Hver er ávinningurinn af því að hætta að reykja?
Að hætta að reykja er það besta sem þú getur gert til að bæta heilsu þína. Þegar þú hættir að anda að þér nikótíni, kolsýrlingi, tjöru og öðrum eiturefnum getur líkami þinn farið að lagfæra þær skemmdir sem reykingarnar hafa valdið.
Að hætta reykingum mun:
-
Minnka líkur á að þú fáir krabbamein.
-
Hjálpa þér að bæta öndunina.
-
Auðvelda þér áreynslu svo sem að hlaupa upp stiga.
-
Minnka slímmyndun í lungum svo þú hóstar minna.
-
Bæta lyktar- og bragðskyn þitt.
-
Losa þig við reykingalyktina úr hárinu, andardrættinum og af húðinni.
-
Forða þér frá því að lungnastarfsemin versni.

Að hætta reykingum eykur líkur þínar á lengra og heilbrigðara lífi. Eftir um 15 ár eru líkur á að fá lungnakrabbamein orðnar álíka miklar og hjá þeim sem aldrei hafa reykt og það sama á við um líkur þínar á að fá hjartaáfall. Sjá samanburð á lungnastarfsemi fyrrum reykingamanns og þess sem heldur áfram að reykja.
Viltu fá hjálp til að hætta að reykja?
Hafðu þá samband við Reyksímann í síma 800 6030 eða kíktu inn á gangvirku síðuna Reyklaus.is .
Með því að smella hér geturðu líka séð lista yfir aðila sem aðstoða fólk til tóbakleysis.
Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.
