Sími : 5 800 900
Tóbak og tóbaksvarnir

Tíu bestu ráðin til að hætta

17.5.2006

Góður undirbúningur er lykilatriði til að hætta. Því betri undirbúningur, því betri árangurs má vænta.

Tíu bestu ráðin

- Hafðu samband við fagaðila í reykleysismeðferð svo sem Ráðgjöf í reykbindindi, lækninn þinn eða heilsugæslustöðina þína (sjá nánar um aðstoð við að hætta).

- Skipuleggðu þig fram í tímann til að takast á við erfiðar aðstæður.

- Veldu rólegan dag til að hætta og haltu þig við hann.

- Taktu einn dag í einu og fagnaðu hverjum degi.

- Vertu í sambandi við einhvern sem vill líka hætta svo þið getið stutt hvort annað.

- Notaðu nikótínlyf eða nikótínlaus lyf til að takast á við tóbakslöngun.

- Til að byrja með skaltu forðast aðstæður þar sem þú gætir freistast til að reykja.

- Fylgstu með hvað þú sparar mikla peninga – og njóttu þeirra.

- Það er ekkert sem heitir að fá sér aðeins eina sígarettu.

- Hugsaðu jákvætt – þú GETUR hætt!

Heimild: Bæklingurinn Hættu fyrir lífið, gefinn út af Krabbameinsfélaginu, Lýðheilsustöð og Landspítala háskólasjúkrahúsi (2006). Hægt er að panta bæklinginn.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica