Beint í leiðarkerfi vefsins.
Teygjuhlé fyrir börn og unglinga er tölvuforrit sem minnir fólk á að taka sér reglulega hlé frá tölvuvinnu og teygja úr sér. Forritið byggist á vinnuvistfræði og nýtist sem forvörn gegn álagsmeiðslum í stoðkerfi. Forritið, sem er bandarískt að uppruna, var hannað af hópi sérfræðinga á heilbrigðissviði og að baki hverri teygju, sem birtist í forritinu, liggur mikil og vönduð vinna.
Lesa meiraHreyfihringurinn kom fyrst út 2006 og var uppfærður í lok árs 2010. Þar eru á myndrænan hátt gefnar ráðleggingar og hugmyndir um hvernig hægt er að auka hlut hreyfingar í sínu daglega lífi.
Lesa meira