Sími : 5 800 900
Kjötréttir

Pastaréttur með svínalund og ólífum (fyrir 4)

4.5.2004

HRÁEFNI: AÐFERÐ:
   250 g   fituhreinsuð svínalund
            4    skalottulaukar
            1   rauður chilipipar
            4   hvítlauksrif
            2   tómatar (stórir)
        2 dl   tómatkraftur
    1 poki   basilíka (fersk)          
          16   grænar ólífur (fylltar)
        2 dl   hvítvín (grænmetissoð)
    ½ msk   olía

      300 g    heilhveitipasta

  1. Skerið svínalundina í strimla. Leggið til hliðar. Saxið skalottulauk, fjarlægið kjarna úr chilipipar, saxið og merjið hvítlauk. Mýkið á teflonpönnu (eða í ½ msk af matarolíu). Hellið örlitlu hvítvíni út á pönnuna (eða grænmetissoði) og látið malla í 15 mínútur.
  2. Saxið tómata og bætið út á pönnuna ásamt tómatkrafti og afganginum af hvítvíninu. Látið malla í 5-10 mínútur. Bætið basilíku og ólífum út í.
  3. Snöggsteikið svínalundarstrimlana á teflonpönnu (eða í ½ msk af matarolíu) í nokkrar mínútur.
  4. Sjóðið heilhveitipastað skv. leiðbeiningum á pakka.

Hver skammtur inniheldur:

Hitaeiningar 410 kkal Prótein 25 g
Kolvetni 60 g Fita alls 6 g
Mettuð fita 1 g Trefjar 8 g
Natríum/salt 840 mg/2,1 g Kólesteról 31 mg


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica