Sími : 5 800 900

Fréttir

Tíu smábörn hafa að undanförnu oltið í háum matarstólum - 28.12.2004 Árvekni-slysavarnir barna

Frá því í byrjun september 2004 hafa verið tilkynnt 10 slys sem orðið hafa þegar börn á aldrinum 7-14 mánaða hafa fallið aftur fyrir sig þegar þau hafa setið í háum barnastól við matarborð.

Lesa meira

 

Hollusta og áhrifamáttur CLA fitusýra ekki sönnuð - 21.12.2004 Næring og holdafar

Í tilefni af frétt sem birtist í blöðum í sl. viku um ágæti konjugeraðrar línolsýru (CLA) vill Lýðheilsustöð slá nokkurn varnagla við því að fólk sé hvatt til að auka neyslu á þessari gerð fitusýra. Lesa meira
 

Skotheld áramót - 21.12.2004 Árvekni-slysavarnir barna

Árlega slasast fjöldi barna af völdum skotelda. Þau börn sem oftast slasast af þeirra völdum eru drengir á aldrinum 8-14 ára. Flest slys verða vegna þess að fullorðnir eru ekki að fylgjast með börnunum. Þar eru m.a. mörg dæmi um að börn sem eru að leika sér með skotelda, t.d. taka þá í sundur og fleira í þeim dúr. Áverkarnir sem börnin hljóta eru yfirleitt alvarlegir og má þar nefna djúp brunasár, augnáverka og jafnvel fingurmissir. Því er mikilvægt að foreldrar og forráðamenn barna kynni sér vel leiðbeiningar hér á eftir um meðferð skotelda – sem getur komið í veg fyrir alvarleg slys. Lesa meira
 

Til hamingju íslenskir unglingar og foreldrar! - 14.12.2004 Ýtarefni

Í dag, 14. desember, var kynnt samtímis í 35 Evrópulöndum skýrsla Evrópuráðsins um vímuefnaneyslu 15-16 ára unglinga - s.k. ESPAD skýrsla. Margt fróðlegt kemur þar fram en umtalsverðar breytingar hafa orðið á vímuefnaneyslu unglinga í Evrópu síðastliðin átta ár - og niðurstöðurnar sýna að íslenskir unglingar standa sig þar vel þegar á heildina er litið.

Lesa meira
 

Handbók fyrir skólamötuneyti - 8.12.2004 Næring og holdafar

Í tilefni af frétt sem birtist í Fréttablaðinu 7. desember varðandi úttekt á eldhúsum grunnskóla Reykjavíkur vill Lýðheilsustöð vekja athygli á að á sl. ári gaf stöðin út Handbók fyrir skólamötuneyti. Lesa meira
 

Þeim fækkar stöðugt sem reykja - 7.12.2004 Tóbaksvarnir

Það berast uppörvandi fréttir af reykleysi landsmanna. Lýðheilsustöð lét taka saman niðurstöður þriggja kannana á tóbaksnotkun Íslendinga á árinu 2004 sem sýnir að innan við 20% fólks á aldrinum 15 til 89 ára reykir daglega og æ fleiri velja reykleysi - en til samanburðar reyktu um 30% fólks fyrir 12 árum. Lesa meira
 

Slysum á börnum fækkaði meðan á kennaraverkfalli stóð - 2.12.2004 Árvekni-slysavarnir barna

Landlæknisembættið hefur tekið saman upplýsingar um slys á börnum, 5-15 ára, meðan á kennaraverkfalli stóð nú í haust. Upplýsingarnar koma úr Slysaskrá Íslands. Skoðuð voru slys á ríflega 8 vikna tímabili og voru þau borin saman við sama tímabil árið á undan. Lesa meira
 




Fréttir




Þetta vefsvæði byggir á Eplica