Sími : 5 800 900

Næring og holdafar

Heilkorn - heilsunnar vegna - 29.6.2010

braud,_korn_og_pastaÍ kornvörum er fjöldi næringarefna sem eru mikilvæg fyrir heilsuna.Vítamín og steinefni eru aðallega í hýði og kími en í fínunnum kornvörum er búið að fjarlægja þessa hluta. Æskilegt er því að velja oftar heilkornavörur en fínunnar vörur.

Lesa meira
 

Upplýsingar um transfitusýrur - 24.2.2010

kleinurNýlega var greint frá niðurstöðum nýrra greininga á transfitusýrum  í völdum matvælum á Íslandi. Lýðheilsustöð hefur í kjölfarið tekið saman smá fróðleik um transfitusýrur sem hægt er að skoða hér.

Lesa meira
 

Fróðleikur um koffín - 14.1.2010

Kaffibaunir-026++Koffín veldur útvíkkun æða, örari hjartslætti og auknu blóðflæði til allra líffæra. Einnig hefur koffín áhrif á öndun, meltingu og þvagmyndun. Mikil neysla á koffíni getur valdið höfuðverk (sem er líka fráhvarfseinkenni), svima, skjálfta, svefnleysi, hjartsláttartruflunum og kvíða.

Lesa meira
 

Börn og unglingar í íþróttum - hvaða næringu þurfa þau? - 23.9.2009

Grein með ábendingum um mataræði barna og ungmenna sem stunda íþróttir.

Lesa meira
 

Bragðbættir vatnsdrykkir - eru þeir allir hollir? - 12.11.2008

Mikilvægt er að halda tönnunum heilbrigðum og liður í því er að þekkja það sem hefur áhrif á tannheilsuna.Vatn er besti svaladrykkurinn, eins og allir vita, og óhætt er að drekka vel af því. Í vatni er engin orka og það er því ákjósanlegasti drykkurinn til að viðhalda vökvajafnvægi líkamans.

Lesa meira
 

Nammidagur - hugum að sykurmagninu - 4.11.2008

Í

flestum matvöruverslunum og nær öllum sjoppum landsins er mikið framboð af sælgæti. Þar eru alla jafna stórir sælgætisbarir sem fanga athyglina og börnin sem þangað koma horfa löngunaraugum á litadýrðina. Margir foreldrar reyna að stemma stigu við sælgætisneyslu barnanna með því að hafa ákveðið skipulag á sætindaáti, t.d. sérstakan nammidag aðeins einu sinni í viku.

Lesa meira
 

Vítamín og steinefni - fræðslubanki - 27.3.2008

Hnappur fyrir vefsíðu um vítamína- og steinefnafræðslubankann.

Lýðheilsustöð og Matvælastofnun hafa opnað vefsíðu með upplýsingum og fræðslu um helstu vítamín og steinefni: www.lydheilsustod.is/vitamin

Lesa meira
 

Borðum meiri ávexti og grænmeti - heilsunnar vegna! - 26.3.2008

Rífleg neysla grænmetis og ávaxta virðist minnka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum, ýmsum tegundum krabbameina, sykursýki af gerð 2 og offitu. Hollusta þessara fæðutegunda er meðal annars fólgin í ríkulegu magni þeirra af vítamínum, steinefnum, trefjum og öðrum hollefnum. Áhrifin virðast meiri eftir því sem meira er borðað af mismunandi tegundum ávaxta og grænmetis en einstök efni í töfluformi hafa ekki sömu áhrif. Ráðleggingin 5 á dag eða 500 g af grænmeti og ávöxtum á dag er því enn í fullu gildi.

Lesa meira
 

Viðbættur sykur í matvælum - 6.2.2008

Viðbættur sykur í matvælum hefur verið áberandi í umræðunni að undanförnu. Lýðheilsustöð hefur tekið saman ýmsan fróðleik um viðbættan sykur, t.d.: Hvað er viðbættur sykur? Einnig ráðleggingar um neyslu, myndir sem sýna viðbættan sykur í ýmsum vörutegundum og fleira. Þess er vænst að þessar upplýsingar veiti svör við einhverjum þeirra spurninga sem leitað hefur verið svara við. Lesa meira
 

Hvað hentar börnum best að drekka? - 16.1.2008

Börn og ungmenni á Íslandi drekka of mikið af sykruðum gos- og svaladrykkjum. Níu ára börn drekka að meðaltali 2,5 lítra af gos- og svaladrykkjum á viku og 15 ára börn tæplega 4 lítra á viku, samkvæmt rannsókn Ingu Þórsdóttur og félaga hjá Rannsóknarstofu í næringarfræði á Landspítalanum. Lesa meira
 

Minna salt - 5.12.2007

Matarsalt nefnist á máli efnafræðinnar natríumklórið. Mikil neysla þess getur átt þátt í að hækka blóðþrýsting. Háþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma en hann tvöfaldar t.d. áhættuna á heilablóðfalli samkvæmt rannsóknum Hjartaverndar. Aðrir lífsstílstengdir þættir geta einnig haft áhrif til hækkunar á blóðþrýstingi svo sem offita, hreyfingarleysi, reykingar og ofneysla áfengis. Lesa meira
 

Merkingar matvæla - 7.11.2007

Mataræði er mikilvægur áhrifaþáttur á heilsu okkar og líðan og rétt að huga vel að því. Hluti þeirra matvæla sem við kaupum er samsettur úr mörgum hráefnum og því getur verið erfitt að átta sig nægilega vel á innihaldi þeirra. Framleiðendur matvæla fylgja reglum um merkingar til þess að neytandinn geti valið út frá því. Það reynir síðan á neytendur að nýta sér merkingarnar í erli dagsins við innkaup og matreiðslu. Lítum á nokkur atriði varðandi merkingar.

Lesa meira
 

Heilsupýramídi í Bandaríkjunum - 2.7.2007

Árið 2005 kynnti bandaríska landbúnaðarráðuneytið nýjar ráðleggingar sem eiga að aðstoða Bandaríkjamenn við að velja heilsusamlegan mat og að hreyfa sig hæfilega á hverjum degi. Lesa meira
 

Léttara líf - skýrsla um aðgerðir til að efla lýðheilsu - 27.3.2007

Skýrsla forsætisráðherra um störf faghóps um samræmdar aðgerðir til að efla lýðheilsu á Íslandi með hollara mataræði og aukinni hreyfingu var lögð fyrir Alþingi, á 133. löggjafarþingi 2006–2007. Í henni eru tillögur að margþættum aðgerðum sem leiða eiga til hollara mataræðis og aukinnar hreyfingar landsmanna.   Lesa meira
 

Ráðleggingar um mataræði og næringarefni - fyrir fullorðna og börn frá tveggja ára aldri - 20.11.2006

Ráðlegginar um mataræði, forsíða bæklingsKominn er út á vegum Lýðheilsustöðvar bæklingurinn Ráðleggingar um mataræði og næringarefni. Ráðleggingarnar eru ætlaðar fullorðnum og börnum frá tveggja ára aldri og eiga þær að auðvelda fólki að velja fæði í samræmi við næringarefna- og orkuþörf sem og ráðlagða dagskammta af ýmsum vítamínum og steinefnum. Lesa meira
 

Örbylgjumatur - 6.7.2006

Í ljósi umræðu um hættuna af því að borða örbylgjuhitaðan mat áréttar Lýðheilsustöð að samkvæmt fjölda rannsókna er örbylgjumatur ekki skaðlegur við eðlilega meðhöndlun. Lesa meira
 

Ráðlagðir dagskammtar 2005 - 22.3.2006

Lýðheilsustöð-manneldisráð birta nýja ráðlagða dagskammta (RDS 2005) fyrir ýmis næringarefni og koma þeir í stað RDS frá 1996. Lesa meira
 

Of þung börn - ráð til foreldra - 28.9.2004

Sífellt fleiri foreldrar hafa áhyggjur af holdafari barna sinna. Lesa meira
 

Algengar spurningar og svör - 10.3.2004

Hér getur þú fengið svör við ýmsum algengum spurningum, eins og t.d. Hvað er kólesteról? Lesa meira
 

Ráðleggingar um mataræði og næringarefni (hét áður manneldismarkmið) - 23.3.2004

Birtar hafa verið nýjar ráðleggingar um mataræði og næringarefni. Ráðleggingarnar eru endurskoðuð útgáfa fyrri manneldismarkmiða, þar sem tekið er mið af nýjum vísindarannsóknum á sviði næringar og heilsu og niðurstöðum könnunarinnar á mataræði Íslendinga 2002.

Lesa meira
 

Fæðuhringurinn endurspeglar fjölbreytni - 11.11.2005

Fæðuhringurinn sýnir fæðuflokkana sex. Undirstaða holls mataræðis er að borða fjölbreyttan mat úr öllum fæðuflokkunum. Einnig er mikilvægt að borða margs konar mat úr hverjum flokki því hver fæðutegund hefur sína sérstöku samsetningu næringarefna.

Lesa meira
 

Um börn - 8.3.2004

Hér er að finna ýmsan fróðleik um næringu barna t.d. Handbók fyrir skólamötuneyti, ýmsar greinar, ofl. efni. Lesa meira
 

5 á dag - Borðum grænmeti og ávexti heilsunnar vegna - 2.1.2006

Lýðheilsustöð hvetur fólk til að borða fimm skammta eða 500 grömm af grænmeti, ávöxtum og safa á dag fyrir fullorðna, þar af a.m.k. 200g af grænmeti og 200g af ávöxtum, auk kartaflna. Lesa meira
 

Næringarefnatöflur - 18.3.2004

Hér getur þú skoðað næringargildi matvæla. Þú færð upplýsingar um hve orkurík matvælin eru og hve mikið er af ýmsum vítamínum og steinefnum í þeim. Lesa meira
 

Er þyngdin í lagi? - 19.3.2004

Hér getur þú kannað hvort þyngdin er í lagi, skoðað bæklinginn Tekið í tauman sem er stuðningur og ábendingar fyrir þá sem vilja grennast og lesið greinar um holdafar. Lesa meira
 

Hollustukarfa Manneldisráðs Íslands - 19.3.2004

Í hollustukörfunni er matur í samræmi við ráðleggingar Manneldisráðs um mataræði og næringarefni. Hér færð þú nánari upplýsingar um það hvað er í hollustukörfunni.

Lesa meira
 

Matarvefurinn.is - 15.3.2004

Með reikniforritinu Matarvefurinn.is getur þú reiknað næringarefnin í matnum sem þú borðar og metið hollustu eigin fæðis. Matarvefurinn.is opnar nýja möguleika jafnt fyrir fyrir almenning og skólafólk að fylgjast með hollustu eigin mataræðis og fræðast um næringargildi fæðunnar. Vefurinn kemur sér einnig vel fyrir sykursjúka, íþróttafólk og aðra sem þurfa af einhverjum ástæðum að fylgjast vel með mataræðinu. Eins getur starfsfólk í matvælaiðnaði nýtt sér vefinn.

Lesa meira
 

Matur og meðganga - 22.11.2004

Matur á meðgöngu. smella á mynd til að skoða bæklinginnMeðganga er tími breytinga í lífi hverrar konu. Daglegt líf snýst nú ekki aðeins um eigin þarfir heldur einnig um þarfir annars einstaklings. Heilsusamlegt mataræði og rétt meðhöndlun matvæla skiptir því sjaldan meira máli fyrir heilsu og líðan en einmitt á þessum tíma.
Nýlega kom út á vegum Lýðheilsustöðvar, Miðstöðvar mæðraverndar og Umhverfisstofnunar bæklingur þar sem fjallað er um helstu atriði sem vert er að hafa í huga, bæði varðandi undirbúning meðgöngu og lífshætti á sjálfri meðgöngunni.

Lesa meira
 

Innkaup og meðferð matvæla - 1.3.2004

Hér er að finna ráðleggingar varðandi innkaup og meðferð matvæla. Lesa meira
 

Að lesa á umbúðir - 5.3.2004

Umbúðamerkingar veita mikilvægar upplýsingar um samsetningu vöru og næringarinnihald hennar. Hér eru leiðbeiningar um hvernig lesa skal á umbúðir. Lesa meira
 





Þetta vefsvæði byggir á Eplica