Leiðbeiningar um val á öryggisbúnaði fyrir börn í bíl
Öryggisbúnaður í bílum er mikilvæg vörn fyrir börn sem ferðast í bílum.
Sjá einnig nýjustu upplýsingar hjá: Landsbjörgu, Umferðarstofu, Forvarnarhúsi og eftir atvikum hjá tryggingafélögunum.
Í 71. gr. umferðarlaga segir m.a: „Barn yngra en 6 ára skal í stað öryggisbeltis eða ásamt með öryggisbelti nota barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan öryggis- og verndarbúnað ætlaðan börnum.“ Ennfremur segir í 71. gr: „Ökumaður skal sjá um að farþegi yngri en 15 ára noti öryggis- og verndarbúnað.“ Lögreglan hefur heimild til að sekta ökumann sem ekki sinnir þessari skyldu sinni og skrá brot hans í ökuferilsskrá. Sekt við því að hafa barn laust í bíl er kr. 15.000 kr., og 10.000 kr. sé sérstakur öryggisbúnaður fyrir börn ekki notaður. Hægt er að skoða umferðarlögin frekar hér, og reglugerð um sektir og önnur viðurlög á vef Lögregluembættisins.
Mörgum forráðamönnum finnst erfitt að velja öryggisbúnað fyrir barnið sitt í bílinn. Mjög oft eru þeir að leita að besta eða öruggasta búnaðinum. Söluaðilar segja oft að þeirra öryggisbúnaður sé bestur en slíkar upplýsingar valda miklu óöryggi hjá forráðamönnum barna. Spurningunni um hvaða öryggisbúnaður er bestur eða öruggastur er ekki hægt að svara þar sem allur öryggisbúnaður sem fluttur er til landsins og seldur er hérlendis verður að uppfylla lágmarkskröfur um öryggi. Þessi búnaður skal vera merktur með ECE R44-03, FMVSS eða CMVSS stöðlum. Markmiðið með þessum leiðbeiningum er að útskýra hvað þarf að hafa í huga þegar öryggisbúnaður fyrir börn í bílum er valinn, hvort sem kaupa á búnaðinn eða fá hann lánaðan.
Við kaup á öryggisbúnaði skal hafa eftirfarandi í huga:
-
Að öryggisbúnaðurinn sé merktur með ECE R44-03. Þessa merkingu er ekki alltaf hægt að finna á öryggisbúnaðinum sjálfum heldur einungis í upplýsingabæklingi sem fylgir honum. (Þessi merking gefur til kynna að búnaðurinn uppfylli gildandi lágmarkskröfur um öryggi).
-
Að öryggisbúnaðurinn sé valinn í samræmi við þyngd og stærð barnsins.
-
Að máta barnið í öryggisbúnaðinn til að athuga hvort öryggisbeltin sitji rétt á líkamanum og vel fari um barnið í honum (sjá nánar í umfjöllun um viðeigandi flokk öryggisbúnaðar). Þetta skiptir minna máli með ungbarnabílstólinn.
-
Að athuga hvort öryggisbúnaðurinn henti bílnum og hægt sé að festa hann tryggilega með beltum bílsins, því fastari því betra. Ef nota á öryggisbúnaðinn í fleiri en einn bíl þarf hann einnig að henta í þá bíla.
-
Mikilvægt er að fara alltaf eftir þeim leiðbeiningum sem fylgja með öryggisbúnaðinum um rétta festingu hans.
-
Þeim aðilum sem hafa hug á að gefa barni öryggisbúnað í bíl er bent á að velja hann í samráði við foreldra. Margir hafa farið flatt á að sá öryggisbúnaður sem keyptur hefur verið hentar hvorki barni né bíl og ekki hefur verið hægt að fá hann endurgreiddan.
Þegar öryggisbúnaður er fenginn að láni skal hafa eftirfarandi í huga:
-
Árið 1995 voru gerðar breytingar á lágmarkskröfum til öryggisbúnaðar í bílum. Áður var merkingin ECE R44-02 en er núna ECE R44-03. Mjög mikilvægt er að öryggisbúnaðurinn hafi núgildandi merkingu. Þessa merkingu er ekki alltaf hægt að finna á öryggisbúnaðinum sjálfum heldur einungis í upplýsingabæklingi sem fylgir honum. Sjá útskýringu á merkingu í kafla um kaup á öryggisbúnaði hér að ofan.
-
Að hann sé ekki eldri en fimm til átta ára en framleiðendur ábyrgjast öryggi búnaðarins yfirleitt ekki lengur en í þennan árafjölda.
-
Að öryggisbúnaðurinn hafi aldrei verið í bíl sem lent hefur í hörðum árekstri með barni í, slíkur búnaður er ónýtur.
-
Að áklæði sé heilt þar sem börn hafa skorist í árekstri vegna þess að bólstrun og áklæði vantaði yfir plastið.
-
Að beltin séu heil en ekki farin að trosna. Passa þarf að ekki sé snúningur á innbyggðum beltum öryggisbúnaðarins.
-
Að spennan virki vel. Hún má ekki vera stíf eða opnast auðveldlega. Stundum er beltisspennan kviklæst og ómögulegt að loka henni. Orsökin er þá stundum að óhreinindi gera hana óvirka. Þá getur verið nóg að þvo hana upp úr volgu sápuvatni og skola vel á eftir. Ef þetta virkar ekki er spennan hugsanlega ónýt.
-
Að máta barnið í öryggisbúnaðinn til að athuga hvort beltin sitji rétt á líkamanum og vel fari um barnið í honum (sjá nánar í umfjöllun um viðeigandi flokk öryggisbúnaðar).
-
Að athuga hvort öryggisbúnaðurinn henti bílnum, hægt sé að festa hann tryggilega með beltum bílsins og hann sitji traustlega á sæti hans. Ef nota á öryggisbúnaðinn í fleiri en einn bíl þarf hann einnig að henta í þá bíla.
-
Mikilvægt er að festa öryggisbúnaðinn í bílinn samkvæmt þeim leiðbeiningum sem fylgdu honum í upphafi. Hafi þær týnst er möguleiki á að umboðið geti aðstoðað. Mikilvægt er að öryggisbúnaðurinn sé ekki festur í bílinn á annan hátt en leiðbeiningar segja til um. Ekki skal eingöngu treysta leiðbeiningum fyrri eigenda.
Öryggisbúnaði er skipt í fimm flokka sem ráðast af þyngd barna. Við kaup á öryggisbúnaði er mikilvægt að velja réttan flokk. Hér fyrir neðan er tafla sem sýnir mismunandi flokka yfir öryggisbúnað.
|
Flokkur 0 |
Þyngd að 10 kg |
Ungbörn frá fæðingu til u.þ.b. 9 mánaða |
|||
|
Flokkur 0+ |
Þyngd að 13 kg |
Ungbörn frá fæðingu til u.þ.b. 12-15 mánaða |
|||
|
Flokkur 1 |
Þyngd 9-18 kg |
Börn frá u.þ.b. 9 mánaða til 3ja ára |
|||
|
Flokkur 2 |
Þyngd 15-25 kg |
Börn frá u.þ.b. 3ja - 6 ára |
|||
|
Flokkur 3 |
Þyngd 22-36 kg |
Börn frá 6-7 ára til 10-12 ára |
|||
Flokkur 0 og 0+
Ungbarnabílstólar 0-10 kg eða 0-13 kg
Allir forráðamenn ættu að vera búnir að kaupa öryggisbúnað og kynna sér rétta notkun hans áður en barnið fæðist. Öruggast er að flytja barn heim af fæðingastofnun í ungbarnabílstól.
-
Höfuð ungbarna er hlutfallslega stórt og þungt miðað við líkamann og því meiri hætta á háls- og höfuðáverkum í árekstri. Til að draga úr hættu á þessum áverkum er afar mikilvægt að barnið snúi með bakið í akstursstefnu eins lengi og hægt er. Æskilegra er að velja stól sem gefinn er upp fyrir 0-13 kg.
-
Algengt er að foreldrar vilji hætta að nota ungbarnabílstólinn of snemma, þ.e. áður en barnið vegur 10 kg eða 13 kg sökum þess að fæturnir eru komnir upp á bak bílsætis. Það hefur engin áhrif á öryggi barnsins í bílnum. Mikilvægara er að miða við stöðu höfuðsins í stólnum. Þegar eyrnasneplar nema við brún stólbaksins þá er barnið orðið of langt í stólinn.
-
Í þessum flokki eru einungis stólar sem snúa baki í akstursstefnu.
-
Börn eru að jafnaði best varin í aftursæti. Ungbarnabílstólar mega þó vera í framsæti svo framarlega sem þar er ekki öryggispúði. Í þeim bílum sem hafa öryggispúða farþegamegin í framsæti verður barnið alltaf að vera í aftursætinu, nema að öryggispúðinn hafi verið aftengdur.
-
Ungbarnabílstól á alltaf að festa með þriggjafestu öryggisbelti sé annað ekki tekið fram í leiðbeiningum.
-
Ef ungbarnabílstóll er í framsæti á sætið að vera eins aftarlega og hægt er, a.m.k. 20 sm frá mælaborði. Það sama á við um fjarlægð að baki framsætis sé stólinn hafður í aftursæti.
-
Athuga þarf hvort öryggisbúnaðurinn henti bílnum og hægt sé að festa hann tryggilega með beltum bílsins og hann sitji traustlega á sæti hans. Ef nota á öryggisbúnaðinn í fleiri en einn bíl þarf hann einnig að henta í þá bíla.
Burðarrúm eru ekki æskilegur búnaður fyrir börn í bílum þar sem þau veita ekki næga vernd. Þessi búnaður hefur ekki verið prófaður nægjanlega með tilliti til öryggis í árekstri.
-
Margir telja sig verða að nota burðarrúm í lengri ferðum en slíkt er ekki nauðsynlegt. Í lengri ferðum er nóg að stoppa af og til og taka barnið úr stólnum til að hvíla það.
-
Almennt er barn öruggast ef það situr eins mikið upprétt og hægt er miðað við aldur þess.
Bílkörfur eru til fyrir börn sem þurfa einhverra hluta vegna að ferðast útafliggjandi. Getur verið vegna veikinda eða fötlunar.
-
Bílkörfu er hægt að festa í bílinn með þriggjafestu öryggisbeltum hans.
-
Barnið er fest í bílkörfuna með fimmfestu öryggisbelti sem er innbyggt í hana.
-
Þegar bílkarfa er notuð á höfuð barnsins að snúa inn að miðju bílsins.
-
Bílkörfur eiga alltaf að vera í aftursætum bíla.
Flokkur 1, 2 og 3
Barnabílstólar fyrir börn frá 9 kg til 36 kg
-
Mikilvægt er að börn noti barnabílstól eða bílpúða með baki eins lengi og hægt er eða upp að 36 kg. Barn sem er í slíkum búnaði er mun betur varið en það barn sem einungis notar öryggisbelti bílsins.
-
Gæta skal að því þegar stólar eru notaðir með innbyggðum beltum að beltin falli ávallt þétt að líkamanum. Beltin eiga að falla það þétt að líkamanum að ekki sé hægt að renna meira en 2-3 fingrum á milli beltis og barns. Hafa ber í huga að þetta þarf að stilla eftir klæðnaði barns.
9-18 kg
|
Þriggja ára gamalt barn í bakvísandi barnabílstól í framsæti |
Tæplega tveggja ára gamalt barn í bílstól í framvísandi stefnu í aftursæti. |
-
Í þessum flokki eru til stólar sem einungis mega snúa fram og stólar sem mega bæði snúa fram og baki í akstursstefnu. Þeir stólar sem bæði geta snúið fram og aftur henta mjög vel þeim börnum sem ná 10 kg hámarksþyngd ungbarnabílstóls snemma.
-
Hér eru allir stólar með innbyggðum öryggisbeltum.
-
Börn í þessum bílstólum eru best varin í aftursæti bílsins nema þau séu í bakvísandi stól og ekki virkur öryggispúði fyrir framan þau.
15-25 kg / 22-36 kg
-
Stólar í þessum flokki eru bæði með og án belta. Ef valinn er stóll þar sem notuð eru þiggjafestu öryggisbelti bílsins þarf að athuga að bílbeltið sitji rétt á líkama barnsins, þ.e. yfir öxl og brjóst og neðra beltið yfir læri. Ef beltið liggur ekki rétt þá er barnið of smávaxið fyrir stólinn og þarf því að velja stól með innbyggðum beltum.
-
Ef ekki eru höfuðpúðar í aftursæti bíls er mælt með að nota barnabílstól eða bílpúða með baki til að veita betri stuðning við bak og háls.
-
Talsverður fjöldi forráðamanna lendir í því einhvern tímann að barnið fer að losa spennuna sjálft. Á slíku fikti þarf að taka strax. Ekki má nota neinn aukabúnað til að hindra aðgengi að spennunni nema t.d. leikborð úr svampi sem er fest með frönskum rennilás. Spennuna á að vera auðvelt að opna. Það getur reynst nauðsynlegt ef bíllinn lendir í umferðaróhappi og losa þarf barnið fljótt úr honum.
-
Börn í þessum bílstólum eru best varin í aftursæti bílsins nema þau séu í bakvísandi stól og ekki virkur öryggispúði fyrir framan þau.
-
Athuga þarf hvort öryggisbúnaðurinn henti bílnum og hægt sé að festa hann tryggilega með beltum bílsins. Ef nota á öryggisbúnaðinn í fleiri en einn bíl þarf hann einnig að henta í þá bíla.
Flokkur 2 og 3
15-36 kg
Til eru bílpúðar með eða án baks fyrir börn frá 15-36 kg.
-
Ef velja á bílpúða er öruggara að hann sé með baki. Hann veitir barninu betri vörn fyrir háls, hrygg og höfuð í árekstri. Þetta á sérstaklega við ef engir höfuðpúðar eru í aftursæti bílsins.
-
Þegar barnið hefur náð þeirri hæð að eyrnasneplarnir ná upp að brún baksins á bílpúðanum er tímabært að fjarlægja bakið og nota eingöngu bílpúðann.
-
Öruggast er að nota bílpúðann þangað til barnið hefur náð a.m.k. 36 kg þyngd, þá fyrst er öruggt fyrir barnið að nota eingöngu öryggisbelti bílsins, svo framarlega að beltið sitji rétt á líkama þess, þ.e. þétt yfir öxl og brjóst og neðra beltið yfir læri.
-
Áður en búnaðurinn er keyptur skiptir miklu máli að máta barnið í hann. Öryggisbeltið þarf að dreifast rétt á líkama barnsins, þ.e. yfir öxl, brjóstkassa og neðra beltið yfir læri. Ef beltið liggur ekki rétt þá er barnið of smávaxið fyrir búnaðinn. Þó þessi búnaður sé gefinn upp fyrir börn frá 15 kg þá er ekki víst að búnaðurinn henti barninu strax.
-
Athuga þarf hvort öryggisbúnaðurinn henti bílnum, hægt sé að festa hann tryggilega með öryggisbeltum bílsins og hann sitji traustlega á sæti hans. Ef nota á öryggisbúnaðinn í fleiri en einn bíl þarf hann einnig að henta í þá bíla.
-
Börn á bílpúða eiga alltaf að vera í aftursæti bíla og nota þriggjafestu öryggisbelti.
-
Á þessum aldri fara forráðamenn oft að treysta barninu sínu fyrir því að spenna sig sjálft í bílinn. Mikilvægt er að þeir gangi úr skugga um að það sé rétt gert, búnaðurinn sé á réttum stað og staðsetning öryggisbeltis sé rétt á líkamanum.
Öryggisbelti er fyrir börn sem náð hafa 36 kg
Mikilvægt er að börn séu í aftursæti þar til þau hafa náð a.m.k. 150 sm hæð en þar eru þau öruggust.
|
|
|
|
-
Öryggisbelti má ekki vera snúið, það getur haft áhrif á virkni þess í árekstri og barn kastast illa til.
-
Efri hluta beltis skal aldrei setja undir holhönd eða aftur fyrir bak. Þetta er röng notkun og getur skaðað barnið alvarlega í árekstri, virkað eins og hnífur í holhönd barns og valdið rifbeinsbrotum sem geta skaðað innri líffæri þeirra.
-
Í sumum bílum skiptir máli að rétt beltisspenna sé notuð í aftursæti. Ef spenna er notuð sem tilheyrir ekki beltinu getur hún opnast við litla hreyfingu.
-
Tveggjafestu belti eru ekki æskileg fyrir börn þar sem við árekstur lendir höggið á kviðarholinu og hætta á innvortis áverkum eykst.
Fötluð börn
Öryggisbúnað í bifreiðar fyrir fötluð börn og börn með tímabundna fötlun er oftast hægt að fá í verslunum á sama hátt og fyrir önnur börn. Í einstaka tilvikum þarf þó sérstakan búnað með þeim eins og hnakkastuðning, belti og fótstuðning. Í þeim tilvikum þar sem það dugar ekki er hægt að sækja um sérútbúna bílstóla í bifreiðar fyrir börn eldri en tveggja ára til Hjálpartækjamiðstöðvar Tryggingastofnunar. Umsóknir eru metnar eftir þörfum hvers og eins barns en þeir sem hafa skerta færni vegna fötlunar eða sjúkdóms geta fengið styrki til kaupa á þessum öryggisbúnaði. Frekari upplýsingar um þetta er hægt að fá hjá Umferðarráði eða hjá Hjálpartækjamiðstöð Tryggingastofnunar.
Uppblásanlegir öryggispúðar í bílum
-
Öryggispúði er lífshættulegur börnum. Hættan felst í því að við árekstur þenst púðinn út af slíku afli að lendi hann á höfði eða efri hluta líkama barns getur það leitt til alvarlegra áverka eða jafnvel dauða. Börn lægri en 150 sm mega aldrei sitja í framsæti bíls ef uppblásanlegur öryggispúði er fyrir framan sætið.
-
Í sumum nýrri tegundum bíla eru uppblásanlegir öryggispúðar (hliðarpúðar) í hurðum. Ef barn situr á réttan hátt í barnabílstól eða öðrum öryggisbúnaði fyrir börn þá á hliðaröryggispúðinn ekki að valda því hættu. Það sem getur þó verið hættulegt er ef höfuð barnsins er mjög nálægt öryggispúðanum þegar hann blæs út. Til dæmis ef höfðuð barnsins hangir út fyrir hliðar stólsins. Það getur verið mismunandi eftir tegundum bíla hvernig hliðaröryggispúða er komið fyrir í bílnum. Ráðlegast er að hafa samband við umboðsaðila bílsins og fá hjá honum upplýsingar um öryggispúðann.
Lausir munir í bíl
-
Börn hafa slasast vegna lausra muna í bílnum sem hafa kastast á þau við árekstur, bílveltu eða þegar hemlað er skyndilega.
-
Ekki skal geyma þunga hluti inni í bíl, sérstaklega ekki í afturglugga og ef um skutbíl er að ræða skal hafa hlíf, gardínu eða net yfir farangursrými.
-
Spenna öryggisbeltisins getur opnast ef þungir hlutir liggja á henni.
Texti unnin í samvinnu við Umferðarráð og Slysavarnafélagið Landsbjörgu.









