Sími : 5 800 900
Fyrir kennara

Vertu frjáls reyklaus - Fræðsluefni í tóbakvörnum fyrir 8., 9. og 10. bekk

20.7.2006

Hugmyndin með þessu námsefni er að auka skilning unglinga á hvað felst í því að vera frjáls og sjálfstæður. Því er ætlað að hjálpa unglingunum að gera sér grein fyrir löngunum sínum og á sama tíma hvetja þá til að fara sínar eigin leiðir, við aðstæður þar sem reykingar gætu komið til greina sem valkostur. Markmiðið er að fá unglingana til að skilja hve ónauðsynlegar og tilgangslausar reykingar eru, svo að þeir ákveði að reykja ekki.

Námsefnið skiptist í þrjá hluta fyrir sitt hvorn árganginn. Hérna er hægt að nálgast hvern fræðslupakka í heild sinni og prenta út pdf skjöl, eða skoða námsefnið lið fyrir lið undir hverjum námsflokki með því að smella á myndirnar hér fyrir neðan.

Skoða námsefni fyrir 8. bekk

Skoða námsefni fyrir 9. bekk

Skoða námsefni fyrir 10. bekk

Margir kunna að spyrja sjálfa sig: Eigum við að koma fram á einhvern sérstakan hátt við þá sem þegar eru farnir að reykja? Finnst þeim sem ekki reykja að þetta efni komi þeim við? Er hætta á að þeim sem reykja finnist sem þeir séu brennimerktir? Því er til að svara að við samningu efnisins var haft að leiðarljósi að það vekti hvern einasta nemanda til umhugsunar, einnig þá sem reykja. Það fjallar um það að vera sjálfstæður, óháður öðrum og mæta margvíslegum aðstæðum á eigin forsendum. Í stuttu máli – um að vera frjáls.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica