200 g bökunarkartöflur
2 ½ dl kartöflusoð
42 g pressuger (eða 1 pk þurrger)
½ dl matarolía
1 dl graslaukur (eða 2 msk þurrkaður)
½ msk sykur
1 ½ tsk natrímskert salt
200 g hveiti
300 g heilhveiti
1 egg |
- Flysjið kartöflur og sjóðið. Kælið og maukið með gaffli. Takið 2½ dl af soðinu frá og kælið aðeins.
- Leysið gerið upp í volgu soðinu og hellið matarolíu saman við. Blandið söxuðum graslauk, sykri, salti og maukuðum kartöflum saman við.
- Hrærið heilhveiti og hveiti saman við og hnoðið þar til deigið er mjúkt og létt. Látið hefast á volgum stað í eina klst.
- Hnoðið aftur og mótið 20 jafnstórar bollur. Penslið hringform með dálítilli olíu. Raðið 10 bollum neðst og 10 bollum ofan á samskeitin. Látið hefast á volgum stað í 30 mínútur. Hitið ofninn á meðan í 200°C. Penslið með léttþeyttu eggi og bakið í ofninum í 20 mínútur.
- Losið varlega úr forminu og bakið í 5-10 mínútur í viðbót.
|