Heilsuefling
Með heilsueflingu er leitast við að efla heilbrigði og lífsgæði með því að skapa félagslegar, menningarlegar og efnahagslegar aðstæður og umhverfi sem gera einstaklingum og samfélaginu kleift að auka hreysti og efla vitund og vilja til að viðhalda heilbrigði.
Til þess að svo geti orðið þurfa allir í þjóðfélaginu að líta á sig sem málsvara eða talsmenn heilbrigði og stuðla að því að samfélagið verði uppspretta heilbrigði og betra lífs. Heilsuefling er þannig mun frekar félagslegt og pólitískt framtak heldur en málefni heilbrigðisþjónustunnar einnar.
Verkefni sem lúta að þessum markmiðum:
Á vegum Landlæknisembættisins er starfrækt fagráð um heilsueflingu til þess að vinna að ofangreindum markmiðum. Fagráðið hefur tekið saman skýrslu um áhersluþætti í heilsueflingu og er hún aðgengileg á heimasíðu embættisins.
