Hvaða áhætta fylgir því að halda áfram að reykja?
Slæmu fréttirnar
-
Á Íslandi eru reykingar helsta orsök margra ótímabærra sjúkdóma og dauðsfalla sem koma hefði mátt í veg fyrir.
-
Sjúkdómar af völdum reykinga valda dauða um 360–400 Íslendinga árlega. Til samanburðar má nefna að um 20–25 láta lífið í umferðarslysum árlega.
-
Á hverjum degi deyr einn Íslendingur vegna reykinga.
-
Af 100 manns sem reykja frá táningsaldri til dauðadags munu 50 deyja af völdum sjúkdóma sem rekja má til reykinga og þar af 25 á miðjum aldri.
- Yfir 80% allra lungnakrabbameina eru af völdum reykinga.
Góðu fréttirnar
Góðu fréttirnar eru að það virkar að hætta. Rannsóknir sýna að ef þú hættir að reykja, jafnvel á miðjum aldri, minnka líkur á krabbameini. Ef þú hættir fyrir miðjan aldur munt þú minnka líkurnar á reykingatengdum sjúkdómum um 90%. Kannanir sýna að um 70% af þeim sem nota tóbak vilja hætta. Stærsti þátturinn í því að hætta er að vilja það sjálf/ur. Fólk sem vill hætta og leitar eftir aðstoð og ráðgjöf getur tvöfaldað líkur sínar á árangri.
Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.



