Reykleysisnámskeið í Mývatnssveit - Dagbjört Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur
Námskeiðið er í skipulagt í samvinnu við:
- Ráðgjöf í reykbindindi
- Hjartavernd
- Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
- Hótel Reynihlíð
- Jarðböðin við Mývatn
- Lyfja
- Sparisjóður Suður-Þingeyinga
- VIS
Leiðbeinendur og fyrirlesarar :
- Dagbjört Bjarnadóttir, hj.fr. og ráðgjafi
- Jóhanna Kristjánsdóttir, hj.fr. og ráðgjafi
- Unnsteinn I Júlíusson, heilsugæslulæknir
- Sigurður Halldórsson, heilsugæslulæknir
- Sveinbjörn Sigurðsson, sjúkraþjálfari
- Ásta Price, jógakennari og nuddari
- Torfhildur Sigurðardóttir, stafgönguþjálfun
- Elín Harðardóttir, næringarfræðingur Íþróttakennari, sund og þjálfun í vatni
Sérstaða þessa námskeiðis er m.a. fólgin í því að undirbúningur hefst með ráðgjöf í gegn um síma og/eða tölvupóst, tveimur vikum áður en mætt er á staðinn. Þátttakendum verður einnig fylgt eftir í eitt ár eftir úskrift. Markmiðið er að fólk hætti að nota tóbak fyrir lífið ! Meðferðin er einstaklingsmiðuð. Hver þátttakandi fær læknisskoðun og viðtal við sjúkraþjálfara og hjúkrunarfræðing. Í framhaldi af því er gerð áætlun fyrir hvern og einn.
Í meðferðinni er lögð áhersla á stuðning og fræðslu, sem bæði er veitt í viðtölum og fyrirlestrum. Þannig verður nokkuð stíf dagskrá meðan á dvölinni stendur. Lögð verður áhersla á hreyfingu og útivist í stórbrotinni náttúru. Einnig er lögð áhersla á hvíld og slökun og verða Jarðböðin og aðstaðan þar notuð til þess.
Allir þátttakendur fá viðtal við ráðgjafa og/eða lækni fyrir útskrift. Kostnaður er 50 þúsund kr. Upplýsingar og skráning hjá: Dagbjörtu Bjarnadóttur í síma 860-7723. Sjá einnig á vefnum www.heilsutorg.is
