Sími : 5 800 900
Fyrir fagfólk

frjáls.is

7.10.2010

Á vefsíðunni Frjáls.is, sem Lýðheilsustöð stendur að ásamt fleirum, fær fagfólk ráðleggingar um tóbaksnotkun, tóbaksvarnir, áhugahvetjandi samtal og fleira.


Frjáls.is

Frjáls.is er vefsíða fyrir fagfólk um leiðir til að aðstoða skjólstæðinga við allar mögulegar lífstílsbreytingar. Vefsíðan auðveldar fagfólki aðgang að þekkingu sem nýtist því til að auka faglega færni í starfi. Efni síðunnar er ætlað þeim sem þegar eru starfandi innan heilbrigðiskerfisins en getur einnig nýst öðru fagfólki vel.  Vefsíðunni er meðal annars ætlað að styðja við notkun klínískra leiðbeininga frá Landlækni sbr.til dæmis um tóbaks- og áfengismeðferð í heilsugæslunni. Síðan er í stöðugri þróun og bætist nýtt efni reglulega á vefinn. Unnið er að því að leiðbeiningar um hreyfingu og holdafar bætist við á árinu 2011.
 
Áhugahvetjandi samtal (ÁS) er samtalsmeðferð sem hefur gefist vel til að virkja eða efla innri áhugahvöt einstaklinga til breytinga í eigin lífi og er hún kynnt hér á síðunni.  Þar er ýmislegt ítarefni, gögn og fræðsluefni fyrir skjólstæðinga, sem og sjálfspróf og æfingar sem nýta má til að efla færni í áhugahvetjandi samtali.

Ritstjóri Frjáls.is er Bára Sigurjónsdóttir
verkefnisstjóri hjá Lýðheilsustöð
bara@lydheilsustod.is

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica