Sími : 5 800 900
Næring og holdafar

Hollustukarfa Manneldisráðs Íslands

19.3.2004

Í hollustukörfunni er matur í samræmi við ráðleggingar Manneldisráðs um mataræði og næringarefni. Hér færð þú nánari upplýsingar um það hvað er í hollustukörfunni.

  • 500 grömm af grænmeti, ávöxtum og safa á dag fyrir fullorðna, þar af a.m.k. 200g af grænmeti, 200g af ávöxtum auk kartaflna. Hýði eða stönglar sem fara forgörðum teljast ekki með í 500 grömmum.
  • Tvö glös, diskar eða dósir af mjólk eða mjólkurmat á dag. Gert er ráð fyrir fitulitlum og lítið sykruðum vörum að mestu leyti. Ostur kemur í stað mjólkurvara að hluta til. 25g af osti jafngilda einu glasi eða diski af mjólkurvörum.
  • Fisk - og kjötmáltíðir eru hvor um sig tvisvar til þrisvar í viku (10 sinnum í mánuði) en grænmetis-, bauna eða pastamáltíðir tvisvar í viku. Gert er ráð fyrir 100-150 grömmum af kjöti, fiski, eggjum eða baunum á dag, álegg þar með talið. .
  • Brauð, morgunkorn, pasta og hrísgrjón er gefið upp í skömmtum í hollustukörfu. Einn skammtur er annað hvort meðalstór brauðsneið, 1,5 dl af morgunkorni, 1 dl af soðnum hrísgrjónum eða pasta eða 1 stk kex (15g). Hvorki meira né minna en 9 skammtar lenda í hollustukörfu dag hvern og þar er meira af grófu brauði en fínu.
  • Fita er höfð í hófi og meira um olíu eða mjúka fitu í staðinn fyrir harða fitu á borð við smjörlíki eða smjör.
  • Það er lítið af sykri, kökum, sætindum, ís og gosdrykkjum í hollustukörfunni. Þeir sem borða þessar vörur að ráði þurfa yfirleitt að minnka annan mat á móti, eigi þeir ekki að fitna. Eitt algengt súkkulaðistykki er t.d. á við þrjár lítið smurðar brauðsneiðar í hitaeiningum og barnastærð af ís hefur jafnmargar hitaeiningar og þrjú glös af léttmjólk.


Skammtakerfi fyrir hollustukörfu


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica