.5.2005 Lýðheilsustöð

Árið 2004 var fyrsta heila starfsár Lýðheilsustöðvar og fyrsti ársfundur stöðvarinnar var haldinn 27. maí. Í tilefni af ársfundinum var gefin út fyrsta ársskýrsla stöðvarinnar og einnig fór fram úthlutun styrkja úr Forvarnasjóði. Lesa meira
 

Nýjar Norrænar ráðleggingar um næringu og hreyfingu - 26.5.2005 Næring og holdafar

Nordic Nutrition Recommendations 2004 (NNR) – Integrating nutrition and physical activity” er nú komin út á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Lesa meira
 

Ráðleggingar um fituneyslu - 26.5.2005 Næring og holdafar

Lýðheilsustöð vill vekja athygli á því að samkvæmt nýjum norrænum næringarráðleggingum og íslenskum ráðleggingum um mataræði og næringu hafa ráðleggingar varðandi fituneyslu lítið breyst, en þar er ráðlagt að framlag fitu til orkunnar sé 25-35%. Lesa meira
 

Allir 7 ára nemendur fá reiðhjólahjálma að gjöf - 19.5.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Í maímánuði 2005 gengur Kiwanishreyfingin sameinuð að því að afhenda öllum skólabörnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma – alls um 4.200 hjálma. Lesa meira
 

Reyklaus bekkur - sigurvegarar! - 12.5.2005 Tóbaksvarnir

Evrópusamkeppni meðal reyklausra 7. og 8. bekkja er senn á enda, þetta skólaárið. Þetta er sjötta árið sem við erum með í þessu verkefni. Í ár voru um 320 bekkir skráðir til leiks. Eins og áður staðfestu nemendur reykleysi sitt í gegnum vefsíðu, nú á lydheilsustod.is. Lesa meira
 

Lýðheilsa efld með hollara mataræði og aukinni hreyfingu - 12.5.2005 Næring og holdafar

Alþingi hefur samþykkt þingsályktun um að fela ríkisstjórninni að undirbúa áætlun um samræmdar aðgerðir til að efla lýðheilsu á Íslandi með hollara mataræði og aukinni hreyfingu. Lesa meira
 

Áfengi-aðgengi-áhrif - 7.5.2005 Áfengi

Á nýafstöðnum fundi Evrópudeildar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) var lýst yfir áhyggjum vegna aukinnar áfengisneyslu. Fram kom að áfengisneysla í heiminum er mest í Evrópu og að dauðsföllum, sem rekja má til áfengis, fjölgaði um 15% á milli áranna 2000 og 2002. Áætlað er að árið 2002 megi rekja orsök 1.8 milljón dauðsfalla (þar af 600.000 í Evrópu einni) til áfengisneyslu eða 3.2% af dauðsföllum í heiminum [1]. Lesa meira
 

Viltu fyrirbyggja slys vegna trampólína? - 3.5.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Alvarleg slys geta orðið þegar að börn eru að nota trampólín. Má þar nefna hálsbrot sem leiðir til lömunar, beinbrot af ýmsum gerðum og höfuðáverka. Mikið er um minniháttar slys eins og tannáverka og tognanir. Ekki er vitað um alvarleg slys hér á landi en búast má við fleiri slysum með aukinni notkun trampólína Lesa meira
 

Lítið barn verður fyrir alvarlegu eitrunarslysi - 3.5.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Fyrir skömmu varð lítið barn fyrir alvarlegu eitrunarslysi en slysið átti sér stað á heimili barnsins. Barnið náði í lyf í skáp og náði að borða lífshættulegan skammt af því. Þurfti barnið að gangast undir flókna meðferð sem náði að bjarga lífi þess. Lesa meira
 

Hjólað í vinnuna hófst í dag - 2.5.2005 Hreyfing

Það var mikið um að vera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun en þá var átaksverkefnið ,,Hjólað í vinnuna" sett af stað með pompi og prakt. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó BS, og Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, héldu stuttar ræður en Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, endaði fundinn með því að stjórna hópsöng þar sem sungið var ,,Hjólalagið 2005" og var vel tekið undir.

Lesa meira
 

Hjólað í vinnuna hófst í dag - 2.5.2005 Hreyfing

Það var mikið um að vera í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í morgun en þá var átaksverkefnið ,,Hjólað í vinnuna" sett af stað með pompi og prakt. Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó BS, og Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra, héldu stuttar ræður en Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, endaði fundinn með því að stjórna hópsöng þar sem sungið var ,,Hjólalagið 2005" og var vel tekið undir.

Lesa meira
 

Reglur um útivistartíma gilda líka á sumrin! - 28.4.2005 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð vill vekja athyglii foreldra og forráðamanna barna og ungmenna á því að 1. maí breytast reglur, skv. barnaverndarlögum, um útivistartíma barna. Reglurnar segja til um hversu lengi börn mega vera úti án fylgdar fullorðinna - en þýðir ekki það EIGI að vera úti jafnlengi og reglurnar segja. Foreldrar takmarka þann tíma eins og hentar þeim og fjölskyldunni. Lesa meira
 

Ungir drekka meira - eldri draga úr neyslu - 26.4.2005 Lýðheilsustöð

Íslendingar drekka áfengi mun sjaldnar en aðrir Evrópubúar en eins og í öðrum norrænum löndum drekkur yngra fólkið oftar og meira en eldra fólkið og ölvunardrykkja er hluti af drykkjumynstrinu. Lýðheilsustöð gekkst fyrir könnun á áfengisneyslu Íslendinga í nóvember síðastliðinn og voru helstu niðurstöður hennar kynntar 27.apríl. Tilgangur könnunarinnar var að fá vitneskju um áfengisneyslu og drykkjumunstur einstakra hópa, bæði karla og kvenna eftir aldri og fleiri þáttum. Lesa meira
 

Barnabílstólar passa ekki í hvaða bíl sem er - 20.4.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Margir foreldrar hafa haft samband við Lýðheilsustöð og Umferðarstofu vegna vandamála sem komið hafa upp vegna bandarískra barnabílstóla. Einnig er orðið algengt að fólk kaupi sjálft bíla beint frá Bandaríkjunum, sem þá eru með bandarískum bílbeltum – en með þeim er oft erfiðleikum bundið að festa evrópska barnabílstóla skv. leiðbeiningum. Lesa meira
 

Áfengisala jókst um 6,3% milli áranna 2003-2004 - 20.4.2005 Lýðheilsustöð

Í Hagtíðindum kemur fram að áfengissala hér á landi jókst um 6,3% milli áranna 2003 og 2004 í lítrum talið, eða úr 19,2 milljónum lítra árið 2003 í 20,4 milljónir lítra árið 2004. Umreiknað til hreins vínanda, alkóhóllítra, er aukningin hlutfallslega ekki eins mikil, eða 4,4%milli ára, úr 1.458 þúsund alkóhóllítrum árið 2003 í 1.523 þúsund alkóhóllítra árið 2004. Salan samsvarar 6,71 alkóhóllítra á hvern íbúa 15 ára og eldri, en var 6,52 alkóhóllítrar á árinu 2003. Sú aukning er 2,9% milli ára, en sambærilegar hækkanir milli ára á þeim mælikvarða hafa verið frá ríflega 2% til ríflega 5% frá árinu 2000.

Lesa meira
 

Formlegt samstarf Lýðheilsustöðvar og Háskólans á Akureyri - 19.4.2005 Lýðheilsustöð

Mánudaginn 18. apríl undirrituðu Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, og Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, samninga um formlegt samstarf Lýðheilsustöðvar og Háskólans á Akureyri um rannsóknir og fræðslu á sviði lýðheilsu. Lesa meira
 

Ánægja með samþykkt Samtaka ferðaþjónustunnar - 14.4.2005 Tóbaksvarnir

Lýðheilsustöð og tóbaksvarnaráð fagna því að aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar, haldinn á Grand Hóteli Reykjavík þann 7. apríl 2005, leggi til að allir veitinga- og skemmtistaðir verði reyklausir frá og með 1. júní 2007. Með þessu hafa Samtök ferðaþjónustunnar fylkt sér í lið þeirra sem vilja tryggja öllu vinnandi fólki reyklaust umhverfi. Mikill meirihluti þjóðfélagsins hefur sýnt að hann kjósi að allir geti unnið í reyklausu umhverfi. Lýðheilsustöð og tóbaksvarnaráð undirstrika mikilvægi þess að löggjafinn setji sem fyrst lög þessu til staðfestingar.

Lesa meira

 

Varasamt barnaglas - eða varasöm hitunaraðferð - 8.4.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Þegar mjólk í pela eða barnaglasi er hituð í örbylgjuofni þarf að gera ákveðnar varúðarráðstarfanir svo að barnið brenni sig ekki þegar það drekkur mjólkina. Á neytendasíðu Morgunblaðsins birtist í þessari viku ábending um varasamt barnaglas hvað þetta varðar. Að öllum líkindum hefur hér frekar verið um að ræða ranga aðferðina við að hita mjólkina en að glasið sé sérstaklega varasamt.

Lesa meira

 

Tvö reyklaus veitingahús bætast í hópinn - 1.4.2005 Tóbaksvarnir

Föstudaginn 1. apríl bættust í hóp reyklausra veitingahúsa á Íslandi Segafredos við Lækjatorg og Kaffi Nilsen á Egilsstöðum. Lesa meira
 

Matur fyrir aldraða - 1.4.2005 Næring og holdafar

Lýðheilsustöð vill vekja athygli á ritinu Matur fyrir aldraða sem er ætlað öllum þeim sem vinna við hjúkrun aldraðra eða útbúa mat fyrir gamalt fólk, hvort heldur sem er á stofnunum eða í heimahúsum. Bæklingurinn var unnin af samstarfshópi um öldrunarmál á vegum Manneldisráðs en markmiðið með útgáfunni var að matur sem borinn er fyrir gamalt fólk sé bæði hollur og lystugur og hæfi gömlu fólki. Lesa meira
 

Langflestir Írar ánægðir með reykingabannið - 30.3.2005 Tóbaksvarnir

Írar ákváðu að allir skemmti- og veitingastaðir landsins skyldu vera reyklausir frá og með 29. mars 2004. Á eins árs afmæli reykingabannsins, þ.e. 29. mars 2005, var sagt frá reynslunni og kynntar niðurstöður viðhorfskannanna en í stuttu máli má segja að allur þorri landsmanna sé mjög ánægður með reykingabannið. Lesa meira
 

Ályktun stjórnar Vinnueftirlitsins - 23.3.2005 Af vef vinnueftrilitsins, www.vinnueftirlit.is

Sífellt fleiri samtök og stofnanir hafa að undanförnu lýst yfir stuðningi við nýframkomna breytingu á tóbaksvarnalögum. Á stjórnarfundi 14. mars samþykkti stjórn Vinnueftirlitsins ályktun þar um. Lesa meira
 

Efling-stéttarfélag styður frumvarp um tóbaksvarnir - 23.3.2005 Af vef Eflingar, www.efling.is

Efling, stæðsta stéttarfélag starfsmanna veitinga- og skemmtistaða með veltu rúmlega 5000 starfsmanna á ársgrundvelli og 2500 starfsmenn starfandi í hverjum mánuði, fagnar frumvarpi Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri þingmanna um breytingar á lögum um tóbaksvarnir og hvetur Alþingi til að samþykkja frumvarpið.

Lesa meira
 

Börn og hættan af frosnum vötnum og sjó - 16.3.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Þar sem mikið frost hefur verið á landinu að undanförum dögum er sjór víða ísilagður við strendurnar og vötn frosin. Allir vita hvaða aðdráttarafl þetta hefur á börn og ungmenni. Foreldrar og forráðamenn eru því beðnir að vera þarna vel á verði og brýna fyrir börnum sínum að vera ekki að leik á ísnum.

Lesa meira

 

Hávaði í umhverfi barna - 10.3.2005 Lýðheilsustöð

Hávaði í umhverfi barna getur verið svo mikill að hann valdi heyrnaskaða. Önnur áhrif hávaða geta verið streita, höfuðverkur, truflun á málþroska og námsgetu o.s.frv. Til að vekja umræðu og leita úrræða til bóta verður haldin ráðstefna um þetta vandamál 1. apríl nk. kl 13:00-17:00 í Kiwanishúsinu, Engjateigi 17, Reykjavík. Lesa meira
 

Meirihlutinn vill reyklausa veitinga- og skemmtistaði - 9.3.2005 Tóbaksvarnir

Niðurstöður nýrrar könnunar Lýðheilustöðvar á viðhorfi landsmanna til reyklausra veitingahúsa liggja nú fyrir. Lesa meira
 

Með vorinu eykst fikt með eldspýtur - 7.3.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Nú fer sá tími í hönd að börn fara almennt að vera lengur úti og þessum tíma kemur oft upp fikt með eldfæri. Börn fara að brenna sinu eða kveikja í einhverju öðru og því þurfa foreldrar og forráðamenn að vera sérstaklega á varðbergi og brýna fyrir börnunum hættuna af fikti með eld.

Lesa meira

 

12 ára drengur brennist á augum - 7.3.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Á síðustu vikum hefur fjöldi kennara og foreldra haft samband við Árvekni vegna barna sem eru að leika hættulega leiki sem rekja má beint til sjónvarpsefnis.

Lesa meira

 

Geðheilbrigðismál sett á oddinn - 4.3.2005 Lýðheilsustöð

„Það er engin heilsa án geðheilsu“ eru einkunnarorð Geðræktar og á evrópska ráðherrafundinum um geðheilbrigðismál, sem haldinn var í Helsinki í Finnlandi dagana 12.-15. janúar 2005, var undirrituð yfirlýsing um aðgerðir í geðheilbrigðismálum til næstu 5-10 ára sem ættu m.a. að stuðla að því að menn geri sér almennt grein fyrir því að heilsa-geðheilsa eru óaðskiljanlegur hluti af heild.

Lesa meira

 

Læknar lýsa stuðningi við tóbaksvarnafrumvarp - 4.3.2005 Tóbaksvarnir

Stjórn Læknafélags Íslands ræddi í gær um frumvarp Sivjar Friðleifsdóttur og fleiri alþingismanna um breytingar á lögum um tóbaksvarnir. Hefur stjórnin í kjölfarið sent bréf til þingmanna þar sem lýst er stuðningi við efni frumvarpsins. Lesa meira
 

Alþingi flýti afgreiðslu tóbaksvarnafrumvarpsins - 3.3.2005 Lýðheilsustöð

Á fundi sínum í dag samþykkti landsnefnd lýðheilsustöðvar að fagna framkomnu frumvarpi um breytingu á lögum um tóbaksvarnir og beina því til Alþingis af hraðað yrði afgreiðslu málsins. Lesa meira
 

Landlæknisembættið lýsir stuðningi við frumvarp um tóbaksvarnir - 2.3.2005 Tóbaksvarnir

Landlæknisembættið lýsir á heimasíðu sinni yfir eindregnum stuðningi við það frumvarp um breytingar á tóbaksvarnalögum sem Siv Friðleifsdóttir og fleiri alþingismenn hafa lagt fram á Alþingi. Segir landlæknisembættið að breytingin feli í sér að gætt sé samræmis milli tóbaksvarnarlaga og vinnuverndarlaga varðandi vernd starfsmanna. Lesa meira
 

Evrópusambandið hefur nýja herferð gegn reykingum - 2.3.2005 Tóbaksvarnir

Evrópusambandið hóf í dag mikla herferð gegn reykingum og er henni aðallega ætlað að ná til ungs fólks. Markos Kyprianou, sem fer með heilbrigðismál í framkvæmdastjórn ESB, sagðist vona að reglur um reykingabann verði hertar í aðildarríkjum sambandsins innan skamms. Áætlað er að herferðin kosti jafnvirði um 6 milljarða króna. Lesa meira
 

Nemendur sem ekki neyta áfengis fengu hærri einkunnir - 28.2.2005 Áfengi og vímuefni

Nemendur Verzlunarskólans sem aldrei eða mjög sjaldan drekka áfengi og þeir sem ekki reykja voru almennt með hærri meðaleinkunn á jólaprófunum. Þetta er niðurstaða könnunar sem birt er í nýútkomnu Verzlunarskólablaði. Könnunin var gerð 11. janúar sl. og lögð fyrir alla nemendur skólans. Af um ellefu hundruð nemendum skólans svöruðu 976, sem er um 90% svarhlutfall. Lesa meira
 

Umsóknarfrestur um styrki úr Forvarnasjóði er til 28. febrúar - 24.2.2005 Áfengi og vímuefni

Minnt er á að frestur til að sækja um styrki úr Forvarnasjóði rennur út 28. febrúar. Lesa meira
 

Barn stingur sig á sprautunál á skólalóð - 24.2.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Fyrir skömmu stakk barn sig á sprautunál sem það fann á skólalóð á höfuðborgarsvæðinu. Börn höfðu orðið vör við sprautuna og ætluðu að farga henni, með fyrrgreindum afleiðingum. Farið var með barnið strax til læknis þar sem það fékk viðeigandi meðferð.

Lesa meira

 

Hættuleg snuð - 22.2.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Markaðsgæsluyfirvöld á norðurlöndunum létu prófa fimmtán ólíkar tegundir snuða og er niðurstaða prófunarinnar m.a. sú að þrjár tegundir þeirra teljast vera hættulegar börnum. Snuðtegundirnar hafa nú verið teknar af markaði en gætu verið í notkun á Íslandi þar sem tvær þeirra hafa verið seldar hér á landi.

Lesa meira

 

Frumvarpinu um breytingar á tóbaksvarnalögum dreift til þingmanna í dag - 17.2.2005 Lýðheilsustöð

Í morgun var á Alþingi dreift til þingmanna frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 6/2002, um tóbaksvarnir. Flutningsmenn eru Siv Friðleifsdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Jónína Bjartmarz og Þuríður Backman. Lesa meira
 

Egils Kristal Plús fer á markað - 16.2.2005 Næring og holdafar

Kristal Plús drykkurinn fer á markað og af því tilefni hefur nokkur umræða skapast þar um. Þó hafa nokkur mikilvæg atriði ekki komið fram. Lesa meira
 

Pössum börnin betur - 16.2.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Velferðasjóður barna á Íslandi lét gera tíu upplýsinga- og fræðslumyndir í því skyni að draga úr slysum barna. Sjóðurinn fékk Lýðheilsustöð og Tryggingamiðstöðina til samstarfs um verkefnið og er við það miðað að vekja athygli foreldra og forráðamanna barna, sem eru yngri en fjögurra ára, á þeim slysahættum sem leynast víða á heimilum og í næsta umhverfi barna.

Lesa meira

 

Hafa óbeinar reykingar einhver áhrif? - 14.2.2005 Tóbaksvarnir

Lýðheilsustöð hefur unnið vandaða greinargerð um óbeinar reykingar, áhrif þeirra á heilsu og afhverju talið sé æskilegt að allir vinnustaðir séu reyklausir. Lesa meira
 

Lýðheilsustöð kærir ekki áfengisauglýsingar - 11.2.2005 Lýðheilsustöð

Reglulega berast Lýðheilsustöð ábendingar um að verið sé að brjóta lög um auglýsingar á áfengum drykkjum. Slík mál fara í ákveðið ferli innan stöðvarinnar en Lýðheilsustöð kærir ekki birtingu áfengisauglýsinga. Lesa meira
 

Áfram Gunnar - 8.2.2005 Tóbaksvarnir

Í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag er pistill eftir Víði Sigurðsson íþróttablaðamann þar sem hann talar um Gunnar Einarsson varnarmann KR og viðhorf Gunnars til munntóbaksnotkunar. Gunnar notaði munntóbak lengi en í grein sem birtist í Morgunblaðinu á dögunum segir hann að hann sé hættur allri slíkri notkun og hvetur jafnframt aðra til þess að hætta að nota munntóbak. Hér má lesa grein Víðis í heild sinni en hana má finna í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag. Lesa meira
 

Athugasemd vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um Kristal plús - 7.2.2005 Næring og holdafar

Í kjölfar umræðna sem verið hefur um vítamínbætingu á bragðbættu vatni vill Lýðheilsustöð taka fram að stöðin er einungis umsagnaraðili um leyfisveitingar til íblöndunar bætiefna í matvöru – leyfisveitingar eru á hendi Umhverfisstofnunar. Lesa meira
 

Óbeinar reykingar geta orsakað krabbamein í lungum, munni og hálsi - 4.2.2005 Tóbaksvarnir

Nýjar rannsóknarniðurstöður sýna fram á að börn sem búa í reykmettu umhverfi eru í þrisvar sinnum meiri hættu á að fá lungnakrabbamein seinna á ævinni en þeir sem ekki búa á reyklausu heimili. Lesa meira
 

Lyklaböndin geta verið varasöm - 4.2.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Á síðustu misserum hafa svokölluð lyklabönd verið vinsæl hjá börnum og unglingum. Böndin nota börnin til að geyma ýmislegt sem þau vilja passa upp á - en böndin geta verið slysavaldur. Lesa meira
 

Auglýst hefur verið eftir styrkjum úr Forvarnasjóði - 31.1.2005 Áfengi og vímuefni

Einu sinni á ári er auglýst eftir styrkjum úr Forvarnasjóði og eftir að allar umsóknir hafa verið yfirfarnar og metnar hefur vanalega verið úthlutað úr sjóðnum að vori. Lesa meira
 

Fræðslubæklingar um áfengi - 24.1.2005 Áfengi og vímuefni

Nýkomnir eru út á vegum Lýðheilsustöðvar tveir fræðslubæklingar um áfengi undir heitinu: Hvað veistu um áfengi? Annar bæklingurinn er ætlaður fullorðnum en hinn ungu fólki.

Lesa meira

 

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! Nýtt verkefni Lýðheilsustöðvar - 6.1.2005 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð er að ýta úr vör þróunarverkefni í samvinnu við sveitarfélög í landinu til að bregðast við þeirri þróun að börn og ungmenni á Íslandi eru að þyngjast.

Lesa meira
 

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! Nýtt verkefni Lýðheilsustöðvar - 6.1.2005 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð er að ýta úr vör þróunarverkefni í samvinnu við sveitarfélög í landinu til að bregðast við þeirri þróun að börn og ungmenni á Íslandi eru að þyngjast.

Lesa meira
 

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! Nýtt verkefni Lýðheilsustöðvar - 6.1.2005 Lýðheilsustöð

Lýðheilsustöð er að ýta úr vör þróunarverkefni í samvinnu við sveitarfélög í landinu til að bregðast við þeirri þróun að börn og ungmenni á Íslandi eru að þyngjast.

Lesa meira
 

Hvað er „hóflegt magn“ af sykri? - 4.1.2005 Næring og holdafar

Við áramót leggja margir drög að betri lífsstíl á nýju ári og mataræðið er þar gjarnan efst á blaði. Sykurneysla landsmanna – og þá ekki síst barna- þykir í meira lagi en hvað er hóflegt magn af sykri?

Lesa meira

 

Átta augnslys um áramótin vegna skotelda - þar af 4 alvarleg - 3.1.2005 Árvekni-slysavarnir barna

Einn fullorðinn og sjö börn hafa hlotið áverka á auga frá því að sala á skoteldum hófst þann 28.12. sl. Lesa meira
 




Fréttir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica