Sími : 5 800 900
6. kennslustund

Kennslustund 6 - Fræðsla um vímuefni fyrir 10. bekk grunnskóla

Þema: Val og ákvarðanir.

Fjallað um ástæður þess að einstaklingar ákveða að neyta ekki, eða neyta vímuefna. Hvað hefur áhrif á val hans og ákvörðun þar um? Venjur, auglýsingar, hvatning, félags- og hópþrýstingur, sjálfsmynd, sjálfsstjórn, sjálfsagi, sjálfsvirðing, viðhorf til áfengisneyslu, væntingar til áhrifa áfengisneyslu, Neysla áfengis og annarra vímuefna byggist á margvíslegum væntingum og félagslegu samhengi vímuefnaneyslu.

Markmið:

Nemendur öðlist skilning á ýmsum félagslegum og menningarlegum áhrifaþáttum vímuefnaneyslu.

Fyrirkomulag / framkvæmd:

  • Byggt er á efni bæklinganna Staðreyndir um vímuefni og Hvað veistu um áfengi? Bæklingana er hægt að panta frá Lýðheilsustöð eða fjölfalda/nálgast af vef Lýðheilsustöðvar.
  • Sjá tillögu að fyrirkomulagi í verkefni.
  • Nemendur ræða verkefni kennslustundarinnar í hópunum.
  • Kennari stýrir umræðu nemenda um hvað fór fram í hópunum og helstu niðurstöður þeirra.

Inngangur fyrir kennara (PDF)

Umræðuefni / verkefni (PDF)



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica