Sími : 5 800 900
Hreyfing

Hjólreiðar

11.5.2006

Hjólreiðar eru heilsusamleg og umhverfisvæn leið til að hreyfa sig reglulega og njóta útivistar í leiðinni.

Smella til að skoða nánarSífellt fleiri nota reiðhjól sem aðalfarartæki til og frá vinnustað. Betri búnaður og hlífðarföt ásamt batnandi aðstöðu til hjólreiða gera það að verkum að ekkert er því til fyrirstöðu að hjóla allt árið. Smellið á myndina hér fyrir ofan til að skoða nánar.

Rannsóknir sýna að það sem helst stendur í vegi fyrir því að fólk taki upp hjólreiðar er aðstöðuleysi. Beint samband er á milli betri hjólreiðastíga og fleiri hjólreiðamanna. Fjölgun í hópi hjólreiðamanna helst í hendur við aukið öryggi þeirra í umferðinni.

Hvetjandi umhverfi

Umhverfið hefur mikið að segja um lífsstíl fólks. Skipulag og fyrirhyggja í umhverfismálum skipar stóran þátt í að stuðla að reglulegri hreyfingu. Gott stíga- og gatnakerfi, lýsing, upphitun og hreinsun er til þess fallið að fjölga hjólandi í umferðinni og eykur jafnframt öryggi þeirra. Þéttbýli sem býður uppá góðar almenningssamgöngur, lágan umferðarhraða og nálægð við þjónustu virkar einnig hvetjandi á reiðhjólanotkun. Slík samgöngustefna er örugg og raunhæf leið sem yfirvöld víða um heim hafa nýtt sér til að ýta undir reglulega hreyfingu, draga úr mengun og bæta heilbrigði.

Hjólreiðar eru hættulítill samgöngumáti

hjolreidar_fj_daudsfalla

Myndin hér fyrir ofan sýnir samanlagðan fjölda þeirra sem létust af slysförum á reiðhjóli, í umferðarslysum og úr blóðþurrðar hjartasjúkdómum yfir 9 ára tímabil.1) Kyrrseta eykur stórlega líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum. 2)

1) Hagstofa Íslands. (2005). 2) Hjartavernd. (2004). Hreyfðu þig fyrir hjartað, fræðslubæklingur.

Fjöldi of bíla eykst og fjöldi of þungra einnig. Er samband þar á milli?

hjolreidar_fj_bila_kjortyngd

Myndin hér fyrir ofan sýnir þróun bílaeignar á Íslandi síðustu ár og þróun ofþyngdar til samanburðar. 1)

1) Hagstofa Íslands. (2005).

Fjöldi hljólandi helst í hendur við aðstæður til hjólreiða

hjolreidar_fj_hjola

Mynd hér fyrir ofan sýnir hvernig hjólreiðar jukust í Bretlandi 2000-2004. Lengd stíga jókst um 90%, á sama tíma jókst notkun reiðhjóla um 135%.1)

1) National Cycle Network Usage Report 2004.

Samgöngustefna sem hvegur til hljólreiða skilar sér í bættri heilsu

hjolreidar_samgongustefna

Myndin hér fyrir ofan sýnir tíðni ofþyngdar meðal tíu ára barna borið saman við hlutfall hjólandi í sömu löndum.1)

1) International Obesity Taskforce 2002.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica