Til að hætta að reykja
Viltu hætta að reykja? - Reykbindindisnámskeið Krabbameinsfélags Reykjavíkur
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja.
Þátttakendur hittast sex sinnum á fimm vikna tímabili, að námskeiði loknu er þátttakendum fylgt eftir. Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu og ráðgjöf til að hætta að reykja ásamt stuðning til að takast á við reyklausa framtíð. Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu og ráðgjöf til að hætta að reykja ásamt stuðning til að takast á við reyklausa framtíð.
Leiðbeinandi er Ingibjörg Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Hægt er að skrá sig í síma 540 1900 eða með því að senda tölvupóst til reykleysi@krabb.is .
