Sími : 5 800 900
Niðurstaða könnunar 2003

Niðurstöður 2003

19.3.2004

Árið 2003 reyndust 82% barna vera með réttan öryggisbúnað og 6% laus miðað við að 72% barna var í réttum öryggisbúnaði 1996 og 28% barna laus.

Niðurstöður 2003.

117 börn voru laus í bíl

Í ár sátu 117 leikskólabörn laus í bílum eða 6%. Þetta er heldur betri árangur en árið 2002, en þá sátu 10,3% laus í bílum. Ökumaður ber ábyrgð á því að farþegar yngri en 15 ára noti öryggisbúnað og að börn yngri en 6 ára noti barnabílstól, bílpúða með eða án baks eða annan sérstakan öryggisbúnað ætlaðan börnum. Barn sem er laust í bíl sem ekið er á 30 km hraða og lendir í árekstri getur stórslasast við höggið sem verður við áreksturinn. Við ekki meiri hraða en þetta getur barnið jafnvel kastast út úr bílnum og skaðað þá sem sitja fyrir framan það.

243 börn notuðu eingöngu belti

Alls voru 243 börn sem notuðu eingöngu öryggisbelti í könnuninni í ár. Upp að 36 kg þyngd skiptir meginmáli að börn noti sérstakan öryggisbúnað ætlaðan börnum. Öryggisbelti er hannað fyrir einstakling sem er a.m.k. 140 sm á hæð og hentar þar af leiðandi ekki ungum börnum. Til þess að bílbelti veiti barni sem er lægra en 140 sm nægjanlega vernd þarf barnið að sitja á bílpúða með eða án baks. Þá liggur bílbeltið rétt, yfir læri og á öxl. Í sumum bílum eru ekki höfuðpúðar í aftursætum. Ef barn situr of hátt í sætinu og fær ekki hnakkastuðning þá þarf það að sitja á bílpúða með baki. Barn getur fengið alvarlega háls- og höfuðáverka ef hnakkastuðning vantar.

29 börn sátu andspænis öryggispúða

Í ár sátu 29 börn andspænis öryggispúða í framsæti. Við árekstur þenst púðinn út af slíku afli að barn getur dáið við höggið frá honum. Börn eru að jafnaði öruggust í aftursæti bifreiðar.

Lélegur öryggisbúnaður

Lélegur öryggisbúnaður veitir falskt öryggi. Yfir höfuð er talað um að ekki skuli nota eldri búnað en 10 ára. Þess ber þó að gæta að ef framleiðendur segja annað í leiðbeiningum sínum skal fara eftir því.  Slitin belti eru ónothæf.  Ef áklæði er ekki heilt þá getur stóll skorið barn ef hann springur í alvarlegum árekstri.  Í könnuninni í ár kom í ljós að einn barnabílstóll var festur með rúllubelti sem dróst ekki inn.  Þar af leiðandi var ekki hægt að strekkja á því og stóllinn var laflaus.  Eigandi stólsins hafði ekki gert sér grein fyrir þessu og hélt að stóllinn væri ekki eins og hann ætti að vera.

Börn hætta of fljótt að nota sérstakan öryggisbúnað

Algengt er að börn hætti of snemma að nota barnabílstól, þ.e. áður en tilætlaðri þyngd er náð.  Þá er t.d. átt við börn sem eru tveggja ára og nota bílpúða sem er gerður fyrir börn sem eru a.m.k. orðin þriggja ára eða 15 kg.  

Vinnubílar

Oft eru vinnubílar notaðir til að flytja börnin í leikskólann og eru þau oft illa varin í þeim.  Mjög algengt er að börnin séu í framsæti í vinnubílunum, einungis í bílbeltum eða laus og mikið af þungum munum í bílunum sem geta kastast til við árekstur.

Lausir munir í bílum

Lausra muna í bílum er oft getið í athugasemdadálknum í könnuninni hjá þeim sem gera hana.  Lausir munir í bíl geta slasað þá sem í bílnum eru jafnvel þó einungis sé verið að bremsa snögglega.  Ef um skutbíl er að ræða er nauðsynlegt að hafa hlíf eða net yfir farangursrýminu og aldrei skal geyma þunga hluti í afturglugga þar sem þeir geta lent á höfði þeirra sem sitja í bílnum.

Höfuðpúðar

Höfuðpúðar eru ekki í öllum bílum og voru nokkrar athugasemdir gerðar tengdar því þar sem börn sátu á bílpúðum og höfuð þeirra náði upp fyrir sætisbakið.

Undanlátssemi foreldra

Nokkuð var um það að börn sátu við hliðina á öryggisbúnaði sínum í könnuninni.  Í samtali við foreldra kom fram að sum börn vilja frekar nota bílbelti en vera í stól.  Að leyfa barni slíkt er vanræksla, börn hafa ekki þekkingu eða þroska til að ákveða hvernig þau eru best varin í bílum.   Önnur algeng útskýring hjá foreldrum er að það sé nú svo stutt á leikskólann að það taki því ekki að festa barnið.  Slysin geta orðið þó um stutta vegalengd sé að ræða og er ekki óþekkt að slys verði er verið er að bakka út úr stæði.

Stuðst er við texta sem unnin var í samvinnu við Umferðarstofu og Slysavarnafélagið Landsbjörgu árið 2002 í tenglsum við könnunina sem var gerð þá.


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica