Beint í leiðarkerfi vefsins.
Starfsemi stöðvarinnar og flestir starfsmenn flytja til embættis landlæknis frá sama tíma. Fréttaflutningur frá starfseminni verður á vef embættis landlæknis en allt efni Lýðheilsustöðvar verður aðgengilegt á vef stöðvarinnar þar til nýr vefur verður opnaður með efni beggja stofnanna.
Út er komin hjá Lýðheilsustöð lokaskýrsla Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!. Skýrslan nær yfir helstu þætti starfsemi, árangur og samstarf um verkefnið frá árinu 2004.
Lesa meira
Fæðuvenjur Íslendinga hafa breyst samfara minni kaupmætti og hækkuðu verðlagi. Minni neysla er á þeim matvörum sem hafa hækkað hvað mest í verði og eins þeim sem ekki teljast til brýnna nauðsynja. Hugsanleg heildaráhrif á heilsu þjóðarinnar eru ekki augljós þar sem bæði neysla hollustuvara svo og sætinda og skyndibita hefur minnkað.
Lesa meira
Flensborgarskóli í Hafnarfirði hlaut Gulleplið – viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf á sviði heilsueflandi framhaldsskóla. Það var mennta- og menningarmálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir sem afhenti eplið þann 27. apríl. Flensborgarskóli var fyrsti skólinn sem hóf formlega að starfa með Lýðheilsustöð að heilsueflandi framhaldsskóla en nú hafa 24 framhaldsskólar fylgt í kjölfarið. Gert er ráð fyrir að á hverju ári hljóti einhver skólanna Gulleplið sem viðurkenningu fyrir afburða gott starf í sínum skóla.
Lesa meira
Við þriðju umræðu á Alþingi um frumvarp til laga um nýja sameinaða stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins var lögð fram óvænt breytingatillaga, sem snérist að forminu til um nafn á nýrri stofnun, en fól fleira í sér. Frumvarpið var samþykkt með breytingatillögunni þann 30. mars s.l. og með því verður Lýðheilsustöð lögð niður frá og með 1. maí 2011. Nýju lögin fela í sér breytingar á lögum um landlækni nr. 41/2007 og að lög nr. 18/2003 um Lýðheilsustöð verða felld úr gildi. Starfsfólki Lýðheilsustöðvar verða boðin störf við embætti landlæknis.
Málþing um mat í skólamötuneytum verður haldið 6. apríl kl. 15:00 að Stórhöfða 31 (gengið inn að neðanverðu). Þingið er haldið á vegum MATVÍS en Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð heldur erindi sem hún byggir á efni handbókar Lýðheilsustöðvar fyrir skólamötuneyti.
Í nýrri reglugerð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem tekur gildi 1. ágúst n.k., er kveðið á um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt er að markaðssetja matvæli sem innhalda meira en 2 grömm af transfitusýrum í hverjum 100 grömmum af heildarfitumagni og er þetta gert að fyrirmynd Dana. Reglugerðin gildir um transfitusýrur sem myndast þegar olía er hert að hluta en gildir hins vegar ekki um transfitusýrur sem eru í dýrafitu frá náttúrunnar hendi.
Lesa meira
Í ljósi umræðu um niðurskurð í grunnskólum landsins vekur Lýðheilsustöð athygli á mikilvægi þess að staðið sé vörð um gæði skólamáltíða. Skólamáltíðir eru lögbundin þjónusta samkvæmt 23. grein grunnskólalaga nr. 91 frá 2008. Samkvæmt lögunum skulu nemendur eiga kost á málsverði á skólatíma í samræmi við opinber manneldismarkmið.
Lesa meira
Um 320 bekkir víðsvegar um landið taka þátt í verkefni Lýðheilsustöðvar Reyklaus bekkur. Jafnt og þétt yfir vetrarmánuðina er ákveðin dagskrá í gangi og nýverið var annar útdráttur á meðal þátttökubekkjanna og nokkrir bekkir fengu gjafabréf í Skífuna. Einnig hafa allir nemendur í Reyklausum bekkjum fengið senda litla gjöf.
Lesa meira