Beint í leiðarkerfi vefsins.
Þingmenn á Nýja-Sjálandi virða þau sjálfsögðu mannréttindi einstaklinga að þurfa ekki að anda að sér andrúmslofti sem er mengað tóbaksreyk af völdum annarra. Af þeim sökum hafa þeir bannað reykingar á öllum opinberum stöðum.
Lesa meiraÞann 10. janúar 2003 tók gildi reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að öryggi barna og annarra með því að leikvallatæki og leiksvæði sé hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan hátt.
Lesa meiraManneldisráð og verðlagseftirlit ASÍ hafa þrjú síðastliðin ár kannað kostnað við að fylgja ráðleggingum um hollt mataræði. Um er að ræða samanburð á tveimur matarkörfum, hollustukörfu og meðalkörfu sem báðar veita jafnmargar hitaeiningar.
Á fundi NAD (Nordiska Nämnden för Alkohol- ocg Drogforskning) var samþykkt fréttatilkynning um áhrif GATS á vegum World Trade Organisation á lög Norðurlanda sem varða áfengi, tóbak og þar með lýðheilsu.
Hvatt er til þess að ráðherrar Norðurlanda sameinist um að fara fram á undantekningar frá þessum samningum þegar hægt er að færa rök fyrir því að það varði almannaheill.
Niðurstöður rannsókna á vímuefnaneyslu nemenda í 10. bekk grunnskóla 1995 - 2003.
Skýrslan er unnin úr íslenska hluta ESPAD rannsóknarinnar, sem er samevrópsk könnun um áfengisneyslu, reykingar og neyslu ólöglegra vímuefna.
Embætti yfirdýralæknis, Landlæknisembættið, Lýðheilsustöð/Manneldisráð, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Umhverfisstofnun sendu frá sér greinargerð varðandi neyslu á hrefnukjöti og öðru sjávarfangi fyrir barnshafandi konur og konur með börn á brjósti.
Lesa meira
Ég var orðinn helsti trúður leiksins, leikstjórinn var ófáanlegur til þess að sleppa úr jafn fyndnu atriði svo að ég sat uppi með reykingarnar.
Ég hef einu sinni verið skikkuð til þess að reykja. Ég var rétt undir tvítugu og yfir mér stóð maður (nánar tiltekið yfirmaður minn) og ítrekaði að sæi hann mig ekki með sígarettu í hendi á hverju kvöldi næstu þrjár vikurnar myndi ég missa vinnuna. Grein eftir Sigurbjörgu Þrastardóttur sem birtist í aukablaði Morgunblaðsins á reyklausa daginn 31. maí 2003
Í Morgunblaðinu 8. apríl síðastliðinn er sagt frá því að 6 ára drengur hafi verið talinn týndur og leitað hafi verið að honum í einhvern tíma. Sem betur fer fannst hann heill á húfi, sofandi undir rúmi á heimili sínu. Börn á þessum aldri leika sér mikið í feluleik og hika ekki við að skoða ólíklegustu staði á heimili sínu. Það er því mikilvægt að leita alltaf af sér allan grun um að barnið sé ekki heima áður en farið er að leita að því utan dyra.
Lesa meiraÞann 24. mars 2003 voru kynntar helstu niðurstöður úr Landskönnun á mataræði 2002, en hliðstæð rannsókn hefur ekki farið fram frá árinu 1990. Alls tóku 1366 manns á aldrinum 15-80 ára þátt í könnuninni og var svarhlutfall 70,6%.
Vímulaus æska - Foreldrahús stóð fyrir alþjóðlegri undirskriftasöfnun til staðfestingar ,,Vínaryfirlýsingunni 2003 Lesa meira