Um Geðræktarkassann
Sagan um Geðræktarkassann
Fyrirmyndin að kassanum eru ráð konu nokkurrar sem missti mann sinn frá tíu börnum þeirra um aldamótin 1900. Hún þurfti að láta frá sér átta elstu börnin. Til að hjálpa þeim að halda voninni og að takast á við sorgina við föðurmissinn og upplausn heimilisins útbjó hún að skilnaði kassa handa hverju og einu þeirra. Í kassana setti hún hluti sem höfðu mikið persónulegt gildi fyrir þau. Í suma kassana setti hún klúta sína sem báru með sér lykt af henni og leikföng og annað smálegt. Börnin áttu að nota kassana ef þeim liði illa og draga upp fallegar minningar og minnast um leið loforðs móður þeirra um að fjölskyldan myndi sameinast aftur þótt síðar yrði. Það gekk eftir að lokum.
Sagan til útprentunar (.pdf-skjal, opnast í nýjum glugga)
Lesa nánar um Geðræktarkassann
(Elín Ebba Ásmundsdóttir, 2005.)
