Námsefni fyrir ungt fólk
Hér er um að ræða námsefni sem nota má til kennslu í efri bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum.
Áhrifaþættir vímuefnaneyslu (PDF)
Viðbragðsáætlun
Settar eru upp sex kennslustundir auk upplýsinga fyrir foreldra og hugmyndar að fræðslufundi fyrir foreldra. Kennslustundirnar má hvort heldur fella inn í eina ákveðna námsgrein (t.d. lífsleikni) eða skipta á milli fleiri námsgreina samkvæmt samkomulagi og ákvörðun viðkomandi kennara. Með því eykst fjölbreytni í efnistökum og fleiri kennarar leggja forvörnum skólans lið. Einnig má benda á þann möguleika að nota kennsluefnið í forfallakennslu og/eða tilfallandi aukastundir sem kunna að gefast í skólastarfinu. Benda má á hjúkrunarfræðing skólans og 6H heilsunnar.
Í efnistökum (framkvæmd fræðslunnar) er annars vegar byggt á þeirri félagssálfræðilegu sýn að „félagsleg návist annarra sé kjarninn í allri mannlegri breytni og samfélagslegri hegðun“[1] og hins vegar á því sem talið er að skili helst árangri í fræðslu um vímuefni, þ.e. að framkvæmd hennar (kennslan) felist einkum í umræðum og upplýsandi skoðanaskiptum nemenda og að nemendur séu virkir í fræðslunni. Áhersla er lögð á samræður á milli nemenda, sjálfsskoðun hvers og eins með því að taka afstöðu og gagnrýna hugsun.
Yfirlit kennslustunda
Kennslustund 1
Áfengi og samfélag: Viðbrögð samfélagsins við áfengis- og vímuefnavanda, takmarkanir á aðgengi.
Kennslustund 2
Vímuefni og ungt fólk: Skaðleg áhrif vímuefnaneyslu á heilbrigði fólks, einkum ungs fólks. Upphafsaldur áfengisneyslu, aldursmörk til áfengiskaupa og takmarkanir á aðgengi áfengis fyrir ungmenni.
Markmið: Nemendur öðlist skilning á skaðlegum áhrifum neyslu vímuefna fyrir ungt fólk og forsendum takmarkana á aðgengi og heimildir ungs fólks til neyslu vímuefna.
Kennslustund 3
Áfengi: eiginleikar og áhrif: Áhrif áfengis á miðtaugakerfið og heilastarfsemi, m.a. með tilliti til aldurs og þroska. Fjallað um áfengisvímu og áhrif áfengis á dómgreind og færni til ýmissa athafna, s.s. samskipta og akstur ökutækja. Fíknmyndun og arfgengi áfengisfíknar.
Kennslustund 4
Tóbak: Upprifjun úr námsefninu Vertu reyklaus, frjáls fyrir 9. bekk (1. kennslustund).
- Að mikill meirihluti fólks velur að reykja ekki.
- Að það er erfiðara en margir halda að hætta að reykja.
Kennslustund 5
Kannabisefni: eiginleikar og áhrif: Skaðleg áhrif kannabisefna á heilbrigði fólks, einkum ungs fólks.
Markmið: Nemendur öðlist skilning á skaðlegum áhrifum kannabisefna.
Kennslustund 6
Val og ákvarðanir: Ástæður þess að einstaklingar ákveða að neyta ekki, eða neyta vímuefna. Hvað hefur áhrif á val hans og ákvörðun þar um? Venjur, auglýsingar, hvatning, félags- og hópþrýstingur, sjálfsmynd, sjálfsstjórn, sjálfsagi, sjálfsvirðing, viðhorf til vímuefnaneyslu, væntingar til áhrifa vímuefnaneyslu.
[1] Rita L. Atkinson, Richard C. Atkinson og Ernest R. Hilgard (1988). Sálfræði II (8. Útgáfa).. Þýð. Konráð Ásgrímsson. Iðunn, Reykjavík. Bls 293-294.
