Tóbakið sigrað - aðstoð við að hætta að reykja - Lyf og heilsa
Reykingamönnum gefst kostur á því að panta viðtalstíma í apóteki Lyf og heilsu í sínu nágrenni. Viðtalstími tekur að jafnaði 15 mínútur og kostar hann aðeins 500 krónur. Hvert viðtal hefur ákveðið þema s.s. hvernig hefur tóbak áhrif á líkamann og hvernig við getum náð árangri í reykbindindi? Fjallað er um næringafræði, hollt mataræði og mikilvægi hreyfingar. Umfjöllun um óbeinar reykingar og sjúkdóma þeim tengdum. Boðið er upp á mælingar er segja til um líkamlegt ástand reykingamannsins. Þátttakendur fá afhent fræðsluefni til aflestrar og eftirfylgni er með árangri hans.
Verkefnið er alþjóðlegt og eru markmið alþjóðaheilbrigðsstofnunarinnar (WHO) höfð að leiðarljósi um reyklausa veröld. Markmið Lyf og heilsu með þessari þjónustu er að auka lífsgæði landsmanna og taka þátt í forvarnarstarfi. Lesa nánar um ráðgjöfina.
Ráðgjöfin verður í boði í eftirtöldum apótekum Lyf og heilsu
Höfuðborgarsvæði
Lyf & heilsa Firði, Hafnarfirði, sími: 565 5550. Umsjón: Vilborg
Lyf & heilsa Glæsibæ,
Lyf & heilsa JL-húsinu
Lyf & heilsa Melhaga
Lyf & heilsa Mjódd
Lyf & heilsa Mosfellsbæ
Lyf & heilsa Salahverfi
Lyf og heilsa Eiðistorgi
Suðurland
Lyf & heilsa Kjarnanum Selfossi
Lyf & heilsa Hvolsvelli
Lyf & heilsa Vestmannaeyjum
Lyf & heilsa Hveragerði
Apótekarinn Hafnarstræti Akureyri
Norðurland
Lyf & heilsa Glerártorg Akureyri
Lyf & heilsa Hrísalundi Akureyri
Vesturland
Lyf & heilsa Akranesi, sími 431 1966. Umsjón: Sigríður Pálína, sími 822-5042
Suðurnes
Lyf & heilsa Keflavík
